Fréttablaðið - 16.10.2014, Síða 33
FIMMTUDAGUR 16. október 2014 | SKOÐUN | 33
Fyrir fimm árum skrifaði ég
í Mbl. að bygging háskóla-
sjúkrahúss (HS) í Foss-
vogi væri langtum ódýrari,
árlegur rekstrarkostnaður
mikið lægri og aðkoma betri
en við Hringbraut. Hring-
braut var talið til tekna, að
þá væru háskóli og spítali á
sömu torfunni. Tímamæl-
ing frá HÍ inn á bílastæði
LSH við Hringbraut og LSH
við Borgarspítalann sýnir innan
við tveggja mínútna mun. Deild-
ir HÍ stækka og nýjar bætast við.
Það mun halda áfram og óhagræði
aukast. Bygging HS í Fossvogi og
flutningur læknadeildar HÍ í Land-
spítalann við Hringbraut er lausn til
frambúðar. Í leiðinni sparast tugir
milljarða í bygginga- og rekstrar-
kostnaði. Byggingunni við Hring-
braut, sem nú er á teikniborðinu,
má breyta í háskólabyggingu fyrir
húmanísk fög. Raungreinar verða
áfram á Melunum.
Hér á eftir skal sýnt fram á að í
Fossvogi er nóg pláss fyrir HS en
mig skortir forsendur og tíma til að
gera nákvæman samanburð á bygg-
ingar- og rekstrarkostnaði. Hugar-
reikningur sýnir langtum lægri
kostnað í Fossvoginum.
1) Nægilegt pláss? Borgarspítalinn
er að mestu sjö hæðir en hæst-
ur tólf hæðir. Hægt er að byggja
tvær álmur með legudeildum
upp á 10–16 hæðir og milli þeirra
20–26 hæða turn fyrir skurðstof-
ur, gjörgæslu o.fl. Landi hallar
þannig að hagstætt er að hafa
bílastæði á tveimur til þremur
hæðum og keyra beint inn á þær
án sérstaks ramps. Á þennan hátt
er miklu meira pláss í Fossvogin-
um en við Hringbraut.
2) Lægri byggingarkostnaður? Lóð
í Fossvogi er margfalt ódýrari en
lóðir við Hringbraut sbr. verð-
mat á Vatnsmýri. Í Fossvogi er
grunnur að mestu mómold, sem
hægt er að moka upp og lítið um
sprengingar. Grunnur undir hátt
hús er mikið ódýrari en grunn-
ar undir mörg lægri hús. Sama
gildir um þak, lagnir o.fl. Hægt
er að byrja strax á að grafa út
lóðina, sem skapar mikla vinnu
fyrir jarðvinnuverktaka. Steypt
mannvirki geta hafist í beinu
framhaldi af jarðvinnu.
3a)Lægri rekstrarkostnaður í Foss-
vogi? Munur á rekstrarkostn-
aði liggur fyrst og fremst í
vinnu aðstöðu og launakostnaði.
Vinnuaðstaða verður vart betri
en með skurðstofur og það sem
þeim tilheyrir í miðjuturni. Yfir-
ferð starfsfólks verður minni
og kostnaður við þrif lægri.
Lyftur fyrir sjúklinga verða
100% aðskildar frá lyftum fyrir
almenning. Ofan á miðjum turni
er hægt að hafa þyrlupall með
skýli fyrir þyrlu. Við Hringbraut
verða áfram langir gangar fyrir
flutning sjúklinga í og úr aðgerð
eða rannsókn. Gangar, sem oft
eru einnig notaðir af öðrum en
sjúklingum og hjúkrunarfólki.
Gangar sem óþægilegt er að láta
ýta sér eftir og dýrt er að þrífa.
3b)Lægri óbeinn rekstrarkostn-
aður? Fossvogur liggur betur
við helstu umferðaræðum og
styttra í vinnuna fyrir alla sem
búa austan Háleitisbrautar, í
Kópavogi og þar fyrir sunnan.
Á hverjum degi allt árið styttist
ferðatími og bensín sparast. Álag
á Miklubraut snarminnkar, sem
styttir líka keyrslu tíma þeirra,
sem ekki vinna hjá HS. Árleg-
ur sparnaður gæti þjóðhagslega
skipt milljörðum.
4) Betri nýting núverandi húsnæð-
is í Fossvogi og við Hringbraut?
„Gamli“ Borgarspítalinn, sem
er 30.000 m2 nýtist áfram 100%.
Gamli Landspítalinn nýtist undir
læknadeild Háskóla Íslands og
ýmsa aðra starfsemi sem teng-
ist háskólanum og er nú dreifð
um bæinn. Meira rými skapast
fyrir raungreinar á Melunum.
Með tímanum myndast samfellt
háskólaþorp.
5) Bætt aðstaða sjúklinga og lækna.
Í Fossvoginum er gott
útsýni og lágmarks fjar-
lægð í og úr lyftu. Lyft-
ur fyrir þá sem koma í
heimsókn ná bara upp á
hæðir með legudeildum.
Mikið minni hávaðatrufl-
un verður við lendingu
þyrlu á turninn í Foss-
vogi. Í dag töpum við
læknum úr landi. Læknar
hafa komið heim og flutt
út aftur. Lægri byggingakostn-
aði og árlegum rekstrarkostnaði
væri vel varið til tækjakaupa,
sem gæti snúið þessari þróun
við.
Er hægt að snúa við? Á fundi á
Grand Hóteli fyrir fjórum árum
sagði Katrín Ólafsdóttir, lektor
við HR, að of mörgum spurning-
um væri ósvarað til þess að skyn-
samlegt væri að halda áfram. Á
sama fundi setti ég fram eitthvað
af röksemdunum hér að ofan. Þá
stóð upp embættismaður og sagði:
„Það er búið að ákveða byggingu
við Hringbraut og því verður ekki
breytt!“ Þá ákvað ég að blanda
mér ekki meir í þessa umræðu,
sem var erfitt eftir að Björn
Zoëga, forstjóri Landspítala, kall-
aði eftir faglegri gagnrýni í Við-
skiptablaðinu. Það sem hér fer á
undan tel ég bæði málefnalegt og
faglegt. Björn sagði 2–3 milljarða
sparast við rekstur á einum stað.
Í því sambandi er rétt að benda
á að meira sparast við rekstur
eins sjúkrahúss í Fossvogi en við
Hringbraut. Þó svo búið sé að eyða
miklu í undirbúning borgar sig að
breyta um staðsetningu, þegar
dæmið er reiknað til enda.
Ég á ekki von á að þessi grein
hafi einhver áhrif á staðsetningu
HS. Sagt var að ákvörðun um
Hringbraut hafi verið tekin og
henni verði ekki breytt.
Arkitektafélaginu og Verkfræð-
ingafélagi Íslands er til ævarandi
skammar að láta þetta norska mix
við Hringbrautina ganga yfir án
þess að kryfja til mergjar á fag-
legan hátt samanburð við Foss-
vog.
Hver ætlar að axla ábyrgð á spítala við Hringbraut?
LANDSPÍTALI
Sigurður Oddsson
verkfræðingur
➜Arkitektafélaginu og
Verkfræðingafélagi Íslands
er til ævarandi skammar að
láta þetta norska mix við
Hringbrautina ganga yfi r án
þess að kryfja til mergjar á
faglegan hátt samanburð við
Fossvog.