Fréttablaðið - 16.10.2014, Síða 2
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VINNUVERNDehf
Vinnuvernd ehf.
Brautarholt 28
105 Reykjavík
s: 5780800
www.vinnuvernd.is
vinnuvernd@vinnuvernd.is
SAMFÉLAGSMÁL „Mér finnst þetta
vera áreitni og ég myndi vilja að
Landspítalinn skoðaði þetta mál
alvarlega með hagsmuni sinna
skjólstæðinga að leiðarljósi,“ segir
Steinunn Rögnvaldsdóttir, félags-
og kynjafræðingur, um þann hóp
fólks sem kemur vikulega saman
fyrir framan kvennadeild Land-
spítalans til þess að biðja fyrir
eyddum fóstrum og viðhorfsbreyt-
ingum til fóstureyðinga, eins og
fram kom í Fréttablaðinu í gær.
Steinunn vinnur nú að bók
byggðri á reynslusögum kvenna
af fóstureyðingum ásamt Silju
Báru Ómarsdóttur alþjóðastjórn-
málafræðingi sem mun koma út á
næsta ári.
Steinunn veltir fyrir sér hvort að
hægt sé að fullyrða að engin kona
hafi orðið fyrir óþægindum af
völdum fólksins líkt og fram kom
í máli félagsráðgjafa á kvenna-
deild í fréttinni í gær. „Áreitni
þarf ekki alltaf að vera líkamleg.
Hafa þau spurt konurnar eða eiga
konur að þurfa greina frá því að
fyrra bragði? Einnig velti ég því
fyrir mér hvort sú kona sem þetta
fær eitthvað á sé líkleg til þess að
segja heilbrigðisstarfsfólki frá
því.“
Hún bendir á að fóstureyðing sé
læknisaðgerð og hana ætti ekki að
fordæma frekar en aðrar aðgerðir.
„Þegar ég heyri tal um að það eigi
að fækka fóstureyðingum spyr ég
á móti: Ætti að fækka hjartaþræð-
ingum? Báðar eru þetta mikilvæg-
ar og nauðsynlegar aðgerðir til að
fólk geti lifað góðu lífi. Ef það væri
eitthvert fólk fyrir utan deildina
þar sem ég væri að fara í hjarta-
þræðingu og væri að biðja fyrir því
að ég hefði ekki hegðað mér þannig
að ég þyrfti á hjartaþræðingu að
halda, myndi mér finnast það nið-
urlægjandi og mér myndi hrein-
lega finnast það vera áreitni.“
Steinunn segir fóstureyðing-
ar mikilvægan rétt kvenna til að
ráða yfir eigin líkama. Hún óttast
að ef tíðarandinn breytist í þjóð-
félaginu og slík viðhorf, sem fólkið
í bænahópnum viðrar, ná frekara
fylgi verði réttindi kvenna skert.
„Réttur kvenna til að fara í fóstur-
eyðingu hér á landi er ekki óskor-
aður. Það er ekki hægt að fara í
fóstureyðingu að eigin ósk heldur
þarf að láta samþykkja umsókn af
félagslegum eða heilbrigðisástæð-
um. Lögin eru því ekki beinlínis
hliðholl konum þó að praktíkin sé
það, þar sem maður verður ekki
mikið var við að konum sé synj-
að um þá beiðni. Ef tíðarandinn
breytist í þjóðfélaginu, líkt og fólk-
ið fyrir framan kvennadeildina
fer fram á, er aldrei að vita nema
það verði farið að fara meira eftir
lagarammanum og það verði ekki
jafnt einfalt fyrir konur að komast
í fóstureyðingu.“ hannarut@365.is
Nærvera bænahóps
áreitni fyrir konur
Vill að Landspítalinn athugi hvort ástæða sé til að meina bænahópi að biðja fyrir
framan kvennadeildina. Segir návist hans geta verið niðurlægjandi fyrir konur.
ÁREITNI Steinunn Rögnvaldsdóttir, kynja- og félagsfræðingur, vill að Landspítalinn
athugi hvort það sé skjólstæðingum hans fyrir bestu að bænahópnum sé leyft að
vera fyrir framan kvennadeildina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Heiðdís, er bara tómahljóð í
túlkasjóðnum?
„Ha?“
Túlkasjóður heyrnarlausra er tómur. Heiðdís
Dögg Eiríksdóttir, formaður Félags heyrnar-
lausra, segir að með því sé verið að útiloka
heyrnarlausa frá samfélaginu.
FÓLK Nemendur á yngsta stigi Laugarnesskóla heimsóttu Alþingishús-
ið í gær. Börnin voru full áhuga á þeirri virðulegu stofnun og spurðu
margra einlægra spurninga á leið sinni um húsið. Einn ungu gestanna
spurði meðal annars hvenær Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsæt-
isráðherra ætti afmæli, en svarið við þeirri spurningu er 12. mars.
- jhh
Nemendur á yngsta stigi Laugarnesskóla heimsóttu þingið:
Börnin áhugasöm um Alþingi
HVENÆR Á SIGMUNDUR AFMÆLI? Börnin spurðu margra spurninga en einum
þótti fróðlegast að vita hvenær Sigmundur Davíð ætti afmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þegar ég heyri tal um
að það eigi að fækka
fórstureyðingum spyr ég á
móti: Ætti að fækka
hjartaþræðingum?
Steinunn Rögnvaldsdóttir,
félags- og kynjafræðingur
HJÁLPARSTARF „Þetta er í fyrsta
sinn sem Rauði krossinn fer í
neyðarvarnaræfingu fyrir heila
þjóð,“ segir Björn Teitsson, upp-
lýsingafulltrúi Rauða krossins,
en samtökin hyggjast opna 48
fjöldahjálparstöðvar um allt land
til þess að kynna þjóðinni þau
úrræði sem í boði eru ef kemur
til hamfara. „Ekki bara fyrir
þjóðina heldur líka gestina okkar
sem eru hér staddir,“ bætir Björn
við.
Fjöldahjálparstöðvar Rauða
krossins eru alls um tvö hundruð
talsins en ákveðið var að ein-
beita sér að fjölmennari stöðum
á landinu.
Að sögn Björns er gosið í Holu-
hrauni ekki ástæðan fyrir því að
Rauði krossinn ákvað að ráðast
í æfinguna. „Það var í raun til-
viljun ein sem réð því að náttúr-
an hefur haldið okkur í heljar-
greipum undanfarnar vikur. En
við vitum að hamfarir geta orðið
á hvaða stundu sem er. Hvatinn
er samkomulag sem Rauði kross-
inn hefur haft við almannavarn-
ir síðan í Vestmannaeyjagosinu
árið 1974,“ útskýrir hann en eftir
gosið í Heimaey tóku hjálparsam-
tökin að sér að hlúa að þeim sem
verða fyrir áhrifum hamfara.
Klúbbur matreiðslumeistara
mun elda ofan í alla þjóðina hinn
þjóðlega rétt kjötsúpu og mörg
hundruð sjálfboðaliða Rauða
krossins standa vaktina.
Á vefsíðu Rauða krossins er að
finna upplýsingar um hvar hjálp-
arstöðvarnar eru. - nej
Þjóðinni og ferðamönnum kynnt þau úrræði sem í boði eru komi til náttúruhamfara hér á landi:
Neyðarvarnaræfing fyrir þjóðina
Í FYRSTA SINN Björn Teitsson er upplýs-
ingafulltrúi Rauða krossins en hann segir
þetta í fyrsta sinn sem æfing af þessu
tagi er haldin fyrir heila þjóð. MYND/BJÖRN
STJÓRNSÝSLA „Framsóknarflokk-
urinn upplýsti Ríkisendurskoð-
un um að tvö fyrirtæki hefðu
greitt til flokksins umfram það
sem lög heimila,“ segir Hrólfur
Ölvisson, framkvæmdastjóri
flokksins, í yfirlýsingu vegna
fréttar blaðsins um að Ríkisend-
urskoðun íhugi að kæra flokkinn
fyrir að taka við of háum fram-
lögum frá tveimur fyrirtækjum.
Samanlagt námu þau rúmum
100 þúsund krónum.
Hrólfur neitar því að nokkuð
saknæmt hafi átt sér stað.„Við-
brögð flokksins voru þau að
leiðrétta mistökin umsvifa-
laust þegar þau urðu ljós,“ segir
Hrólfur. - jme
Flokkurinn upplýsti málið:
Segir Framsókn
hafa gert rétt
STJÓRNSÝSLA ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, hefur ákveðið að stefna
íslenska ríkinu vegna vanefnda á
innleiðingu Evróputilskipana.
Íslenska ríkinu hefur ekki tek-
ist að innleiða tilskipun um merk-
ingar og staðlaðar vörulýsingar á
orkunotkun heimilistækja. Ísland
átti að innleiða tilskipunina fyrir
1. júní árið 2013.
Íslensk stjórnvöld hafa fengið
tækifæri til að gera bragarbót á
reglum sínum, innleiða tilskip-
unina eða koma með rök fyrir því
hvers vegna EES-reglurnar hafa
ekki verið samþykktar. Það að
fara með málið fyrir EFTA-dóm-
stólinn er lokaúrræði eftirlits-
stofnunarinnar. - sa
Ísland fyrir EFTA-dómstólinn:
ESA kærir ríkið
vegna vanefnda
HEILSA Foreldrar leikskólabarna
hafa margir áhyggjur af áhrifum
gosmengunar á börnin sín. Leik-
skólastjórar fylgjast flestir náið
með loftgæðum og hafa börnin inni
ef vafi er á að þau séu í lagi. Loft-
gæði voru í góðu lagi í Reykjavík
í gær, enda léku börnin sér þá úti.
En loftgæðin breytast oft hratt
og gosmengun hefur mælst í borg-
inni af og til síðustu daga.
Edda Margrét Jensdóttir, leik-
skólastjóri á Bakkaborg, segir
foreldra barnanna þar velta gos-
menguninni töluvert fyrir sér þar
sem börnin séu oft úti yfir daginn
og margir hafi áhyggjur af áhrif-
um hennar. Hún segir foreldra oft
hringja og athuga hvort aðstæður
hafi ekki örugglega verið kannaðar
en það sé alltaf gert áður en börnin
fara út.
Edda Margrét segir leikskóla-
stjóra skoða heimasíðu Umhverfis-
stofnunar þar sem hægt er að sjá
hversu mikil gosmengun mælist á
hverjum stað hverju sinni. Þá fylg-
ist Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
vel með gosmenguninni og send-
ir tilkynningar til allra grunn- og
leikskóla ef ástæða þykir til. - lvp
Margir foreldrar leikskólabarna hafa áhyggjur af áhrifum gosmengunar:
Leikskólar fylgjast með mengun
Á LEIKSKÓLA Loftgæðin breytast oft hratt og þá þarf að bregðast við því.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS