Fréttablaðið - 16.10.2014, Page 33

Fréttablaðið - 16.10.2014, Page 33
FIMMTUDAGUR 16. október 2014 | SKOÐUN | 33 Fyrir fimm árum skrifaði ég í Mbl. að bygging háskóla- sjúkrahúss (HS) í Foss- vogi væri langtum ódýrari, árlegur rekstrarkostnaður mikið lægri og aðkoma betri en við Hringbraut. Hring- braut var talið til tekna, að þá væru háskóli og spítali á sömu torfunni. Tímamæl- ing frá HÍ inn á bílastæði LSH við Hringbraut og LSH við Borgarspítalann sýnir innan við tveggja mínútna mun. Deild- ir HÍ stækka og nýjar bætast við. Það mun halda áfram og óhagræði aukast. Bygging HS í Fossvogi og flutningur læknadeildar HÍ í Land- spítalann við Hringbraut er lausn til frambúðar. Í leiðinni sparast tugir milljarða í bygginga- og rekstrar- kostnaði. Byggingunni við Hring- braut, sem nú er á teikniborðinu, má breyta í háskólabyggingu fyrir húmanísk fög. Raungreinar verða áfram á Melunum. Hér á eftir skal sýnt fram á að í Fossvogi er nóg pláss fyrir HS en mig skortir forsendur og tíma til að gera nákvæman samanburð á bygg- ingar- og rekstrarkostnaði. Hugar- reikningur sýnir langtum lægri kostnað í Fossvoginum. 1) Nægilegt pláss? Borgarspítalinn er að mestu sjö hæðir en hæst- ur tólf hæðir. Hægt er að byggja tvær álmur með legudeildum upp á 10–16 hæðir og milli þeirra 20–26 hæða turn fyrir skurðstof- ur, gjörgæslu o.fl. Landi hallar þannig að hagstætt er að hafa bílastæði á tveimur til þremur hæðum og keyra beint inn á þær án sérstaks ramps. Á þennan hátt er miklu meira pláss í Fossvogin- um en við Hringbraut. 2) Lægri byggingarkostnaður? Lóð í Fossvogi er margfalt ódýrari en lóðir við Hringbraut sbr. verð- mat á Vatnsmýri. Í Fossvogi er grunnur að mestu mómold, sem hægt er að moka upp og lítið um sprengingar. Grunnur undir hátt hús er mikið ódýrari en grunn- ar undir mörg lægri hús. Sama gildir um þak, lagnir o.fl. Hægt er að byrja strax á að grafa út lóðina, sem skapar mikla vinnu fyrir jarðvinnuverktaka. Steypt mannvirki geta hafist í beinu framhaldi af jarðvinnu. 3a)Lægri rekstrarkostnaður í Foss- vogi? Munur á rekstrarkostn- aði liggur fyrst og fremst í vinnu aðstöðu og launakostnaði. Vinnuaðstaða verður vart betri en með skurðstofur og það sem þeim tilheyrir í miðjuturni. Yfir- ferð starfsfólks verður minni og kostnaður við þrif lægri. Lyftur fyrir sjúklinga verða 100% aðskildar frá lyftum fyrir almenning. Ofan á miðjum turni er hægt að hafa þyrlupall með skýli fyrir þyrlu. Við Hringbraut verða áfram langir gangar fyrir flutning sjúklinga í og úr aðgerð eða rannsókn. Gangar, sem oft eru einnig notaðir af öðrum en sjúklingum og hjúkrunarfólki. Gangar sem óþægilegt er að láta ýta sér eftir og dýrt er að þrífa. 3b)Lægri óbeinn rekstrarkostn- aður? Fossvogur liggur betur við helstu umferðaræðum og styttra í vinnuna fyrir alla sem búa austan Háleitisbrautar, í Kópavogi og þar fyrir sunnan. Á hverjum degi allt árið styttist ferðatími og bensín sparast. Álag á Miklubraut snarminnkar, sem styttir líka keyrslu tíma þeirra, sem ekki vinna hjá HS. Árleg- ur sparnaður gæti þjóðhagslega skipt milljörðum. 4) Betri nýting núverandi húsnæð- is í Fossvogi og við Hringbraut? „Gamli“ Borgarspítalinn, sem er 30.000 m2 nýtist áfram 100%. Gamli Landspítalinn nýtist undir læknadeild Háskóla Íslands og ýmsa aðra starfsemi sem teng- ist háskólanum og er nú dreifð um bæinn. Meira rými skapast fyrir raungreinar á Melunum. Með tímanum myndast samfellt háskólaþorp. 5) Bætt aðstaða sjúklinga og lækna. Í Fossvoginum er gott útsýni og lágmarks fjar- lægð í og úr lyftu. Lyft- ur fyrir þá sem koma í heimsókn ná bara upp á hæðir með legudeildum. Mikið minni hávaðatrufl- un verður við lendingu þyrlu á turninn í Foss- vogi. Í dag töpum við læknum úr landi. Læknar hafa komið heim og flutt út aftur. Lægri byggingakostn- aði og árlegum rekstrarkostnaði væri vel varið til tækjakaupa, sem gæti snúið þessari þróun við. Er hægt að snúa við? Á fundi á Grand Hóteli fyrir fjórum árum sagði Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR, að of mörgum spurning- um væri ósvarað til þess að skyn- samlegt væri að halda áfram. Á sama fundi setti ég fram eitthvað af röksemdunum hér að ofan. Þá stóð upp embættismaður og sagði: „Það er búið að ákveða byggingu við Hringbraut og því verður ekki breytt!“ Þá ákvað ég að blanda mér ekki meir í þessa umræðu, sem var erfitt eftir að Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, kall- aði eftir faglegri gagnrýni í Við- skiptablaðinu. Það sem hér fer á undan tel ég bæði málefnalegt og faglegt. Björn sagði 2–3 milljarða sparast við rekstur á einum stað. Í því sambandi er rétt að benda á að meira sparast við rekstur eins sjúkrahúss í Fossvogi en við Hringbraut. Þó svo búið sé að eyða miklu í undirbúning borgar sig að breyta um staðsetningu, þegar dæmið er reiknað til enda. Ég á ekki von á að þessi grein hafi einhver áhrif á staðsetningu HS. Sagt var að ákvörðun um Hringbraut hafi verið tekin og henni verði ekki breytt. Arkitektafélaginu og Verkfræð- ingafélagi Íslands er til ævarandi skammar að láta þetta norska mix við Hringbrautina ganga yfir án þess að kryfja til mergjar á fag- legan hátt samanburð við Foss- vog. Hver ætlar að axla ábyrgð á spítala við Hringbraut? LANDSPÍTALI Sigurður Oddsson verkfræðingur ➜Arkitektafélaginu og Verkfræðingafélagi Íslands er til ævarandi skammar að láta þetta norska mix við Hringbrautina ganga yfi r án þess að kryfja til mergjar á faglegan hátt samanburð við Fossvog.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.