Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 10
4. febrúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 HOLLAND Hvorki Serbar né Króat- ar geta talist sekir um þjóðarmorð í bænum Vukovar og víðar í Kró- atíu árið 1991. Þetta er niðurstaða Alþjóðadómstólsins í Haag, sem hefur haft málið til meðferðar síðan 1999. Dómstóllinn segir engar sannan- ir hafa fundist fyrir því að Serbar eða Króatar hafi haft áform um að fremja þjóðarmorð. Engu að síður hafi alvarlegir glæpir verið framd- ir á báða bóga í borgarastríðinu í Króatíu á árunum 1991 til 1995, þegar Júgóslavía var að liðast í sundur. Þeir glæpir séu í reynd sambærilegir við þjóðarmorð, en teljist ekki vera þjóðarmorð nema sérstakur ásetningur um það hafi verið fyrir hendi. „Það sem yfirleitt eru kallaðar þjóðarhreinsanir teljast ekki vera þjóðarmorð,“ sagði Peter Tomka, forseti dómstólsins, þegar hann las upp niðurstöðuna í gær. „Athafnir þjóðarhreinsunar geta verið partur af áætlun um þjóðarmorð, en ein- ungis ef fyrir hendi er ásetningur um útrýmingu hópsins.“ Stríðsátök hófust í Króatíu vorið 1991, nokkrum vikum áður en Króatar lýstu yfir stofnun sjálf- stæðs ríkis og þar með aðskilnaði frá Júgóslavíu. Serbneskir íbúar Króatíu voru ekki sáttir, fóru í stríð og fengu hjálp frá serbneska hern- um. Borgarastyrjöldinni lauk ekki fyrr en árið 1995 og hafði þá kost- að allt að 20 þúsund manns lífið. Hundruð þúsunda hröktust að heim- an. Dómstóllinn hvatti stjórnvöld í bæði Króatíu og Serbíu til þess að starfa náið saman, meðal annars að því að bjóða fórnarlömbum átak- anna viðeigandi skaðabætur. Stjórnvöld beggja ríkjanna lýstu yfir vonbrigðum með niðurstöðu dómstólsins, en samskipti Serbíu Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 · hekla.is BREMSAÐU AF ÖRYGGI 20% AFSLÁTTUR BREMSUVÖRUR OG BREMSUVINNA VIÐ HEKLUBÍLA Renndu við hjá HEKLU við Laugaveg og við skiptum um bremsuklossa/bremsudiska á meðan þú bíður. Hjá HEKLU er óþarfi að panta tíma fyrir smærri viðgerðir. Ef þú vilt ekki bíða skilur þú bílinn eftir hjá okkur og við skutlum þér þangað sem þú vilt fara – og sækjum þig aftur! Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Áform um þjóðarmorð ekki sönnuð Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur hafnað gagnkvæmum ásökunum Króata og Serba um þjóðarmorð árið 1991. Þó hafi sambærilegir glæpir verið framdir. Samkvæmt alþjóðasamningi gegn þjóðarmorðum frá árinu 1948 er þjóðarmorð skilgreint þannig, að í því felist athæfi sem framið er með ásetningi um að eyða, að hluta eða í heild, þjóðernis- eða trúarhópi með því að: ● Drepa einstaklinga sem til- heyra hópnum; ● Valda einstaklingum, sem tilheyra hópnum, alvarlegu líkamlegu eða andlegu tjóni; ● Vísvitandi skapa hópnum lífs- skilyrði, sem eiga að hafa í för með sér útrýmingu hans að hluta eða í heild; ● Grípa til aðgerða sem ætlað er að koma í veg fyrir fæðingar innan hópsins; ● Flytja börn, sem tilheyra hópnum, með nauðung yfir í annan hóp. ➜ Þjóðarmorð ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINN Dómarar dómstólsins við upphaf dómsuppkvaðningar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ný sýning eftir Hund í óskilum Tryggðu þér miða á fimm stjörnu kvöldstund Lau 7/2 kl. 20  Sun 8/2 kl. 20 Lau 14/2 kl. 20  Fös 20/2 kl. 20 Lau 21/2 kl. 17 Lau 21/2 kl. 20 Fös 27/2 kl. 20 Lau 28/2 kl. 20 Sun 1/3 kl. 20 MIÐASALA - 568 8000 - BORGARLEIKHUS.IS AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR UPPSELT örfá sæti Aukasýn. örfá sæti Aukasýn. örfá sæti örfá sæti „Yndisleg og bráðfyndin sýning sem enginn má láta fram hjá sér fara.” S.J. – Fbl. og Króatíu hafa skánað mjög síð- ustu árin. Breska útvarpið BBC hefur það eftir Ivica Dacic, utanríkisráðherra Serbíu, að þessi dómsúrskurður sé afar mikilvægur fyrir samskipti ríkjanna: „Með þessu lýkur senni- lega ferli sem staðið hefur yfir í 15 til 20 ár, og um leið lýkur baráttunni um að sanna hver sé versti glæpa- maðurinn.“ Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur áður dæmt í máli tengdu borgara- styrjöldinni í ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu. Árið 2007 komst dóm- stóllinn að þeirri niðurstöðu að Serbía hafi ekki framið þjóðar- morð þegar átta þúsund menn voru myrtir í Srebrenica í Bosníu. Í þeim úrskurði voru serbnesk stjórnvöld hins vegar sögð hafa brotið alþjóða- lög með því að hindra ekki fjölda- morðin. gudsteinn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Gengið hefur verið frá þjónustusamningi um trúnaðarlæknis- og heilbrigðis- þjónustu gagnvart heilsuvernd starfsmanna Litla-Hrauns og Sogns og aðgengi þeirra að heil- brigðisstarfsmönnum Heilbrigð- isstofnunar Suðurlands (HSU). Rúmlega 60 manns starfa á Litla-Hrauni og Sogni. Reynslan hefur sýnt að fjar- vista- og veikindadögum hefur fækkað til muna við þetta og minnkandi starfsmannavelta er hjá þeim fyrirtækjum sem eru með svona þjónustusamning. - kbg Starfsfólk á Litla-Hrauni og Sogni nýtur þjónustu HSU: Dregið hefur úr fjarvistum í kjölfar þjónustusamninga LITLA-HRAUN Starfsmenn fá aðhald með nýjum samningi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 0 3 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 A 0 -6 0 F 8 1 3 A 0 -5 F B C 1 3 A 0 -5 E 8 0 1 3 A 0 -5 D 4 4 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.