Fréttablaðið - 16.10.2014, Page 32
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 32
Það er sérkennilegt að
hlusta á og lesa svör og
athugasemdir þeirra aðila
sem ekki greiða virðis-
aukaskatt, t.d. í ferða-
þjónustu. Maður brosir nú
bara þegar sagt er: „Allt-
of skammur fyrirvari,“
o.s.frv. Er ekki einu sinni
áður búið að falla frá
hækkun VSK vegna of
skamms fyrirvara? Var
þetta ekki sama kveinið og um
fyrirhugaðan náttúrupassa, sem
dó drottni sínum fyrir fæðingu?
Hvað hafa þessir ferðaþjónustu-
aðilar tilkynnt sínum birgjum
erlendis um þá staðreynd
að gjaldtaka verði hafin
inn á náttúruperlur
Íslands og að auki verði
um mögulega hækkun á
VSK að ræða? Af hverju
að leyna viðskiptavinum
sínum því sem nær öll
þjóðin og erlendir ferða-
menn skilja að muni
verða að veruleika?
Hvaða sanngirni er í
því að öll rútufyrirtæki, Bláa
lónið, Jarðböðin, allir sundstað-
ir, hvalaskoðunarfyrirtæki, ferð-
ir með eða án leiðsögu, laxveiði,
hótel, gistiheimili og bókaút-
gefendur, menning hvers konar
o.s.frv., séu ekki í sama VSK-
umhverfi eins og allir aðrir
rekstraraðilar? Velta í þeim
greinum sem ekki bera VSK
nemur tugum milljarða, já tugum
milljarða á ári. Af hverju þessi
mismunun? Af hverju allar þess-
ar undanþágur í VSK-umhverfi?
Stenst slík mismunun stjórnar-
skrá? Drög í fjárlögum sem nú
liggja fyrir eru alveg óskiljan-
leg ný túlkun á orðinu einföldun,
þ.e. úr tveimur VSK-þrepum í tvö
VSK-þrep? En niðurfelling vöru-
gjalda er til fyrirmyndar og ber
að þakka.
Einföldum VSK-umhverfið
og setjum alla rekstraraðila, án
nokkurra undantekninga, t.d. í
15% virðisaukastig.
Af hverju ekki að einfalda
þetta umhverfi í eitt skipti fyrir
öll, eins og er á stefnuskrá núver-
andi ríkisstjórnar? Það sem nú
liggur fyrir sem drög í fjárlög-
um er öllum þeim sem fylgst hafa
með alveg óskiljanleg ný túlkun á
orðinu „einföldun“.
Það er mörgum atvinnugrein-
um „skotið undan“ vegna þess
hve sterk ítök/áhrif viðkomandi
aðilar eða samtök hafa innan
dyra hjá þeim sem vilja nú „ein-
falda“ VSK-kerfið, slíkt er dapur-
legt. Óskiljanlegt er að ný kyn-
slóð alþingismanna skuli leggja
til svona breytingar á VSK til ein-
földunar og trúa því sjálf að um
einföldun sé að ræða. Ég bjóst nú
við stærri smjörklípu, átti jafnvel
von á heilu smjörstykki í þessu
máli. Það hefur enginn ráðamað-
ur, mér vitandi, hvorki til vinstri
eða hægri, lagt fram tölulegan
útreikning á því ef allir yrðu
settir í t.d. 15% VSK-umhverfi
á Íslandi, eða 16% eða 17%. Af
hverju skyldi ekki? Hagsmuna-
tengsl? Af hverju er þetta ekki
lagt fyrir og þá kemur í ljós hvort
ríkið nær að anda án erfiðleika
þ.e. tekjulega miðað við t.d 15%
VSK þrep. Það má reikna frekar
með því að tekjur ríkisins muni
aukast til muna, því skilvirkni
virðisaukaskatts mun aukast.
Þora ráðamenn ekki?
Þora ráðamenn ekki að fram-
kvæma slíka „einföldun“ vegna
hagsmuna einstakra atvinnu- og
menningargreina? Það er eins og
allir stjórnmálamenn séu hættir
að framfylgja hugsjónum sínum
þegar í valdastólana er komið.
Eru allir að verða að sömu kenni-
tölunni? Þorir enginn að standa
í stafni og taka af skarið í þágu
þjóðar? Það eru til aðferðir á
rafrænni öld til hjálpar barna-
fólki, láglaunafólki, öryrkjum og
öðrum hópum sem verst koma út
úr slíkum breytingum.
Heldur fólk að Íslendingar
hætti að kaupa t.d. bækur, sækja
sundstaði, þjóðgarða eða aðra
staði, fara í leikhús, á hljómleika
o.fl. Og svo má líka fella niður
alla boðsmiðana, hverju nafni
sem þeir nefnast. Það fólk sem nú
„lifir á boðsmiðum“ hefur alveg
efni á því að greiða fyrir það sem
það vill njóta.
Það ætti að vera frítt fyrir
Íslendinga inn á almenna sund-
staði því þeir hafa þegar greitt
með opinberu skattfé sínu upp-
byggingu sundlauga í gegnum
áratugi. En slíku er t.d. ekki
fyrir að fara hvað varðar erlenda
ferðamenn, þeir hafa ekkert
greitt í slíka uppbyggingu og eiga
því að borga miklu hærra gjald
fyrir slíkan aðgang m/vsk. Þessi
mismunun gengur ekki upp er
varðar náttúru Íslands, því nær
ekkert hefur verið greitt af opin-
beru skattfé til verndunar eða
uppbyggingar í áraraðir.
Það yrði ein stærsta hreinsun
í viðskiptaumhverfi Íslands ef
komið yrði á einu þrepi virðis-
aukaskatts. Ég undrast að sam-
tök atvinnulífsins, neytendasam-
tök sem og samtök alþýðunnar
(ASÍ) skuli ekki beita sér fyrir
leiðréttingu á því ósamræmi sem
er á Íslandi í virðisaukaskattsum-
hverfi. Fyrir hverja eru þessir
forystumenn að vinna?
Af hverju eru ekki allir í sama VSK-umhverfi ?
SKATTUR
Ólafur H. Jónsson
náttúruverndarsinni
➜ Þora ráðamenn ekki
að framkvæma slíka „ein-
földun“ vegna hagsmuna
einstakra atvinnu- og menn-
ingargreina? Það er eins
og allir stjórnmálamenn
séu hættir að framfylgja
hugsjónum sínum þegar í
valdastólana er komið.
Save the Children á Íslandi
tamaris.eu
tamaris.eu