Fréttablaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 52
4. september 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 40
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5.
Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson,
12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is
LAGALISTINN TÓNLISTINN
28.08.2014 ➜ 03.09.2014
1 George Ezra Budapest
2 Prins Póló París norðursins
3 Sia Chandelier
4 Kaleo All The Pretty Girls
5 Milky Chance Stolen Dance
6 Valdimar Læt það duga
7 Sam Smith I’m Not The Only One
8 Nico & Vinz Am I Wrong
9 Tove Lo Habits (Stay High)
10 Sam Smith Stay With Me
1 Low Roar 0
2 Kaleo Kaleo
3 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music Vol. 2
4 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
5 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
6 Mammút Komdu til mín svarta systir
7 Samaris Silkidrangar
8 Ýmsir Icelandic Folksongs and Other Favorites
9 GusGus Mexico
10 Of Monsters And Men My Head Is An Animal
Lee Hurst
@2010LeeHurst
22. ágúst
#AskIslamicState
Hvenær búist þið við
að Caliphate opnist
fyrir ferðamenn?
Chris Long
@ChrisLong193
3. september
#AskIslamicState
Hafið þið einhvern
tímann drepið ein-
hvern sem var ekki
handjárnaður fyrir
aftan bak?
Steve McStove
@bakedstove
31. ágúst
#AskIslamicState
Ætti ég að hafa
vanillu- eða súkkul-
aðiköku á afmælinu
mínu?
Farhaan
@PremierBankshot
31. ágúst
#AskIslamicState
Af hverju er T í
Tsunami?
Liars Never Win
@liars_never_win
29. ágúst
Hvar í Kóraninum
stendur að maður eigi
ekki að nota svitalykt-
areyði? #AskIslamic-
State
John F Smith Jr
@johnfsmithjr
27. ágúst
#AskIslamicState,
þetta með 72 hreinar
meyjar, eru það konur
eða geitur?
Kassamerkið #Ask-
IslamicState er
mjög heitt á Twitter
en tíst sem merkt
eru því gera grín að
öfgasamtökunum
IS. Upphafsmaður
þessa gríns er talinn
vera spéfuglinn Lee
Hurst.
Trend á Twitter Tístarar gera stólpagrín að öfgasamtökunum IS
ENDURNÆRIST AF GÓÐRI ORKU
„Snilldin við þetta er að þú getur gert þetta á þínum eigin
hraða, þoli og styrk, þetta hentar hvaða líkamsformi og
aldri sem er. Það eru engin hopp eða slíkt, svo álag á hné
og mjóbak er ekki vandamál. Ég hef haft allt frá átján
ára upp í sjötugt í tíma hjá mér,“ segir Unnur Pálmars-
dóttir sem kynnir nýtt líkamsræktarkerfi hannað af henni
sjálfri. Kick-Fusion er byggt á kikkboxi og tabatalotum,
þar sem unnið er með hámarksákefð í stuttan tíma en það
tryggir mikla brennslu og góðan eftirbruna. Hún hefur
unnið að hönnun kerfisins í nokkur ár og kennt við góðar
undirtektir erlendis. Unnur lofar miklum svita, brennslu
og gleði á námskeiðinu.
Hvað? Lokuð Kick-Fusion námskeið. Innifalið matarprógramm
og aðgangur að tækjasal.
Hvar? World Class Laugum mánudaga og miðvikudaga kl. 17.30,
World Class Seltjarnarnesi þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.20.
Hverjir? Allir aldurshópar velkomnir.
JÓGA Í ÞYNGDARLEYSI
„Aerial yoga er fyrst og fremst skemmtilegt,“ segir Arna.
„Þótt þú hangir í slæðunum þá er ekkert að óttast, það er
algjör óþarfi að ríghalda sér í. Hlutverk bandanna er að
styðja við líkamann og hjálpa honum þannig að komast
dýpra í jógastöðurnar og ná betra flæði. Svo er þetta bara
umfram allt skemmtilegt og maður upplifir svo mikla
barnslega gleði við það að hanga í böndunum, það gefur
manni svo mikið.“ Margrét Arna Arnardóttir er eigandi B
yoga og hefur kennt Aerial yoga á Íslandi síðan í janúar.
Hún segir þessa tegund af jóga einstaklega skemmtilega
og hvetur alla til þess að prófa. „Það er ekkert að ótt-
ast, tíminn snýst ekki um að hanga á hvolfi allan tímann,
heldur ná dýpri teygjum, jöfnu jógaflæði og góðri slökun,“
segir hún.
Hvað? Jóga þar sem notast er við silkibönd og hangið í þeim.
Hvar? B yoga, Nethyl 2.
Hverjir? Hentar öllum.
MÁLIÐ AÐ HRISTA SIG Í VETUR
„Það nýjasta hjá okkur haust er gamla góða Jane Fonda-
leikfimin, en kennarinn, hún Sigga Ásgeirs, hefur betrum-
bætt kerfið og bætt nokkrum nýjum æfingum við,“ segir
Bryndís Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Kramhúsinu. „Við
bjóðum líka upp á Shaking eða Hristing sem er nýjasta
æðið í Svíþjóð. Þar byrjum við á dansupphitun og förum
svo í að hrista útlimina og náum þannig slökun í hvern
þeirra,“ bætir hún við og segist finna fyrir auknum áhuga
fyrir því að hreyfa sig og hafa líkamsræktina skemmti-
lega umfram annað. „Beyoncé-námskeiðin eru alltaf jafn
vinsæl, en fullt er á námskeiðin sem hefjast í næstu viku
og er biðlisti eftir plássi,“ segir Bryndís en getur glatt
aðdáendur námskeiðsins með því að haldin verða önnur
námskeið strax að þessum loknum í október.
Hvað? Jane Fonda, sex vikna námskeið tvisvar í viku.
Hvar? Kramhúsið Skólavörðustíg.
Hverjir? Allir sem vilja umfram allt hafa gaman af líkamsrækt-
inni sinni.
GLEÐI, ÞYNGDARLEYSI OG SLÖKUN
Nú þegar hausta tekur byrja fl estir að huga að líkamsrækt að nýju og núna er skemmtun í aðalhlutverki. Lífi ð skoðaði hvað er í boði.
LÍFIÐ
VERIÐ VELKOMIN Í NETTÓ
GRANDA OG MJÓDD
DAG SEM NÓTT