Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2014, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 13.09.2014, Qupperneq 28
13. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 verktakasamning sem sönnur fyrir því að Jón Óttar hefði hald- ið frá honum vitneskju um vinnu sína fyrir skiptastjóra Milestone ehf. sem kvartanir verjenda höfðu meðal annars beinst að. Jón Óttar segir að í yfirheyrslu í júlí 2012 hafi hann fengið að vita að Ólafur Þór segði nú að samningurinn hefði í raun verið gerður þann 2. janúar 2012, en ekkert hefði verið minnst á vinnuna fyrir Milestone. Jón Óttar segist hafa bent Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara á það að þar færi Ólafur með rangt mál. Samningurinn væri gerður löngu eftir janúar sem sæist á því að þar væri samkomulag um vinnu hans fyrir Glitni sem byrjaði ekki fyrr en vikum síðar. Í yfirheyrslum hafi Ólafur Þór viðurkennt að hafa dagsett skjalið aftur í tímann. Þá segir Jón Óttar að tölvupóstur sem Hólmsteinn Gauti Sigurðsson sak- sóknari sendi skiptastjóra Milestone sýni að það hafi verið Hólmsteinn Gauti sem átti frumkvæðið að því að gögn voru send frá sérstökum sak- sóknara til Milestone. Voru það mistök að vinna fyrir Milestone og sérstakan saksókn- ara á sama tíma? „Eftir á að hyggja var þetta óeðlilegt, eins og margt sem fram fór innan vébanda emb- ættisins. Það sem gerði þetta að verkum var þessi hugmyndafræði innan embættisins, þetta eru allt- af við á móti hinum,“ segir hann og bætir því við að andrúmsloftið hafi verið þannig að litið hafi verið svo á að lögreglan og slitastjórnirnar hefðu verið saman í liði gegn gömlu bankamönnunum. Setti líf okkar á hliðina Jón Óttar segir að kæran gegn sér hafi sett líf sitt verulega úr skorð- um og orðið til þess að hann varð gagnrýnni á verklag sérstaks sak- sóknara. „Þessi kæra til ríkissak- sóknara gersamlega setti líf mitt á Jón Óttar hefur efasemdir um að það hafi verið rétt ákvörðun að stofna embætti sérstaks saksóknara. „Ég held eftir á að hyggja, að það hefði átt að taka þennan pening sem fór í að stofna sérstakan saksóknara og styrkja hina venjulegu lögreglu í landinu. Flestar löggurnar sem voru að vinna hjá sérstökum voru að vinna hjá lögreglunni í Reykjavík eða öðrum lögregluembættum sem segir manni bara að þessar sömu löggur hefðu alveg getað unnið þessi mál á sínum gömlu stöðum,“ segir hann. Það hefði því vel komið til greina að styrkja efnahagsbrotadeild ríkis- lögreglustjóra eða fjármunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hefði frekar vilja styrkja almenna lögreglu Skeifan 4, 108 Reykjavík Mögulega hægt að fá heimsent. Kostar 1.000 kr.Með lágmarkspöntun 3500 kr. eða www.yummy.is HLERANIR Jón Óttar segist hafa orðið þess strax áskynja að sérstakur saksóknari hleraði símtöl verjenda við skjólstæðinga, en slíkt er óheimilt samkvæmt sakamálalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Jón Óttar Ólafsson lauk doktorsnámi í afbrotafræði frá Cambridge 2004. Fljótlega eftir að hann fluttist til Íslands var hann ráðinn í starf hjá ríkis- lögreglustjóra sem sérfræðingur í afbrotafræði og fékk þá áhuga á starfi lögreglunnar. „Ég hafði alltaf ætlað að verða fræðimaður eftir doktors- námið. Árið 2005 fer ég í lögguskólann og fer svo að vinna aftur hjá ríkis- lögreglustjóra árið 2006 þegar ég er búinn í skólanum,“ segir Jón Óttar. Hann vann þar í ellefu eða tólf mánuði og færði sig þá til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var þar lögreglumaður í venjulegum rann- sóknum og í upplýsingadeildinni hjá lögreglunni í Reykjavík þangað til 2009. Það ár byrjaði hann að vinna fyrir sérstakan saksóknara og fór að rannsaka mál sem tengdust hruninu. Á meðal fyrstu starfsmanna saksóknara Fréttablaðið bar fullyrðingar Jóns Óttars Ólafssonar undir Ólaf Þór Hauksson, sérstakan saksóknara, sem hafnar þeim. Embættið tjáir sig ekki að svo stöddu um þessar fullyrðingar fyrrverandi starfsmanns að öðru leyti en því að það hafnar að nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað varðandi þau tilvik sem um er spurt af hálfu blaðamannsins. segir Ólafur í svari til Fréttablaðsins. ➜ Hafnar ásökunum Jóns Óttars staks saksóknara og dómara var gríðarlega náið og hlutirnir voru gerðir í gegnum síma. Í eitt skipti fór ég ásamt einum lögreglumanni og náði í úrskurð heim til dómara. Þegar það var gert opinbert varð allt vitlaust. Þá fór varnarmekan- isminn í gang aftur. Menn fóru að dreifa sögum um það að ég væri að ljúga af því að ég fengi borgað fyrir þetta og ég væri bara á launum hjá þessum fyrrverandi bankamönn- um, Hreiðari Má, Sigurði og fleir- um,“ segir Jón Óttar. Hann segir að það hafi verið mikið samráð milli sérstaks sak- sóknara og Fjármálaeftirlitsins annars vegar og sérstaks saksókn- ara og slitastjórna og skiptastjóra hins vegar. Samstarfið hafi gengið svo langt að starfsmenn sérstaks saksóknara hafi leiðbeint starfs- mönnum FME um það hvernig kærur frá FME til sérstaks sak- sóknara ættu að líta út. „Og það var samstarf milli dómara og sérstaks frá upphafi sem er mjög óheppi- legt af því að sakborningarnir hafa engan fulltrúa í þessum samskipt- um. Það er enginn lögmaður sak- borninga sem er vitni að samskipt- um dómara og sérstaks. Þetta er svo rosalega mikið í gegnum síma,“ segir hann. Hann segir að eitt sinn hafi hann farið og sótt heimild til hlerunar til dómara. Þegar dómar- inn veitti heimildina hafi hann sagt: „Náið svo þessum andskotum.“ Ertu bitur eftir þessa atburða- rás? „Já, ég get ekkert neitað því. Ég neita því ekkert að ég er bitur út í marga aðila inni í kerfinu eftir þessa atburðarás, hvernig þeir tóku á þessu,“ segir Jón Óttar og bætir því við að hann telji að annað væri ómögulegt. Hann segist hins vegar gera sér betur grein fyrir því að núverandi starfsmenn kerfisins séu ekki vont fólk. Heldur sömu fórn- arlömb ákveðins brenglaðs hugar- fars gagnvart rannsókn opinberra mála og hann var sjálfur þegar hann starfaði innan kerfisins. „Þess vegna er ég líka að benda á þetta. Af því að þetta verður ekkert lagað nema við förum yfir þetta á hlut- lausan, rólegan og yfirvegaðan hátt. Við bara skoðum þetta kerfi okkar. Eins og þetta sem búið er að benda á að í yfir 99 prósentum tilvika heim- ila dómarar hlustun eftir að löggan biður um það,“ segir Jón Óttar. Það sé ótrúlegt að í svo mörgum tilfell- um sé fallist á beiðni lögreglunnar. Finnst þér fleiri þvingunarúr- ræðum en hlerunum hafa verið misbeitt? „Hlustanirnar voru það sem maður varð mest var við. Þær eru gríðarlega íþyngjandi fyrir þá sem lenda í því. Rannsakarar komast þannig á snoðir um dýpstu leyndarmál einstaklinga. Hand- tökurnar voru framkvæmdar án aðkomu dómara.“ Hann segir að á þeim tíma sem hann var starfsmað- ur embættisins hafi hann hvorki gagnrýnt gæsluvarðhaldsúrskurði né símhleranir. „Ég get ekki sagt að ég hafi séð þetta í sama ljósi og ég geri nú,“ segir hann. Það sé hans mat í dag að þvingunarúrræðum hafi verið beitt í of ríkum mæli, en það hafi ekki verið hans mat þá. Ólafur Hauksson, sérstakur sak- sóknari, og aðrir saksóknarar hjá embættinu horfa kannski núna sömu augum og þú á það núna? „Þeir hafa ekki verið kærðir sjálf- ir, þannig að þeir horfa allt öðrum augum á þetta. Þeir hafa ekki lent í því að vera í fréttunum á kvöld- in marga daga i röð. Þeir hafa ekki lent í því að fara í Hagkaup í Garða- bæ um miðnætti af því að maður veigraði sér við að hitta annað fólk. Það er það sem vekur mig. Þegar ég lendi sjálfur í þessu og fæ á mig kerfið af öllu afli,“ segir hann. Sannarlega framin brot Jón Óttar segist vonast til þess að hægt verði að gera hrunið upp með aðeins afslappaðri hætti. „Að þeir fari í fangelsi sem eiga að fara í fangelsi. Sannarlega voru framin brot þarna. Ég er alls ekki að segja að þetta hafi allt verið búið til af sérstökum saksóknara. Ekki til í dæminu. Það eru klárlega mörg brot þarna og menn eiga að fara í fang- elsi. En við eigum að gera þá kröfu að embætti sérstaks saksóknara fylgi lögum í landinu og rannsaki þetta rétt á rólegan og yfirvegaðan hátt,“ segir hann. En kannski sé til of mikils mælst að ætlast til þess, vegna þess and- rúmslofts sem ríkti þegar rann- sóknin átti sér stað. „Það voru allir öskrandi á blóð og að það yrðu ein- hverjir settir í fangelsi. Ég held að sú pólitíska pressa, fjölmiðlafár og múgæsing sem var í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum, það gerðist bara aftur. Þrýstingurinn breytti okkur öllum sem vorum að vinna í þessu,“ segir hann. Það var allt of mikill þrýstingur á starfsmenn sérstaks saksóknara um að ná fram árangri í rannsóknum og sakfellingum. Ertu með öðrum orðum að segja að stofnun sérstaks saksóknara hafi verið mistök? „Ég held eftir á að hyggja, að þá hefði átt að taka þennan pening sem fór í að stofna sérstakan saksóknara og styrkja hina venjulegu lögreglu í land- inu. Flestar löggurnar sem voru að vinna hjá sérstökum voru að vinna hjá lögreglunni í Reykjavík eða öðrum lögregluembættum sem segir manni bara að þessar sömu löggur hefðu alveg getað unnið þessi mál á sínum gömlu stöðum,“ segir hann. Til dæmis hefði mátt efla efnahagsbrotadeild ríkislögreglu- stjóra eða fjármunabrotadeild lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu. hliðina. Hún hafði gríðarleg áhrif á fjölskylduna og alla í kringum mig og ég var atvinnulaus mánuðum saman. Þetta hafði rosaleg áhrif á mann að vera kærður og þegar fyrrverandi vinnufélagar manns til margra ára eins og Hólmsteinn Gauti sökuðu mann um verknað sem margra ára fangelsi lá við, með því að fara af stað með ásakanir sem þeir vissu að voru ekki réttar, halda eftir gögnum sem sönnuðu sakleysi mitt að lokum, og hafa til þessa dags ekki sýnt þann manndóm að biðjast afsökunar,“ segir Jón Óttar. „Ég vildi að ég gæti sagt að augu mín hefðu opnast á meðan ég starf- aði hjá sérstökum. En ég var fastur eins og aðrir í þessu brenglaða hug- arfari,“ segir Jón Óttar. Hann segist þó hafa misst nokkuð trúna á sér- stakan saksóknara um vorið 2011. „Það var ákveðið atriði sem olli því að ég fór að missa trúna. Á vor- mánuðum 2011 er ákveðið að halda seminar þar sem öllum rannsökur- um hjá embættinu er smalað saman upp í lögregluskóla, þar sem á að stilla saman strengi þannig að menn séu sammála um það hvað teljist til umboðssvika. Það var vegna þess að yfirmenn hjá sérstökum, eins og Sigurður Tómas Magnússon, fóru að skynja það þegar þeir gengu á milli vinnuhópanna að það var mjög mis- jafn skilningur á því hvað markaðs- misnotkun er og hvað umboðssvik eru og hvernig samspil þessara brota er í raun og veru. Og þetta er 2011, þarna erum við búin að rann- saka í tvö ár og eigum þá fyrst að fara að stilla saman strengi varð- andi hvað umboðssvik eru. Og þarna verður maður að spyrja sig; ef lögg- an veit ekki hvað umboðssvik eru 2011 hvernig áttu bankamenn árið 2008 þá að vita það?“ Hleraði símtöl verjenda Jón Óttar segist hafa orðið þess strax áskynja að sérstakur sak- sóknari hleraði símtöl verjenda við skjólstæðinga, en slíkt er óheimilt samkvæmt sakamálalögum. Hann segist hafa nokkrum sinnum orðið vitni að því þegar símtöl lögmanna hafi verið spiluð í hátalara á borði svo saksóknarar og aðrir gætu heyrt hvað mönnum fór á milli, er lögmennirnir ráðlögðu sakborn- ingum og fóru yfir vörn þeirra. „Stemmingin í kringum þetta var eins og hjá krökkum í sælgætisbúð; nú vissu menn betur hvernig verj- endur sakborninga myndu stilla vörninni upp,“ segir Jón Óttar. Hann hafi sagt Sigríði Friðjóns- dóttur ríkissaksóknara frá þessu árið 2012 í greinargerð sem hann skilaði til hennar vegna rannsókn- ar á þagnarskyldubrotunum. „Það er í greinargerðinni okkar nákvæm lýsing á þessu, að það er verið að hlusta á símtöl lögmanna. Samt segist hún ekki hafa haft vitn- eskju um þetta fyrr en í fyrra og þá hafi öll málin verið fyrnd. Árið 2012 voru málin ekkert fyrnd. Hún hefði alveg getað rannsakað þetta,“ segir Jón Óttar. „Það er líka það sem kom manni svolítið á óvart hvað kerfið ver sig. Það lokast allt og það pass- ar upp á að svona spyrjist ekki út. Ríkissaksóknari gerði ekki neitt. Ég hefði haldið, miðað við hvernig þeir töluðu við mig um það sem sérstak- ur hafði gert, að þeir myndu rann- saka sérstakan saksóknara,“ segir hann. Jón Óttar starfar núna sem sjálf- stæður ráðgjafi, meðal annars fyrir Samherja. Að öðru leyti harðneit- ar hann því að hafa nokkurn tíma þegið laun frá mönnum sem hafi haft réttarstöðu sakborninga hjá embætti sérstaks saksóknara. „Ég hef verið sakaður á opinberum vett- vangi um að þiggja greiðslur fyrir að upplýsa um brot í starfsemi sér- staks saksóknara og því neita ég alfarið. Ég hef aldrei fengið greitt fyrir að upplýsa um það sem miður fór. Aldrei,“ segir hann, spurður um málið. Hann hafi hins vegar verið ósátt- ur, eftir að hann lét ríkissaksókn- ara vita að símtöl lögmanna og sakborninga væru hleruð, við að ekkert væri gert í því. „Í fyrra- haust þegar ég sá að ekkert var að fara að gerast lét ég verjendur sakborninga vita um hlustanir sem fengust með ólögmætum hætti að mínu mati. Þar sem samstarf sér-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.