Fréttablaðið - 13.09.2014, Síða 88

Fréttablaðið - 13.09.2014, Síða 88
13. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 að ráðskast með hann, skipa málum, skipta í flokka, búa til valdastöður og síðast en ekki síst það sem er þeirra líf og yndi – berjast um völdin. Þessi „kenning“ mín um töluna er auð- vitað sett fram í gamni. En hitt er þó satt að það virðist þurfa ótrúlega lítinn hóp manna til að kveikja þörf sumra fyrir valdapot og einkavinavæðingar í ýmsum skilningi. Mér er ævinlega minnisstæð frétt úr seinni kvöldfréttatíma sjónvarps- ins fyrir tuttugu árum eða svo, þetta var löng frétt og viðtöl við nokkra einstaklinga sem var mikið niðri fyrir og völdu hver öðrum hin verstu hrakyrði – en málið var harðsvíruð valdabarátta í Dýraverndar- félagi Íslands, eða einhverju sambærilegu batteríi. Og ég sat fyrir framan sjónvarpið og undraðist stórum – ég hafði haldið að ef einhvers staðar gæti ríkt eindrægni og samvinnufýsi, þá væri það í svona sam- tökum. En svo reyndist þá ekki vera, og best að taka fram að eftir mínum skilningi snerist baráttan í dýraverndarfélaginu ekki um mismunandi áherslur í starfinu, heldur bara um eintóm „völd“ í kompaní- inu. Gullskipið Þetta hafa auðvitað margir hugsað áður. Ég veit ekki hvort er enn þá lesin í skólum bókin Flugnahöfðinginn eftir enska rit- höfundinn William Golding, það var gert á minni tíð. Þetta er fín bók, minnir mig, og hún fjallar um einmitt þetta, makt- sýkina sem virðist mannfólkinu í blóð borin. Hópur enskra skóladrengja verður strandaglópur á eyðieyju, en í stað þess að vinna saman að því að reyna að komast burt frá eyjunni leysist samfélag þeirra upp í valdabaráttu, klíkuskap og að lyktum kúgun og ofbeldi. Og spurningin er þessi – hafa drengirnir leiðst út í „villimennsku“ vegna þeirrar neyðar sem þeir búa við á eyjunni, eða kemur þeirra rétta mannlega eðli þvert á móti í ljós þegar hjúpur sið- menningarinnar máist af þeim? Merkileg drög að svari við þeirri spurn- ingu (jafnvel merkilegri en valdabaráttan í dýraverndarfélaginu!) má finna í sögunni um hollenska stórskipið Batavíu og örlög áhafnar þess. Og hér og reyndar í næstu Sjö er töfratala, segir fólk. Ég hef aldrei fengið neina sérstaka skýr-ingu á því af hverju allir virðast sammála um þetta, og hafa verið frá örófi alda. Ekki erum við með sjö fingur, ekki eru sjö sólir á himni. En nú hef ég fundið skýringuna. Ég las nefnilega um daginn að allar rannsókn- ir sem gerðar hafa verið á hátterni manna leiða víst í ljós að mesti hugsanlegi mann- fjöldinn sem getur unnið saman án þess að byrja að skiptast upp í klíkur eða valda- píramída sé sex. Ef sjö eru samankomn- ir, þá fer fólk óhjákvæmilega að skipa sér upp; þá verða alltaf einhverjir „útundan“ í þeim skilningi að þeir fela öðrum að taka ákvarðanir fyrir sig. Stundum gera menn það sjálfviljugir og þá má segja að full- trúalýðræðið sé orðið til. En stundum taka hinir sterkustu í hópnum einfaldlega völd- in og krumla einræðisins læsist um hinn sjö manna hóp. Kenning mín er því sú að það séu valda- potarar og félagsmálatröll sem hafa með- vitað eða ómeðvitað komið á þeim skilningi að sjö sé sú mikla töfratala, sem flestir virðast trúa. Því hinir maktsjúku vita af eðlishvöt rándýrsins að strax og sjö manna hópur er samankominn, þá sé hægt að fara FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson furðar sig á því hvað maðurinn er alltaf fljótur að efna til valdabaráttu og frama- pots, þótt samvinna virðist affarasælli. VALD OG MAKTSÝKI Á EYÐIEYJUM Hinir verðandi uppreisnar- menn hófust handa með því að ráðast grímu- klæddir að hinni góðu frú Lucr- eziu og svívirða hana með því að afklæða hana og maka alla út í manna- skít og mun ætlun þeirra hafa verið sú að hrista þannig saman lið sitt gegn Pelsaert. grein líka ætla ég að rekja þá sögu, lesend- um Fréttablaðsins til lærdóms. Það var í október árið 1628 sem Batavía lagði úr höfn í hollenska bænum Texel. Skipið var í eigu Sameinaða hollenska verslunarfélagsins og í sinni jómfrúrferð, glæsilegt kaupfar, og var ferðinni heitið til samnefndar borgar, Bataviu, á eyj- unni Jövu í þeim eyjaklasa sem Evrópu- menn kölluðu þá Hollensku Austur-Indíur einu nafni. Þá voru aðeins rúm hundrað ár síðan Evrópumenn hófu úthafssigling- ar og landafundi en þeir voru komnir um allar koppagrundir með fána sína, virki og verslunarstaði; borgin Batavía heitir nú Djakarta, höfuðborg Indónesíu. Þaðan fluttu Hollendingar heim ofsadýr krydd, fínustu silkiklæði, gimsteina og margvís- legar gersemar. „Gullskipið“ sem Íslend- ingar kalla svo, Het Wapen van Amster- dam, var einmitt að koma drekkhlaðið slíkum farmi þegar það fórst á Skeiðarár- sandi 1667. En 40 árum áður lagði Batavía sem sé upp í langa siglingu til Austur- Indía og voru 350 manns um borð, þar af 38 farþegar, karlar, konur og börn, en hinir voru sjómenn, kaupmenn og hollenskir hermenn. Skipstjóri var Ariaen Jakobsz, gamalreyndur skipstjóri og sagður afar góður sjómaður en um forystuhæfileika hans lék meiri vafi. Raunar var hann ekki æðsti stjórnandinn um borð, honum var ætlað að hlýða skipunum svokallaðs yfir- kaupmanns, en sá háttur var hafður á á skipum Hollendinga. Og Jakobsz líkaði stórilla að vera í reynd undirsáti yfir- kaupmannsins um borð sem hét Francisco Pelsaert, ekki síst vegna þess að þeir voru kunnugir og höfðu áður eldað grátt silfur og lögðu síðan fæð hvor á annan. Á langri og erfiðri siglingu varð gremja Jakobsz í garð Pelsaert æ meiri og kom margt til, meira að segja kvennamál því skipstjórinn reyndi ákaft að stíga í vænginn við gifta konu í hópi farþeganna sem Lucrezia hét en hún leitaði þá athvarfs hjá Pelsaert. Uppreisn Á siglingunni hafði Jakobsz eignast óvænt- an bandamann í Jeronimusi Cornelisz, ungum manni, sem gegndi stöðu undir- kaupmanns í leiðangrinum. Hann átti því að vera í liði Pelsaert en virðist fljótlega hafa farið að grafa illilega undan yfir- manni sínum. Um ævi Cornelisz fram að siglingunni er fátt markvert vitað, nema hvað hann kann að hafa tilheyrt róttæk- um trúflokki þar sem frjálslega þótti farið með ýmis hinna strangari siðalögmála sem annars voru í hávegum höfð með hol- lenskum. Eftir að Pelsaert ávítaði Jakobsz opinberlega fyrir stórkarlalegt fyllerí meðan staldrað var við í Höfðaborg tók skipstjórinn þá ákvörðun að gera uppreisn gegn yfirkaupmanninum og mun Cornelisz hafa hvatt hann mjög til dáða. Fyrirhugað var að Pelsaert og helstu stuðningsmenn hans um borð yrðu teknir höndum, sömuleiðis sá flokkur hermanna sem um borð var, og þessir menn yrðu allir umsvifalaust teknir af lífi. Síðan legðu uppreisnarmenn hald á öll þau miklu fémæti sem um borð voru. Skipið myndu þeir svo nota til sjórána, en Batavía var búin þó nokkrum fallbyssum og var í alla staði öflugt og hraðskreitt skip. Jakobsz byrjaði nú á því að sigla Batavíu af réttri leið til Jövu og stefndi í staðinn upp að ströndum Ástralíu en þá var skammt síðan evrópskir sæfarar höfðu uppgötvað til- vist Ástralíu, sem enn þá hafði ekki einu sinni hlotið nafn, heldur var bara kölluð Óþekkta landið – og enginn Evrópumaður hafði enn svo mikið sem stigið þar á land. Hinir verðandi uppreisnarmenn hófust handa með því að ráðast grímuklæddir að hinni góðu frú Lucreziu og svívirða hana með því að afklæða hana og maka alla út í mannaskít og mun ætlun þeirra hafa verið sú að hrista þannig saman lið sitt gegn Pelsaert. Þetta er ekki óþekkt, að þátt- taka í grimmdarverkum sé skipulögð til að þétta raðir fylgismanna kúgunarseggja. Yfirkaupmaðurinn brást hart við, hann lét dæma til dauða eina grímumanninn sem Lucrezia hafði borið kennsl á en ákvað að bíða með að hengja hann þar til Batavía hefði landsýn. En þá gripu örlögin inn í með algjörlega ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Aðfaranótt hins 4. júní 1629 strand- aði Batavía á kóralrifi sem maraði í hálfu kafi, eitthvað um sjötíu kílómetra vestur af ströndum ástralska meginlandsins. Þar reyndist vera svolítill eyjaklasi mjög lág- reistra kóraleyja. Langflestir komust lif- andi til lands en skipið Batavía tók fljótt að liðast í sundur og horfurnar voru ekki vænlegar, engir vissu um ferðir skipsins svo sunnarlega og þótt ýmislegt væri til matar á eyjunum var bersýnilega mjög lítið um vatn. Þá tóku þeir Pelsaert og Jak- obsz höndum saman og hreinlega stungu af með 30 manns á opnum skipsbátnum og lítilli jullu að auki og freistuðu þess að sigla alla leið til Batavía á Jövu eftir hjálp. Og það tókst raunar – en þegar þeir sneru loks til baka blasti við þeim fáránlegt samfélag á kóraleyjunum smáu; grimmt samfélag ofbeldis, morða og nauðgana; viðurstyggilegt samfélag Cornelisz aðstoð- arkaupmanns sem hafði tekið sér konungs- nafn yfir aumustu kóraleyjum heimsins og ríkti í hömlulausri maktsýki sem einhver grimmasti einræðisherra er sögur þekkja, þótt yfir smáu ríki væri. Ok segir af því eftir viku. VELDI Hollendingar urðu forríkir á verslun sinni við fjarlægar slóðir. Listir blómguðust. Jan Vermeer málaði þessa mynd af djörfum dáta og ungri stúlku, en á veggnum er kort yfir siglingaleiðir og nýlendur. GULLSKIPIÐ Þessi eftirmynd Batavíu var smíðuð á árunum 1985-95. Menntaskólinn við Hamrahlíð www.mh.is STÖÐUPRÓF - PLACEMENT TESTS ON 17. SEPTEMBER 2014 Stöðupróf á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins verða haldin 17. september kl. 16:00 í Menntaskólanum við Hamrahlíð í eftir- töldum tungumálum: albönsku, filipísku (tagalog), finnsku, hollensku, japönsku, kínversku, króatísku, lettnesku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, svahílí og víetnömsku. Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu. Prófgjald, kr. 8000 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslufrestur er til hádegis 17. septem- ber. Nauðsynlegt er að við greiðslu komi fram nafn og kennitala próf- taka. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt. Skráning á/Registration on www.mh.is Placement tests (for Secondary School credit) in the following languages will be held on September 17th at 4 pm. Placement tests in Albanian, Chinese, Croatian, Dutch, Filipino (tagalog), Finnish, Japanese, Latvian, Lithuanian, Portugese, Polish, Russian, Swahili and Vietnamese . For more information call the school office tel. 595-5200. Everyone sitting the test must show an ID with a picture. The fee, kr. 8000 per test, should be paid to the account of the Menntaskólinn við Hamrahlíð bank 323 – 26 – account no. 106, id. 460269-3509 before noon on Sept- ember 17th. Please provide the name and identification number of the examinee when paying. Only those that have paid can sit the exam. Rektor
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.