Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 16
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Umgengni ferðamanna í skálum Ferða-
félags Íslands er svo slæm að félaginu
er nauðugur einn kostur að hafa húsin
lokuð nema skálavarsla sé til staðar. Svo
illa er gengið um að húsin liggja undir
skemmdum. Svo þykkur er óþefurinn af
rusli og salernum að fólk hrökklast frá.
Stefán Jökull Jakobsson, yfirskála-
vörður hjá Ferðafélagi Íslands, segir að
þrátt fyrir skýrar reglur um umgengni,
sem komið er á framfæri við ferða-
menn, verði ekki lengur við unað.
„Umgengnin er, satt best að segja,
til háborinnar skammar. Það er rusl
og óhreint leirtau á öllum borðum og á
gólfum. Óþefurinn er mikill og enginn
virðist taka til eftir sig, fólk einfald-
lega bara nýtir sér aðstöðuna og sinnir
í engu sjálfsögðum mannasiðum við að
þrífa og taka til eftir sig,“ segir Stefán
Jökull og vísar til aðkomunnar í nýjum
skála FÍ á Fimmvörðuhálsi, Baldvins-
skála. Hann bætir við að ástæðan fyrir
nýjum skála á þessum stað hafi verið að
eldri skáli sem byggður var 1974 eyði-
lagðist á fáum árum vegna aukinnar
umferðar á Fimmvörðuhálsi. Slæmri
umgengni var um að kenna, enda húsið
kallað „Fúkki“ vegna óþefsins sem þar
var inni.
Lýsingar Stefáns Jökuls á umgengni
í einstökum skálum eru skelfilegar,
og reyndar telur hann ekki mögulegt
að koma þeim almennilega í orð. Fólk
þurfi að koma á staðinn til þess að
skilja hversu illa fólk gengur um. „Það
er kamar við hliðina á Baldvinsskála
og aðkoman þar var hræðileg. Saur og
þvag um allt, rusl á gólfum og búið að
brjóta klósettið.“
Stefán bætir við að slæm umgengni
sé ekki bundin við skála FÍ, heldur
sé vandamálið til staðar hjá öðrum
félögum sem eiga og reka slíkar bygg-
ingar.
Skálar FÍ eru á 38 stöðum víðs vegar
um land og allur almenningur getur
nýtt þá óháð aðild að Ferðafélaginu.
Regluleg skálavarsla er hins vegar ekki
nema í nokkrum þeirra og útilokað að
auka þá vöktun vegna kostnaðar. Hann
nefnir að byggingarkostnaður skálanna
sé hár; uppsetning Baldvinsskála kost-
aði 25 milljónir króna.
„Hugmyndafræðin var að húsið stæði
fólki opið, bæði til að bæta aðstöðu og
öryggi ferðamanna. Við horfum fram
á það núna að óbreyttu að loka þessu
húsi og öllum öðrum, sem gengur þvert
á stefnu Ferðafélagsins,“ segir Stefán
og leggur áherslu á orð sín með því
að nefna að úr tveimur húsum uppi á
hálendinu hefur kamínum verið stolið.
„Ég þarf því miður að segja einnig
að þeir sem ganga verst um eru Íslend-
ingar, þótt erlendum ferðamönnum
fylgi líka slæm umgengni. Þeirra
umgengni er þó miklu betri en þó sinna
þeir sjaldan þeirri gullnu reglu á fjöll-
um, að taka með sér allt rusl sem til
fellur,“ segir Stefán Jökull.
Ekki er hér allt talið. Söfnunarbauk-
ar í húsunum, þar sem ætlast er til
að fólk greiði fyrir gistingu og afnot
húsanna, eru svo gott sem tómir yfir
árið þar sem enginn hirðir um að borga
fyrir sig. svavar@frettabladid.is
Umgengni skelfilegri en orð fá lýst
Ferðafélag Íslands telur sér nauðugan einn kost að loka skálum sínum á hálendinu vegna umgengni ferðamanna. Skálar verða aðeins opnir
ef skálavarsla er möguleg. Fólk hrökklast frá vegna óþefs. Enginn hirðir um að greiða fyrir gistingu og afnot af húsunum.
Hugmyndafræðin var að
húsið stæði fólki opið, bæði til
að bæta aðstöðu og öryggi
ferðamanna. Við horfum fram
á það núna að óbreyttu að loka
þessu húsi og öllum öðrum,
sem gengur þvert á stefnu Ferðafélagsins.
Stefán Jökull Jakobsson
Meginreglan er sú að
aðkoma sé þægileg og
að skálarnir geti verið
notarlegar vistarverur fyrir
ferðafólk á fjöllum. Hrein-
læti skiptir því miklu og
tillitssemi við náungann
er lykilatriði.
ÁTTA EINFÖLD ATRIÐI
SKULU Í HÁVEGUM HÖFÐ:
■ Ró skal vera komin á í
skála á miðnætti
■ Farið er úr skóm í anddyri
■ Taka með sér rusl
■ Reykingar bannaðar í
skálum
■ Ganga frá áhöldum í eld-
húsi
■ Bæta í vatnspott á
eldavél
■ Ganga frá skálunum eins
og menn vilja koma að
þeim sjálfir
■ Greiða fyrir gistingu
EINFALDAR REGLUR GILDA Í ÖLLUM SKÁLUM FÍ
NÁÐHÚSIÐ Óþefurinn hér innandyra verður ekki fangaður á mynd, en þessi
mynd talar sínu máli. Saur og þvag um allt og allt brotið sem brjóta má.
GULLNA REGLAN ÞVERBROTIN Á fjöllum eiga allir að vita að það sem þú tekur með þér, ferðu með aftur heim. MYNDIR/INGÓLFURBRUUN
UPPVASKIÐ Dæmi eru um að allt leirtau, pottar sem pönnur, standi óhreint á
borðum og bekkjum, innan um rotnandi matarleifar.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
DÓMSMÁL Ummæli sem Bragi Guð-
brandsson, forstjóri Barnavernd-
arstofu, lét falla um Guðmund Tý
Þórarinsson, forstöðumann Götu-
smiðjunnar, og starfsemi hans voru
dæmd ómerk í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Bragi hyggst fara fram
á ógildingu en hann segist aldrei
hafa fengið stefnu málsins í hend-
urnar.
Ummælin sem Bragi lét falla
urðu til þess að Götusmiðjunni var
lokað árið 2010. Var Guðmundur,
sem jafnan er kallaður Mummi,
meðal annars sakaður um að hafa
hótað börnum
vistheimilisins
ofbeldi og lim-
lestingum. Bragi
sagði Mumma
hafa farið út
fyrir öll vel-
sæmismörk og
að framganga
hans hefði vald-
ið börnum vist-
heimilisins vanlíðan og óöryggi.
Hann sagði að um stjórnunarvanda
hefði verið að ræða sem síðar hefði
farið að bitna á börnunum og skað-
að þau. Því hefði verið gripið til
þeirra aðgerða að loka meðferðar-
heimilinu.
Braga var gert að greiða Mumma
400 þúsund krónur í bætur auk þess
að greiða allan sakarkostnað. Þetta
nemur 650 þúsundum króna.
Götusmiðjunni var formlega
lokað í júnímánuði 2010 en Mummi
hefur ávallt haldið fram sakleysi
sínu. Hann hefur nú ákveðið að opna
Götusmiðjuna að nýju og segir brýna
þörf fyrir meðferðarúrræði sem
þessi fyrir ungmenni sem leiðst hafa
út í heim áfengis og vímuefna. - sks
Ummæli um ofbeldi og limlestingar Mumma í Götusmiðjunni dæmd ómerk:
Ætlar að opna Götusmiðjuna á ný
GUÐMUNDUR TÝR
ÞÓRARINSSON
ALVARLEGT
Ásakanir for-
stjóra Barna-
verndarstofu
voru alvar-
legar og ollu
því að Götu-
smiðjunni
var lokað.