Fréttablaðið - 16.10.2014, Side 70
16. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 58
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
„Ég er enginn leikari. Þeir völdu
mig bara út af útlitinu,“ segir
Leo Sankovic. Hann endurtek-
ur hlutverk sitt sem glæpamað-
urinn Stanko í spennumyndinni
Borgíki 2: Blóð hraustra manna,
sem verður frumsýnd á morgun.
Meðan á tökum stóð starfaði
Leo á frístundaheimili í Reykja-
vík og var því innan um sex til
níu ára krakka. Aðspurður segir
hann krakkana ekkert hafa verið
hrædda við sig, þrátt fyrir að
hann hafi á sama tíma verið að
leika blóðþyrstan krimma. „Ég er
ekki eins og karakterinn í mynd-
inni. Ég er bara venjulegur strák-
ur. Ég og krakkarnir náðum vel
saman og við spiluðum oft fót-
bolta. Þeir þekktu mig líka áður
en myndin kom út,“ segir hann.
Leo er í aukahlutverki í Borg-
ríki 2 en kemur meira við sögu
núna en í fyrri myndinni sem
kom út 2011. Hann segist hafa
skemmt sér vel við tökurnar.
„Það var líka gaman að vera í
kringum þekkta leikara eins
og Ingvar E. [Sigurðsson] sem
gerðu mér auðvelt fyrir. Það var
eitt atriði sem ég náði aldrei og
þá kom Darri Ingólfsson til mín
og sagði við mig eitt orð og ég
fattaði strax hvað hann var að
meina,“ segir Leo.
Hann fékk einnig góða hjálp
frá frænda sínum, Zlatko Krikic,
sem leikur krimmann Sergej í
báðum Borgríkismyndunum. Leo
hreppti einmitt hlutverkið í fyrri
myndinni þegar hann var í kaffi
á bifvélaverkstæði frænda síns.
„Ég þekkti Óla [Ólaf Jóhannesson
leikstjóra] smá og hann mætti á
verkstæðið og sagði við Zlatko:
„Ég vil fá hann út af útlitinu“,“
segir hann og hlær.
Leo er af serbnesku bergi brot-
inn en flutti frá gömlu Júgóslav-
íu árið 1991 þegar hann var ell-
efu ára. Fyrst til Kýpur en svo
til Íslands árið 1998. „Stríðið var
ekki almennilega byrjað þegar
ég flutti frá Belgrad en það var
smá spenna í gangi,“ segir hann.
„Ég var alltaf í fótboltanum en
sá samt hvernig krakkar vildu
verða harðir krimmar. Serbar
eru búnir að gera margar kvik-
myndir um stríðið og ég hef horft
á margar þeirra og gat notað þær
sem innblástur þegar ég var að
leika Stanko.“
freyr@frettabladid.is
Krakkarnir voru ekki
hræddir við krimmann
Leo Sankovic leikur í glæpamyndinni Borgríki 2 sem er á leiðinni í bíó. Á meðan
á tökunum stóð vann hann á frístundaheimili innan um sex til níu ára krakka.
LEO SANKOVIC Leikur glæpamann í framhaldsmyndinni Borgríki 2: Blóð hraustra manna, sem verður frumsýnd á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Faðir Leos er knattspyrnuþjálfarinn Zeljko Sankovic sem hefur þjálfað
fjölmörg lið á Íslandi, þar á meðal Grindavík, ÍBV og Val. Leo ætlar sjálfur
að verða þjálfari eins og pabbi og er þegar kominn með UEFA B-gráðu.
Hann stefnir á UEFA A-gráðu eftir tvö ár og ætlar á næstunni að flytja til
Noregs, þar sem móðir hans og fleiri úr fjölskyldu hans búa.
Ætlar að þjálfa fótboltalið í Noregi
Serbar eru búnir að
gera margar kvikmyndir
um stríðið og ég hef
horft á margar þeirra og
gat notað þær sem
innblástur þegar ég var
að leika Stanko.
Leikarinn og grínistinn ástsæli
Bill Murray talaði um einkalíf
sitt í viðtali við Howard Stern í
síðustu viku.
„Mér finnst ég ekki vera ein-
mana,“ svaraði Murray, spurður
hvernig það væri að vera pipar-
sveinn. „Það hefði verið ljúft að
hafa einhvern til að geta farið
með í giftinguna hans George
Clooney, til dæmis.“ Murray
segir að hann þurfi að vinna í
ýmsu. „Eins og að þroskast, að
tengjast sjálfum mér meira. Ég á
ekki erfitt með að tengjast öðru
fólki. Vandamál mitt er að tengj-
ast sjálfum mér. Ef ég helga mig
því ekki til fullnustu þá er betra
að ég sé ekki í sambandi.“
Aðspurður hvað sé svona erf-
itt við að tengjast sjálfum sér
svarar Murray: „Það sem stoppar
okkur öll er að við erum í raun-
inni ansi ljót ef við horfum nógu
vel. Við erum ekki manneskjan
sem við höldum að við séum, við
erum ekki jafn frábær og við
höldum. Það er smá sjokk, þetta
er erfitt.“ - þij
Vill tengjast
sjálfum sér
BILL MURRAY Er einn ástsælasti leikari
síðustu áratuga. NORDIC PHOTOS/GETTY
Næs í rassinn
Í vikunni borgaði ég manni fimmþúsund-kall fyrir að troða fingri upp í rassgatið á
mér. Þetta var reyndar ekki farsæll endir á
tilraunakenndu stefnumóti heldur heim-
sókn til læknis. Hann fann ekkert óvenju-
legt.
KALDHÆÐNISLEGA þá átti læknaheim-
sóknin sér stað skömmu eftir að hljóm-
sveitin Hljómsveitt sendi frá sér myndband
við lagið Næs í rassinn. Ég get reyndar
ekki tekið undir að tilfinningin hafi
verið næs — læknirinn hefði nú alveg
getað boðið mér upp á drykk áður en
hann lét til skarar skríða.
VIÐBRÖGÐIN við laginu Næs
í rassinn voru hins vegar fyrir-
sjáanleg. Það er nefnilega svo
auðvelt að hneykslast þegar unga
fólkið grillar í liðinu. Það sannaðist held-
ur betur á dögunum þegar innslag úr
sjónvarpsþættinum Áttunni var birt á
Vísi. Þar kom í ljós að íslensk ungmenni
þekkja pólitískt landslag Íslands illa.
UNGMENNIN voru meðal annars
spurð að því hver væri forsætisráðherra
Íslands. Flest töldu þau að Jóhanna Sig-
urðardóttir væri ennþá við völd en nafn
Vigdísar Finnbogadóttur kom einnig upp.
Þá héldu flestir að Jón Gnarr væri ennþá
borgarstjóri Reykjavíkur en einn taldi
reyndar að Ólafur Ragnar Grímsson væri
borgarstjóri Íslands.
ÞAÐ er ekki unga fólkinu að kenna að þau
viti ekki hver er forsætisráðherra. Þeim er
einfaldlega drullusama vegna þess að þau
hafa nákvæmlega ekkert um það að segja.
Ungt fólk er skraut á framboðslistum
stjórnmálaflokkanna og inni á Alþingi er
meðalaldurinn í kringum 50. Yngstu þing-
menn landsins eru valdalausir og tilheyra
flokki sem setur höft ofar frelsi.
FYRIRMYNDIRNAR inni á þingi eru
sem sagt ekki til staðar. Vinnan sem fer
þar fram snýst líka að miklu leyti um að
finna leiðir til að færa fjármuni af gjör-
gæslum sjúkrahúsa inn á bankareikninga
eldri kynslóða svo að ríkissjóður verði pott-
þétt einhvers konar þrotabú þegar ný kyn-
slóð tekur við stjórninni. Það er ekki í lagi
þó þeim finnist næs að fá það í rassinn.
Leikkonan Amy Poehler skrifar
um fíkniefnaneyslu sína í nýju
endurminningunum sínum, Yes
Please, sem koma út 28. október.
„Ég prófaði kókaín sem ég elsk-
aði strax en hataði á endanum,“
skrifar Amy.
„Kókaín er frábært ef maður
vill hanga með fólki sem maður
þekkir ekki vel og spila borðtenn-
is alla nóttina,“ bætir hún við og
segir að eiturlyfið sé hins vegar
slæmt fyrir flest allt annað. Þá
lýsir hún gamlárspartíi þar sem
fíkniefni voru í boði. Teitið var
ofboðslega skemmtilegt en næsti
dagur var erfiður.
„Ég man líka eftir næsta degi
þegar ég hélt að ég ætti enga vini
og var svo döpur að mig langaði
að sökkva ofan í teppið og búa þar
að eilífu.“
Amy Poehler
elskaði kókaín
AMY POEHLER Leikkonan skrifar um
fíkniefnaneysluna í endurminningum
sínum. NORDICPHOTOS/GETTY
GONE GIRL KL. 5.45 - 9
THE EQUALIZER KL. 9
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
BOYHOOD KL. 5.40 - 9
VONARSTRÆTI KL. 6
GONE GIRL KL. 4.45 - 8 - 10.15
GONE GIRL LÚXUS KL. 4.45 - 8
DRACULA KL. 5.45 - 8 - 10.30
THE EQUALIZER KL. 8 - 10.45
THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8
LET́S BE COPS KL. 5.45
PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL 2D KL. 3.30
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30
SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30
„TÖ FF, BRENGLUÐ OG Ö GRANDI“
- EMPIRE
„EIN AF ALBESTU MYNDUM ÁRSINS“
-T.V., BIOVEFURINN
-V.J.V, SVARTHÖFÐI.IS
-H.S.S.,MBL
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
THE CONJURING
THE FRIGHT FILE
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
GONE GIRL 7, 10
DRACULA UNTOLD 10:20
SMÁHEIMAR 5:40
WALK AMONG TOMBSTONES 5:30, 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
-T.V., biovefurinn
-EMPIRE