Fréttablaðið - 13.09.2014, Side 6
13. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
SJÁVARÚTVEGUR Auðvelda þarf
frumkvöðlum að hefja tilrauna-
veiðar á vannýttum tegundum á
Íslandsmiðum. Sérstaklega á þetta
við um þá sem hafa minna umleikis.
Veiðar, vinnsla og úthugsuð mark-
aðssetning þessa sjávarfangs geym-
ir mikla möguleika til verðmæta-
sköpunar í íslenskum sjávarútvegi.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýrri greiningu Íslenska
sjávarklasans um tækifæri í van-
nýttum sjávardýrategundum.
Bjarki Vigfússon, hagfræðingur
hjá Sjávarklas-
anum, útskýrir
að smærri aðil-
ar hafi mjög tak-
markaða mögu-
leika til að hasla
sér völl í tilrauna-
veiðum, þær eru
dýrar og litlir
möguleikar til að
sækja fjármagn
til sjóðakerfisins.
„Stóru sjávarútvegsfyrirtækin
hafa hins vegar mörg hver lítinn
áhuga á litlum og vannýttum teg-
undum og smærri aðilarnir hafa
ekki fjármagnið sem þarf. Hins
vegar, ef eitthvað kemur út úr til-
raunaveiðum smærri aðila hafa
stóru aðilarnir möguleika á að
hefja veiðar í þeim tegundum í
miklu magni á skömmum tíma og
styrkja þannig stöðu sína verulega
gagnvart því að fá úthlutaðan rétt
til veiða úr þeim stofnum síðar,“
segir Bjarki.
Því vantar einhvers konar gagn-
sætt, stöðugt og sanngjarnt fyrir-
komulag í kringum veiðar á nýjum
tegundum sem gefur smærri aðil-
um færi á að stunda þróunarstarf-
ið af einhverjum krafti og tryggir
þeim síðan einhvern nýtingarrétt
í framhaldinu, enda séu smærri
aðilarnir ekki síður líklegir en þeir
stærri til að skapa verðmæti úr
nýjum tegundum.
Eins kemur fram í greiningu
Sjávarklasans að í íslensku lögsög-
unni er nokkur fjöldi vannýttra teg-
unda. Stofnstærðir flestra þessara
tegunda eru smærri en þeirra sem
nú eru verðmætastar í íslenskri
útgerð og eðli málsins samkvæmt
ríkir enn nokkur óvissa um arð-
semis möguleika í veiði flestra
þeirra. Þá verður einnig að taka til-
lit til þess að sumar tegundir sem
nú teljast lítið nýttar flakka talsvert
inn og út úr lögsögunni og stöðug-
leiki í veiði þeirra því lítill.
svavar@frettabladid.is
Vantar hvata til að
hefja tilraunaveiðar
Koma þarf á skipulagi þar sem frumkvöðlar sem leggja í áhættusamar tilrauna-
veiðar njóti afraksturs frumkvöðlastarfs með sanngjörnum hætti. Mikil verðmæti
gætu falist í veiðum og vinnslu sjávardýra sem lítill gaumur er gefinn í dag.
TEGUND STAÐA VEIÐA AFLI OG STOFNSTÆRÐ
Beitukóngur 89 tonn 2013 Ráðgjöf Hafró 750 tonn
Beitusmokkur Tilraunaveiðar Lítt rannsakað
1.600 tonn veidd 1984
Gaddakrabbi Tilraunaveiðar Stofnvísitala 260 tonn
Gulldepla Veiðar frá 2008 Hámarksafli 46.000 tonn
Engu landað 2013
Ígulker Árlegur afli 125–145 tonn Ekki vitað
Kræklingur Tilraunaveiðar Stofnstærðarmat
15.000 tonn
Kúfskel Engar veiðar síðan 2009 Leyfilegur afli
35.500 tonn á ári
Sæbjúga Tilraunaveiðar frá 2003 Stofnstærð 26.000 tonn
Grjótkrabbi Fannst fyrst 2006 Lítið þekkt
Trjónukrabbi Veiðitilraunir Stofnstærð áætluð
um 80.000 tonn
Van- og ónýttar tegundir við Ísland
NEYTENDUR Matvælastofnunin
í Svíþjóð varar við fæðubótar-
efninu Jacked Power eftir að kona
sem tók inn efnið í tengslum við
líkamsrækt fékk heilablæðingu.
Jack ed Power er sagt auka árang-
ur hjá þeim sem stunda íþróttir.
Efnið hefur verið selt í verslun-
um í Svíþjóð en nú hafa yfirvöld
í Gautaborg, Malmö og Svíþjóð
gert ráðstafanir til þess að stöðva
sölu þess. Í grein í sænska lækna-
blaðinu frá 5. september síðastliðn-
um segja læknar það vera skoðun
sína að setja megi heilablæðingu
konunnar í samhengi við neyslu
hennar á fæðubótarefninu.
Katrín Guðjónsdóttir, sérfræð-
ingur hjá Matvælastofnun, segir
fæðubótarefni ekki háð samþykki
eins né neins. „Ég veit ekki til þess
að þessi vara sé til hér en það segir
ekki alla söguna.
Það er skylda að tilkynna um
sölu á fæðubótarefnum en það er
nú eins og það er. Þar sem varan
hefur ekki verið tilkynnt geri ég
síður ráð fyrir að hún sé til sölu í
verslunum hér. En hins vegar er
hún aðgengileg í vefverslunum.“
- ibs
Matvælastofnunin í Svíþjóð varar við fæðubótarefninu Jacked Power
Heilablæðing í kjölfar neyslu
FÆÐUBÓTAREFNI Varað er við neyslu
á fæðubótarefninu Jacked Power.
Lífrænu kaldpressuðu kryddolíurnar
eru dásamlega bragðgóðar og
ómissandi í alla matargerð.
Lífrænar vörur á góðu verði.
ÞAÐ ER HEILBRIGÐ SKYNSEMI
SJÁVARFANG Fjölmargar tegundir við Ísland eru lítt eða ekki nýttar, en eru kónga-
fæði engu að síður. MYND/SÆFERÐIR
BJARKI
VIGFÚSSON
ELDGOS Fylgjast þarf vel með því
þegar hraunstraumurinn nær
Svartá að sögn Freysteins Sig-
mundssonar, jarðeðlisfræðings hjá
Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.
„Þegar hraunið kemur þangað
þarf að fara yfir stöðuna. Meira
grunnvatn er í ánni og því gæti
orðið meiri sprengivirkni þar en
í Jökulsá á Fjöllum,“ segir Frey-
steinn. Búast má við því að hraun-
ið nái að bökkum Svartár á næstu
dögum. Um helgina verður hægt að
ákvarða út frá GPS-mælum hvort
sigið í öskjunni undir Bárðarbungu
haldi áfram. Enn er talið jafn líklegt
að gos hefjist undir jöklinum í Bárð-
arbungu. „Það gæti orðið hættuleg-
ur atburður hvort sem það yrði stórt
eða lítið gos vegna hættu á jökul-
hlaupi,“ segir Freysteinn.
Áfram er varað við háum styrk
brennisteinstvíildis frá eldgosinu á
Austfjörðum. Finni íbúar á svæðinu
fyrir óþægindum eru þeir beðnir að
halda sig innandyra. - ih
Áfram varað við gasmengun frá Holuhrauni og fylgst með hraunstraumi:
Hætta á sprengingum í Svartá
FREYSTEINN SIGMUNDSSON
Enn jafn líklegt að gos hefjist í Bárðar-
bungu, segir jarðeðlisfræðingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI