Fréttablaðið - 16.10.2014, Qupperneq 48
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 36TÍMAMÓT
Ástkær sonur minn og unnusti,
MAGNÚS HELGI VIGFÚSSON
Lyngheiði 3, Selfossi,
lést þriðjudaginn 23. september. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir
fyrir auðsýnda samúð og vinarhug.
Charlotta Halldórsdóttir
Úlfhildur Stefánsdóttir
Ástkær kona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG ÓSK ÓSKARSDÓTTIR
Skipasundi 46, Reykjavík,
lést laugardaginn 11. október á
gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut. Útförin verður auglýst síðar.
Hörður Smári Hákonarson
Anna María Gestsdóttir Ellert Hlíðberg
Óskar G. Gunnarsson Sjöfn Magnúsdóttir
Haraldur R. Gunnarsson Ragna Ársælsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
HARÐAR HJARTARSONAR
frá Seyðisfirði.
Sigfríð Hallgrímsdóttir
Bjarndís Harðardóttir
Valur Harðarson Þuríður Höskuldsdóttir
Hjörtur Harðarson Mimie Fríða Libongcogon
Hallgrímur Harðarson Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir
Helena Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGVALDI GUÐNI JÓNSSON
Sóltúni 15, Keflavík,
lést föstudaginn 10. október á Hrafnistu í
Reykjanesbæ. Jarðsungið verður
í Keflavíkur kirkju þriðjudaginn 21. október
kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir.
Erna Geirmundsdóttir
Geirmundur Sigvaldason Ásdís Gunnarsdóttir
Þorsteinn Ingi Sigvaldason Auður Gunnarsdóttir
Sigrún Sigvaldadóttir Kristinn Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ALBERTSSON
Heggsstöðum, Kolbeinsstaðahreppi,
sem lést fimmtudaginn 9. október, verður
jarðsunginn frá Kolbeinsstaðakirkju
laugardaginn 18. október kl. 14. Blóm og
kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á minningarsjóð dvalarheimilisins Brákarhlíðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍSABET PÉTURSDÓTTIR
Hvassaleiti 56, Reykjavík,
áður Álftamýri 30,
sem lést á Landakotsspítalanum
laugardaginn 11. október,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
föstudaginn 17. október kl. 13.00.
Gylfi N. Jóhannesson Hrefna Einarsdóttir
Guðrún J. Jóhannesdóttir Guðjón J. Jensson
Anna Jóhannesdóttir Hjörvar Ari Hjörvar
Pétur Þ. Jóhannesson Kolbrún Bessadóttir
Sigríður J. Jóhannesdóttir Waack Hans Waack
barnabörn og langömmubörn.
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir í
kvöld Verksmiðjukrónikuna, nýtt
íslenskt leikrit eftir Sögu Jónsdóttur
og Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdótt-
ur. Í leikritinu segir frá lífi og starfi
verkafólks í verksmiðjunni Gefjun á
Akureyri á árunum 1940-1942. Bret-
arnir komu til Akureyrar, sem hafði
ýmsar breytingar í för með sér og
mikið var um að vera í bænum. Ungu
stúlkurnar heilluðust og nýir tímar
runnu upp.
„Þarna unnu um þúsund manns á
sínum tíma og í verkinu fáum við að
kynnast margs konar persónum sem
starfa í verksmiðjunum. Það er verk-
fall í bígerð hjá þeim og því ýmislegt
sem gengur á,“ segir Saga, en ásamt
því að vera annar höfundur verksins
leikstýrir hún sýningunni. En hvern-
ig kviknaði þessi hugmynd? „Við Stef-
anía vorum að vinna saman, en hún
hefur leikið hjá mér áður. Ég fór að
segja henni sögur og að mig lang-
aði að gera eitthvað tengt verksmiðj-
unum. Í framhaldi af því fór hún að
segja frá hugmynd sinni um það að
gera eitthvað tengt því þegar Bret-
arnir komu hingað. Okkur fannst til-
valið að tengja þetta saman, þetta var
svo spennandi og merkilegur tími,“
segir Saga.
Verksmiðjurnar skipta Sögu miklu
máli, en faðir hennar, Jón Ingimars-
son, var formaður Iðju, félags verk-
smiðjufólks, í áratugi en félagið var
stofnað 1936. „Okkur langaði svo að
sýna líf fólksins sem var að vinna
þarna og baráttu þess fyrir bættum
kjörum. Unga fólkið í dag skilur þetta
ekki, en á þessum tíma var ávallt
unnið á laugardögum og vinnutíminn
mun lengri en gengur og gerist í dag,“
segir Saga. Hún segir mikið af yngra
fólki á Akureyri í dag ekki vita um
tilvist verksmiðjanna og hversu mik-
ill iðnaðarbær Akureyri var.
Fjöldi leikara kemur að sýning-
unni og segir Saga aldurshópinn mjög
dreifðan. Leikritið verður frumsýnt í
kvöld á Melum í Hörgárdal. „Það er
mikill kraftur í þeim og þetta verður
ofsalega gaman,“ segir Saga. - asi
Saga um baráttu
fyrir bættum kjörum
Saga Jónsdóttir leikstýrir nýju leikriti sem fj allar um baráttu verkafólks í Gefj unarverk-
smiðjunum á Akureyri, komu Bretanna í bæinn og breytingarnar sem því fylgdu.
LEIKSTJÓRINN Saga Jónsdóttir skrifaði verkið ásamt Stefaníu E. Hallbjörnsdóttur og leikstýrir því einnig. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN NÍELSSON
Unga fólkið í dag skilur
þetta ekki, en á þessum
tíma var ávallt unnið á
laugardögum og vinnutím-
inn mun lengri en gengur og
gerist í dag.
Á þessum degi árið 1946 voru tíu
háttsettir þýskir nasistaforingjar
teknir af lífi með hengingu, vegna
glæpa gegn mannkyninu og stríðs-
glæpa í seinni heimsstyrjöldinni.
Tveimur vikum áður voru mennirnir
fundnir sekir af alþjóðlegum stríðs-
glæpadómstól í Nürnberg og dæmdir
til dauða, ásamt tveimur öðrum nas-
istaforingjum: þeim Hermann Gör-
ing, stofnanda Gestapó, en honum
tókst að svipta sig lífi aðeins fáeinum
klukkutímum fyrir aftökuna. Hinn
var Martin Bormann sem var ekki
viðstaddur dóminn.
Meðal þeirra sem teknir voru af lífi
voru Joachim von Ribbentorp utan-
ríkisráðherra og Wilhelm Frick, inn-
anríkisráðherra í nasistastjórninni.
Sjö aðrir, þar á meðan Rudolf Hess,
fengu fangelsisdóma frá tíu árum og
allt upp í lífstíðarfangelsisdóm, en
þrír þeirra voru sýknaðir. Réttarhöld-
in stóðu í nærri tíu mánuði og voru
þau fyrstu sinnar tegundar í heim-
inum. Alþjóðlegur dómstóll saman-
stóð af fulltrúum frá Bandaríkjunum,
Sovétríkjunum, Frakklandi og Bret-
landi. Hinn 16. október voru hinir tíu
dæmdu hengdir einn af öðrum.
ÞETTA GERÐIST 16. OKTÓBER 1946
Tíu háttsettir nasistar teknir af lífi
Alexandra Chernyshova sópransöng-
kona heldur styrktartónleika í Sel-
tjarnar neskirkju í kvöld klukkan 20.
Tilefni tónleikanna er ferð Alexöndru
til Kína en þar tekur hún þátt í alþjóð-
legri söngkeppni í Ningbo, og mun hún
verða fyrst allra Íslendinga til þess
að taka þátt. Yfirskrift tónleikanna er
Sautján dagar í Kína, sem er tilvísun í
fjölda daganna sem hún verður úti. Allir
tónleikagestir verða leystir út með fal-
legum gjöfum, geisladiskum sem Alex-
andra hefur gefið út á undanförnum
árum. Alexandra mun flytja á tónleik-
unum öll lögin sem hún ætlar að syngja í
keppninni. Lögin verða flutt á sjö tungu-
málum, meðal annars á kínversku. Er
þetta í sjötta sinn sem keppnin er haldin
og taka hátt í níutíu manns þátt, hvaðan-
æva úr heiminum. Keppnin verður eins
og áður sagði haldin í Ningbo í Kína
dagana 20. október-31.október.
Sautján daga söngkeppni í Kína
Sópransöngkonan Alexandra Chernyshova heldur tónleika og safnar fyrir söngkeppnisferð.
KEPPIR Í KÍNA Sópransöngkonan Alexandra
Chernyshova tekur þátt í söngkeppni í Kína.