Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 42
FÓLK|TÍSKA
PABBI ALLTAF
VEL TIL FARA
„Ég fór fyrst að
pæla í hverju ég
klæddist þegar ég
byrjaði að vinna hjá
Gucci fyrir löngu,
en bara af því að
það var ætlast til
þess af mér að
vera fínn í tauinu
þar. Auk þess var
pabbi minn alltaf
vel til fara svo lík-
lega hef ég tekið
eitthvað upp eftir
honum.“
VEGNA GÓÐRA UNDIRTEKTA
HÖFUM VIÐ ÁKVEÐIÐ AÐ
FRAMLENGJA HAUSTTILBOÐ
OKKAR TIL 20. OKTÓBER
AFSLÁ
TTUR25%
AF ÖL
LUM
INNRÉ
TTING
UM
TIL 20
. OKT.
friform.is
GÓÐ KAUP
Mán. - föst. kl. 9-18 • Laugardaga kl. 11-15
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 10–16.
2 litir: blátt og svart.
Verð 9.900 kr.
Stærð 36 - 46.
Nýtt kortatímabil.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Terry Devos klæðist því sem honum líður vel í og kaupir fallegar flíkur þegar hann rekst á þær. Hann er
frá Úganda en hefur búið hér á landi í
átta ár. Terry hannar föt fyrir Skyrtu en
fyrirtækið opnaði nýlega verslun þar sem
hann og fleiri vilja deila því sem þeir hafa
lært í tískubransanum í gegnum árin með
öðrum.
Hvernig lýsir þú stílnum þínum? Ég
hef aldrei hugsað sérstaklega út í það en
ætli ég vilji ekki bara láta mér líða vel og
vera frjáls í fötunum sem ég klæðist –
hvað ætli sá stíll kallist? Ég veit það alla
vega ekki.
Ertu tískumeðvitaður? Ég hugsa um
tískuna en það er aðallega vegna þess að
ég vinn í tískubransanum og ég hef alltaf
verið hrifinn af fallegum hlutum og þeir
höfðað til mín.
Hefur þú lengi pælt í tískunni? Ég
myndi ekki segja það, ég fylgi til dæmis
ekki tískubólum. Ég fór fyrst að pæla í
hverju ég klæddist þegar ég byrjaði að
vinna hjá Gucci fyrir löngu, en bara af því
að það var ætlast til þess af mér að vera
fínn í tauinu þar. Auk þess var pabbi minn
alltaf vel til fara svo líklega hef ég tekið
eitthvað upp eftir honum.
Hvar kaupir þú fötin þín? Hvar sem
er, allt sem vekur áhuga minn og ég hef
efni á kaupi ég.
Eyðir þú miklu í föt? Satt að segja
geri ég það ekki vegna þess að alla mína
ævi hef ég unnið í einhverju tískutengdu
þannig að ég hef fengið flest allt sem ég
á frítt.
Hverju klæðist þú þegar þú ferð út á
lífið? Það fer eftir tilefninu. Ef það er eitt-
hvað eftir vinnu fer ég bara eins og ég er
klæddur þá stundina. Ég reyni að ofhugsa
ekki útlitið, ef mér líður vel í því sem ég
er í þarf ég ekki að hafa sérstaklega fyrir
því og fara í einhverjar aðgerðir. Ef til-
efnið er hátíðlegra fer ég eflaust í jakkaföt
eða eitthvað fínna.
Uppáhaldsflíkin? Blazerar eru upp-
áhaldið mitt, þeir láta hvaða druslu sem
er líta betur út …
Bestu kaupin? Skór!
Verstu kaupin? Ég keypti einu sinni úr
sem virkaði ekki.
Uppáhaldshönnuðurinn? Minn al-
gjörlega uppáhalds er Ozwald Boating.
Ég elska hvernig hann notar liti og snið á
fallegan máta.
Hverju verður bætt við fataskápinn
fyrir veturinn? Ég hef nú ekki keypt mér
neitt fyrir veturinn í töluverðan tíma en
ég gæti þurft að fá mér úlpu frá 66°Norð-
ur þar sem sú sem ég á er orðin ansi
gömul.
Hver er þinn helsti veikleiki þegar
kemur að tísku? Hmm, látum okkur sjá,
ég elska úr þannig að ef ég á að nefna eitt-
hvað sem ég fell fyrir og kaupi ef ég hef
efni á því þá eru það úr.
Áttu þér tískufyrirmynd? Hef aldrei
spáð í það, en ef það er einhver þá er það
Ozwald Boating.
FYLGIR EKKI TRENDUM
HERRATÍSKA Terry Devos hefur unnið fyrir bæði Gucci og Dolce & Gabbana
auk fleiri tískurisa. Hann er listrænn stjórnandi og yfirhönnuður hjá Skyrtu en
þar má fá sérsaumaðar skyrtur meðal annarra fallegra flíka og fylgihluta.
M
Y
N
D
/ST
EFÁ
N
FLOTTUR Í TAUINU
Terry Devos segist ekki
hlaupa eftir tískubólun-
um en hefur alltaf verið
hrifinn af fallegum
hlutum og flíkum.