Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 78

Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 78
FÓLK|HELGIN STYRKJA TENGSLIN „Það verður frábært að hitta keramik- meistara svona víða að og styrkja tengsla- netið, fá nýjar hugmyndir og sjá hvernig vinna má með efnið á öðruvísi hátt.“ Við vorum þrjár valdar fyrir Íslands hönd til að sýna okkar verk á þessari stóru sýningu. Það er ótrúlega skemmtilegt og mikill heiður,“ segir Hanna Dís Whitehead vöruhönnuður en hún, ásamt Hildi Ýri Jónsdóttur skartgripahönnuði og Ingibjörgu Guðmundsdóttur keramiklistamanni, tekur þátt í Evr- ópska gler- og leirlistatvíæringnum í Danmörku, Euro- pean Ceramic Context 2014 í Bornholm. Sýningarnar eru tvær og má þar sjá verk eftir 95 lista- menn frá þrjátíu Evrópulöndum: Ceramic Art þar sem sýnd eru verk listamanna og hönnuða sem hafa starfað í lengri tíma, og New Talent þar sem eru verk eftir hönn- uði og listamenn yngri en 35 ára. Hildur Ýr sýnir á Ceramic Art en Hanna Dís og Ingi- björg sýna á New Talent. Sýningarnar verða opnaðar í dag og standa fram til loka nóvember. „Hér er hægt að sjá þverskurð af því sem er að gerast í keramikheiminum í Evrópu,“ segir Hanna Dís. „Það verður frábært að hitta keramikmeistara svona víða að og styrkja tengslanetið, fá nýjar hugmyndir og sjá hvernig vinna má með efnið á öðruvísi hátt. Ég get vel ímyndað mér að einhverjir framleiðendur og aðilar frá galleríum og söfnum skoði sýningarnar svo að það geta ýmis tækifæri falist í að taka þátt.“ Sérstök valnefnd mun einnig velja einn listamann af hvorri sýningu sem hún telur skara fram úr. Verðlaunin eru 10.000 evrur, eða um 1,5 milljónir íslenskra króna. „Valnefndin skoðaði verkin fyrir helgi og mun tilkynna um verðlaunahafa um helgina. Það verður mjög spenn- andi,“ segir Hanna Dís, sem hlakkar til að eyða helginni ytra. „Það eru margar sýningar samhliða þessari í gangi hér á svæðinu svo það verður stíft prógramm að skoða yfir helgina. Við sendum vörurnar okkar út fyrir mán- uði og þurftum því ekkert að stressa okkur á því að setja upp sýninguna. Við mætum bara og njótum,“ segir Hanna Dís. MIKILL HEIÐUR AÐ TAKA ÞÁTT HÖNNUN Þrír íslenskir hönnuðir og listamenn taka þátt í Evrópska gler- og leirlistatvíæringnum í ár. Tíu þúsund evrur verða veittar tveimur þátttakendum á sýningunni sem þykja skara fram úr. Sýningarnar verða opnaðar í dag og standa fram til loka nóvember. MIKILL HEIÐUR Hanna Dís Whitehead vöruhönn- uður er einn þeirra þriggja íslensku listamanna og hönnuða sem valdir voru til þátttöku á Evrópska gler- og leirlistatvíæringnum í Danmörku. MYND/GVA DIALOG Verk eftir Hönnu Dís Whitehead sem hún sýnir á New Talent, Evrópska gler- og leirlistatvíæringnum í Danmörku. REACTION OF DWELLING Verk eftir Ingibjörgu Guðmundsdóttur sem sýnt er á New Talent. MELTING TOGETHER Verk eftir Hildi Ýri Jónsdóttur skartgripahönnuð en hún sýnir á Ceramic Art. Kaffi og kleinur,* pylsur og djús frá kl. 13:00* Ævar vísindamaður kemur kl. 14:00 Ef keypt er fyrir 6.000 kr. eða meira fylgir gjöf. FJÖLSKYLDUSTEMMING LAUGAR DAG ! Allt að 90% afsláttur Yfir 4000 titlar frá öllum helstu útgefendum landsins! 99 kr. Þegar öllu er á b ot ni nn h vo lf t * Gjafir fyrir öll tækifæri! OPIÐ ALLA HELGINA KL. 10–19! RISALAGERSALA á Fiskislóð 39
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.