Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 36
FÓLK| KANN REGLURNAR Joshua veit allt um gallabuxur en líka að hverju viðskiptavinurinn er að leita. MYND/GVA eru auðvitað mismunandi í vextin- um en það góða við Levi‘s-gallabuxur er að þær eru hannaðar með það að leiðarljósi. Ég lít á mjaðmir og rass kvenna og finn réttu gallabuxurnar út frá vextinum. Ástæða þess að konum finnst erfitt að kaupa buxur er að þær hafa slæma reynslu af því. Ég heyri oft að strengurinn í mittið sitji illa og þegar þær beygja sig kemur píparinn í ljós. Strengurinn má ekki að vera of hár en heldur ekki of lágur. Ef buxurn- ar eru of háar í mittið verður rassinn dropalegur, eins og hann sé að síga niður,“ útskýrir Joshua. GAMLA, GÓÐA SNÚRAN „Konur þurfa auk þess að taka einu númeri minna af gallabuxum en þær telja. Nútímagallabuxur eru þynnri en þær voru. Efnið er blandað pólýester og teygju. Þegar kona mátar buxur þarf hún að hugsa um hvernig þær verða eftir viku en þá hafa þær víkkað um heilt númer. Svo á ekki að þvo gallabuxur oft. Alltaf skal þvo þær á röngunni, nota fljótandi þvottaefni, ekkert mýkingarefni og alls ekki setja þær í þurrkara. Bara gamla, góða snúran,“ segir Joshua. Þegar hann er spurður hvaða snið séu helst í tísku, svarar hann: „Alls konar gallabuxur eru alltaf í tísku en svokallaðar „skinny“ buxur hafa verið mjög vinsælar. Í mínum huga á maður að velja gallabuxur eftir karakter og vexti. Leggjalöng stúlka á auðvitað að sýna leggina og ganga í þröngum buxum. Öðrum fer betur að vera í buxum sem eru lausari um lærin. Annars er hið klassíska snið, Levi‘s 501, mest seldu gallabuxur í heim- inum. Gallabuxur eru fyrir allan aldur. Ég hef afgreitt konur yfir áttrætt sem eru flottar í gallabuxum.“ VÍGVÖLLUR TUNGUNNAR Joshua segir að það taki hann 5-10 mínútur að aðstoða karlmann í buxna- leit á meðan það tekur að minnsta kosti hálftíma að sannfæra konur. „Karlmenn hafa þrennt í huga þegar þeir koma inn í búðina, lit, snið og þægilegheit. Konur eru hins vegar alltaf að pæla í rassinum á sér og hafa miklar áhyggjur af rassvösum eða hvernig þeir liggja. Maður lendir stundum á vígvelli tungunnar þegar maður reynir að sannfæra konur í gallabuxnaleit,“ segir buxnahvíslar- inn hlæjandi og bætir við: „En þegar maður nálgast þær rétt er það aldrei vandamál. Það á að vera gaman að kaupa sér buxur. Mitt hlutverk er að finna réttu buxurnar og að viðskipta- vinurinn gangi ánægður út.“ SKEMMTILEGT STARF Joshua starfaði lengi hjá G-Star á meðan sú verslun var starfandi hér og síðan í verslun Sævars Karls. „Ég hef farið á mörg námskeið hjá galla- buxnaframleiðendum og hef sogið í mig allar upplýsingar. Þegar ég fer í innkaupaferðir læri ég líka margt. Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt starf og hlakka alltaf til mánudaga,“ segir Joshua sem bíður spenntur eftir jólaösinni en hann er ætíð reiðubúinn að aðstoða fólk í gallabuxnaleit. Þegar Joshua er ekki í vinnunni dansar hann samkvæmisdansa og stefnir á keppni á nýju ári. „Svo er ég með betri tölvuleikjaspilurum hér á landi,“ segir Joshua sem á íslenska móður en föður frá Filippseyjum sem skýrir nafnið hans. ■ elin@365.is TUPPERWARE LAGERSALA Allt að 60% afsláttur! Opið alla virka daga í október kl. 13:00-18:00 Mirella ehf – heildverslun Háholt 23, 270 Mosfellsbær Sími: 586 8050 / Netfang: mirella@simnet.is Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Jakkar kr. 10.900.- Litir: brúnt og svart Str. 40-56/58 TÍSKA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.