Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 112

Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 112
13. september 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 68 HANDBOLTI Barcelona, með Guðjón Val Sigurðs- son í broddi fylkingar, tryggði sér í kvöld heims- meistaratitil félagsliða. Barcelona vann þá sannfærandi sigur, 34-26, á Al Sadd frá Katar í úrslitaleiknum. Al Sadd kom skemmtilega á óvart með því að leggja Flensburg í undanúrslitunum. Leikmenn Al Sadd stóðu í spænska stórliðinu í fyrri hálfleik og munaði aðeins tveimur mörkum á liðunum í hálfleik, 16-14. Börsungar stigu aftur á móti á bensínið í síðari hálfleik og keyrðu yfir heimamenn. Guðjón Valur skoraði fjögur mörk fyrir Barcelona í leiknum. Flensburg tók síðan bronsið með því að leggja Al Jaish, 27-17, í leiknum um þriðja sætið. - hbg Barcelona heimsmeistari SPORT FÓTBOLTI Þrátt fyrir að draum- urinn um sæti á Heimsmeist- aramótinu 2015 í Kanada sé úti var létt yfir stelpunum okkar á æfingu í gær. Freyr Alexanders- son, þjálfari íslenska landsliðs- ins, gerði töluverðar breytingar á leikmannahópnum og gaf yngri leikmönnum tækifæri. Greinilegt að hann er byrjaður að hugsa til framtíðar en leikmennirnir vita að leikirnir gegn Ísrael á morgun og Serbíu á miðvikudag skipta máli. Góð stemming í hópnum Þrátt fyrir að leikmannahópur- inn sé í yngri kantinum má þó sjá reynslumikla leikmenn á borð við Dóru Maríu Lárusdóttur og Þóru B. Helgadóttur sem hafa leikið 106 leiki fyrir Íslands hönd. Þóra segir að stemmingin í hópnum sé mjög góð fyrir leikina. „Stemmingin er mjög góð, við erum að vinna okkur upp úr von- brigðunum eftir síðasta leik en það gengur vel og einbeiting liðsins er á næsta verkefni sem er undan- keppni EM. Markmiðið er að halda áfram að byggja upp leik liðsins og við þurfum sex stig til þess að halda sæti okkar á styrkleikalist- anum,“ sagði Þóra sem vonast til þess að næsta kynslóð sé tilbúin að taka við keflinu. „Freyr mun gera breytingar á byrjunarliðinu og það munu koma stelpur inn sem vilja sýna sig og sanna fyrir næstu verkefni. Það er alltaf hvatning að spila fyrir landsliðið og þær koma með kraft og jákvæðni inn í þetta. Þær eru ekki lengur ungar heldur eru þær tilbúnar að fara að taka við lands- liðinu af okkur reynslumeiri leik- mönnunum. Ég hef fulla trú á því að þær séu tilbúnar til þess.“ Kaflaskipti hjá liðinu Þóra hefur ákveðið að leggja landsliðshanskana á hilluna en hún gerir ráð fyrir að hætta í fótbolta eftir að íslenska tímabilinu lýkur. „Þetta er ákvörðun sem ég tók og þetta eru síðustu landsleikirn- ir mínir. Það eru auðvitað blendn- ar tilfinningar en ég er ánægð að hafa tekið þetta skref. Ég hef átt margar góðar stundir með lands- liðinu, kynnst frábæru fólki og skil sátt við þetta,“ sagði Þóra sem bar landsliðsþjálfaranum vel söguna. „Hann spurði mig hvort það væri eitthvað sem gæti breytt skoðun minni en hann virti ákvörðun mína þegar hann sá hversu ákveðin ég var. Hann skil- ur þetta og ber virðingu fyrir þessari ákvörðun.“ Þóra átti erfitt með að velja hápunkt landsliðsferilsins eftir sextán ár með landsliðinu. „Stórmótin standa upp úr, þau voru frábær og bæði á sinn hátt. Svo er gaman að sjá bætinguna á landsliðinu síðan ég byrjaði. Liðið hefur tekið stöðugum framförum ár eftir ár síðan ég byrjaði og núna eru að koma ákveðin kynslóða- skipti. Ég hef fulla trú á því að þessar stelpur taki við keflinu af okkur eldri leikmönnunum,“ sagði Þóra sem gerir ekki ráð fyrir að taka annað tímabil með Fylki. „Ég held ekki en ég útiloka ekki neitt,“ sagði Þóra sem var ekki viss hvort hana myndi klæja í fing- urna næsta vor. „Það gæti verið, þá verð ég bara að tækla það þegar að því kemur.“ Erum búin að sleikja sárin Freyr Alexandersson, þjálfari liðs- ins, segir að leikmenn liðsins séu búnir að ná sér eftir tapið gegn Danmörku á dögunum. „Við erum búin að sleikja sárin eftir tapið. Við vildum fá miklu meira út úr leiknum því hann spil- aðist bara eins og við vildum. Við þurfum að komast yfir hann og vonandi náum við því með sigri hér á morgun,“ sagði Freyr sem ætlar að gera breytingar á byrj- unarliði íslenska liðsins. „Þær sem eru að koma nýjar inn og þær sem eru að koma inn eftir meiðsli eru auðvitað hungraðar. Það verða engar róttækar breyt- ingar en það verða einhverjar.“ Um er að ræða ómetanlegan undirbúning fyrir næstu undan- keppni að mati þjálfarans enda leikur liðið sjaldan æfingaleiki. „Við fáum ekki marga æfinga- leiki og því er þetta gríðarlega mikilvægt í undirbúningi fyrir undankeppni EM 2017. Þessir leik- menn sem ég tek inn í þennan hóp þurfa að sýna hvað þær geta. Ég veit hvað hinar hafa fram að færa og þetta er kjörið tækifæri til þess að skoða hvað aðrir leikmenn hafa fram að færa til liðsins,“ sagði Freyr. Komið að kynslóðaskiptum Þóra B. Helgadóttir verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu gegn Ísrael í dag og gegn Serbíu á mið- vikudaginn en það verða síðustu landsleikir hennar. Þóra gerir ráð fyrir að leggja hanskana á hilluna í haust. FRAMTÍÐIN Þóra hefur fulla trú á því að kynslóðin sem taki nú við landsliðinu muni standa sig með prýði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kristinn Páll Teitsson kristinnpall@frettabladid.is HANDBOLTI „Maður er ekki alveg búinn að melta þetta enn þá. Hann tilkynnti okkur þetta eftir æfingu í hádeginu í dag (gær). Þetta var mikið sjokk fyrir alla,“ segir Hlynur Morthens, markvörður Vals í Olís-deild karla, en í gær fór Ólafur Stefánsson, þjálfari liðsins, í frí fram að áramótum til að sinna nýrri vinnu sem hann er kominn í. „Þetta er einhver mesta þruma úr heiðskíru lofti sem ég hef lent í. Maður var alveg orðlaus,“ segir Hlynur, sem var enn að melta tíð- indin er hann sat í ferjunni Baldri á leið til Vestmannaeyja seinni partinn í gær þegar Fréttablaðið ræddi við hann. „Ný stofnað fyr ir tæki Ólafs kall ar á mikla viðveru, meiri en svo að hægt sé sinna bæði þjálf- un og upp bygg ingu fyr ir tæk is ins af þeim metnaði og fag mennsku sem kraf ist er á báðum stöðum,“ sagði í fréttatilkynningu Vals- manna um ákvörðunina í gær, en við stjórnartaumunum taka þeir Jón Kristjánsson og Óskar Bjarni Óskarsson sem gerði Valsmenn að Íslandsmeisturum árið 2007. „Óli útskýrði þetta vel og stjórnin tilkynnti nýja þjálfara um leið. Menn fá núna helgina til að melta þetta, en þetta var mikið áfall,“ segir Hlynur, en hvernig tóku leikmenn liðsins fréttunum? „Það var misjafnt hljóðið í mönnum. Sumir voru mjög reið- ir og aðrir í miklu áfalli. Það er náttúrulega alveg fáránlega stutt í fyrsta leik þannig að tímasetn- ingin er ekki góð. En menn þurfa bara að þjappa sér saman. Við tökum bara góðan fund eftir helgi, leikmennirnir, og förum vel yfir þetta.“ Þegar Ólafur Stefánsson tók við Valsliðinu höfðu margir leikmenn áhuga á að spila undir handleiðslu þessa besta handboltamanns Íslands frá upphafi. Frændurnir og stórskytturnar frá Akureyri, Guðmundur Hólmar Helgason og Geir Guðmundsson, fluttu suður og gengu í raðir Vals svo dæmi má nefna. „Það er nefnilega málið. Ég fann sérstaklega til með þeim leikmönnum. En hann mun vera í kringum okkur og kíkja við,“ segir Hlynur, en telur markvörðurinn að Ólafur snúi aftur um áramótin eins og til stendur? „Ég vona það. Það er bara von- andi að hann komi þessu fyrir- tæki á ról. Hann vill gera það 100 prósent og það tekur bara mikinn tíma. Ég vona svo sannarlega að hann komi aftur.“ - tom Vona svo sannarlega að hann komi aft ur Leikmenn Vals brugðust misjafnlega við ákvörðun Ólafs Stefánssonar um að taka sér frí fram að áramótum. FRÍ Ólafur stýrir Valsliðinu ekki fyrri hluta Íslandsmótsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Ísland mætir Danmörku í umspili um sæti á EM U-21 árs landsliða sem fer fram í Tékklandi á næsta ári, en dregið var í Nyon í Sviss í hádeginu í gær. Leikið verður 8. og 14. október, en fyrri leikurinn fer fram í Danmörku. „Danska liðið er rosalega gott og spilar góðan fótbolta, en við tökum á því eins og við höfum tekið á öðrum liðum. Við verðum áfram skipu- lagðir,“ sagði Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U-21 árs liðsins, í samtali við Vísi eftir dráttinn í gær. Danir unnu átta leiki af tíu í sínum riðli í undankeppninni, en markatala þeirra var ekki af verri endanum, eða 37-9. Það er því ljóst að íslenska liðsins bíður erfitt verkefni. Flestir af bestu leikmönnum Dana sem eru gjaldgengir í U-21 árs liðið eru þegar orðnir fastamenn í A-lands- liðinu. Má þar meðal annars nefna Christian Eriksen, sem hefur þegar leikið tæplega 50 A-landsleiki, Pierre Højbjerg, eina af helstu vonarstjörn- um Bayern München, Jores Okore hjá Aston Villa, og Nicolai Boilesen, sam- herja Kolbeins Sigþórssonar hjá Ajax. Litlar sem engar líkur eru taldar á því að þeir verði með U-21 árs liðinu gegn Íslandi, en A-landslið Dana á leik við Albaníu 11. október og Portúgal þremur dögum seinna í undankeppni EM 2016. - iþs Sterkt lið Dana bíður Íslands GLEÐI Íslenska liðið mætir því danska í umspilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK FÓTBOLTI Alan Lowing, miðvörð- ur Pepsi-deildar liðs Víkings í knattspyrnu, skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við félagið í gær, en núgildandi samningur hans rann út eftir tímabilið. Lowing kom til Víkings frá Fram síðasta haust eftir tvö og hálft ár í Safamýrinni og hefur verið besti varnarmaður nýlið- anna í sumar. Sterkur varnarleikur er ein helsta ástæða þess að liðið er í bílstjórasætinu í Evrópubarátt- unni, en liðið mætir Val í Víkinni á sunnudaginn í gríðarlega mikil- vægum leik um fjórða sætið, það síðasta sem gefur þátttökurétt í forkeppni Evrópudeildarinnar á næsta ári. - tom Alan Lowing áfram í Víkinni TRAUSTUR Skotinn Alan Lowing hefur spilað vel í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KÖRFUBOLTI Íris Ásgeirsdóttir verður ekki með liði Hamars í Domino’s-deild kvenna í körfu- bolta á komandi tímabili, en hún ber barn undir belti. Þetta kemur fram á karfan.is. Íris, sem er 27 ára gömul, skor- aði 12,1 stig, tók 4,5 fráköst og gaf 2,6 stoðsendingar að meðal- tali í leik á síðasta tímabili. Hamar hefur leik í Domino’s- deildinni gegn Grindavík í Röst- inni 8. október. - iþs Hamar verður án fyrirliðans
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.