Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 50
4. febrúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26 VALUR – Mfl. karla Í Vodafonehöllinni í kvöld kl. 19.30 Komdu að styðja strákana okkar! Áfram Valur! Kipptu liðunum í lag með Omega 3 liðamíni • Omega 3 liðamín vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. • Liðamín inniheldur Hyal-Joint® sem einnig má finna í liðvökva, seigfljótandi vökva sem smyr og viðheldur mýkt í liðamótum. • Það hjálpar líkamanum einnig að fyrirbyggja stirða liði, sem getur skipt höfuðmáli í þjálfun og líkamsrækt. SKJÓTARI EN SKUGGINN www.lidamin.is PI PA R \ TB W A • S ÍA SPORT HANDBOLTI „Það er alltaf gaman að byrja á ný. Það ríkir mikil eftir- vænting hjá okkur,“ segir Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals- manna í Olís-deild karla í hand- bolta, en deildin hefst á ný eftir 48 daga HM-frí í kvöld. Reykja- víkurliðin Valur og Fram mætast í fyrsta leik 17. umferðar í Voda- fone-höllinni klukkan 19.30. „Mér líst vel á þetta. Það eru allir heilir og ferskir. Við vorum á góðum skriði fyrir fríið áður en við töpuðum síðasta leiknum. Þessi deild er samt jöfn og tilfinningin er að allir geti reytt stig af öllum,“ segir Óskar Bjarni. Hann hóf tímabilið sem aðstoðar maður Jóns Kristjáns- sonar sem var ráðinn þegar Ólaf- ur Stefánsson ákvað óvænt að fara í frí. Óskar stýrir nú bæði karla- og kvennaliðum félagsins út tíma- bilið, en Alfreð Örn Finnsson er kominn heim úr atvinnumennsku og aðstoðar hann hjá konunum. „Það mun reyna á mig. Það gekk frábærlega hjá strákunum að kúpla sig í gegnum breyting- arnar sem voru „sjokk“ fyrir þá. Jón var mjög góður og strákarnir gerðu þetta mjög vel. Nú er undir mér og okkur komið að viðhalda því,“ segir Óskar Bjarni. Deildin heldur svo áfram á morgun með fjórum leikjum. Þeir eru: ÍBV-Haukar, Akureyri-ÍR, Stjarnan-FH og HK-Afturelding. Valsmenn eru á toppnum ásamt ÍR með 24 stig. - tom Það mun reyna á mig Valur og Fram mætast í fyrsta leik ársins í Olís-deild karla í kvöld. Mikið mun mæða á Óskari Bjarna. TVÖ STÖRF Óskar Bjarni þjálfar bæði lið Vals út tímabilið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI Arna Sif Ásgrímsdótt- ir, fyrirliði Þórs/Ka í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu, er mætt til Gautaborg FC í samnefndri borg í Sví- þjóð og mun hún æfa með liðinu í eina viku og spila æfingaleik á sunnu- daginn. Gautaborgarliðið hafnaði í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síð- ustu leiktíð, en um er að ræða eina sterkustu deild Evrópu. „Ég fékk tölvupóst frá umboðsmanni sem sagð- ist vera að leita að mið- verði fyrir lið í Svíþjóð og spurði mig hvort ég væri samningslaus og hefði áhuga,“ segir Arna Sif við Fréttablaðið um aðdragandann. „Ég er samningslaus og sagði þetta vera mjög spennandi fyrir mig því stefnan hefur alltaf verið að fara út. Þjálfari Gautaborgar hefur verið að hringja í mig og við ákváðum að ég myndi fara út og skoða aðstæður, æfa með liðinu og sjá svo hvernig fer.“ Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul hefur Arna Sif spilað með Þór/KA síðan hún var 15 ára og er fyrirliði liðsins. Hún leiddi sitt lið til sigurs á Íslandsmótinu 2012 og á að baki tvo landsleiki fyrir Íslands. Hún vill að þeir verði fleiri í fram- tíðinni og telur að þetta skref gæti hjálpað sér. „Ég fer með opnum hug og geri mitt besta. Þetta hefur alltaf verið mark- miðið og hjálpar mér algjörlega hvað varðar landsliðið,“ segir Arna Sif Ásgrímsdóttir. - tom Alltaf verið draumur Arna Sif Ásgrímsdóttir æfi r með stórliði í Svíþjóð í eina viku og spilar einn æfi ngaleik með því. KRAFTLYFTINGAR „Þessari niður- stöðu verður áfrýjað til íþrótta- dómstólsins í Sviss. Það hefur ekki verið neinn vafi á því síðan fjölmiðlar fóru að fjalla um þetta mál,“ segir kraftlyftingamaðurinn Sigfús Fossdal. Hann féll á lyfjaprófi sem var tekið í heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum en það fór fram í Denver í nóvember á síðasta ári. Sigfús var settur í bráðabirgða- bann 3. desember og bannið var staðfest þann 25. janúar. Sigfúsi er gert að greiða 300 þúsund krónur í sekt og hann fer einnig í tveggja ára keppnisbann frá íþróttinni. Við þetta unir Sigfús ekki og því ætlar hann að áfrýja til Sviss. „Ég á von á annarri niðurstöðu hjá þessum dómstóli. Ég var ekki með neinn ásetning að nota ólögleg efni. Ég hef ekki meira um málið að segja að svo stöddu,“ segir Sig- fús. Bundinn trúnaði Kraftlyftingasamband Íslands var í vikunni harkalega gagnrýnt af Kraftlyftingafélagi Gróttu fyrir að veita Sigfúsi styrk úr afreks- sjóði ÍSÍ upp á 300 þúsund krón- ur. Tilkynnt var um úthlutun úr sjóðnum 22. janúar. Þrem dögum áður en staðfest var að Sigfús væri á leið í bann. Grótta segir að það veki furðu að sambandið hafi veitt Sigfúsi styrk þar sem legið hafi fyrir að hann hefði fallið á lyfjaprófi. „Það ríkti trúnaður með mál Sigfúsar þar til niðurstaða hefur verið birt opinberlega. Ég og stjórnin vorum því bundin trún- aði og þann trúnað ber að virða. Þetta var því eðlilegt verkferli hjá okkur,“ segir Sigurjón Pétursson, formaður Kraftlyftingasambands- ins, en hvað með umsókn þeirra um afreksstyrk til handa Sigfúsi? „Við þurftum að skila inn umsóknum til afrekssjóðs fyrir 30. nóvember en það er ekki fyrr en 3. desember sem við fáum til- kynningu um að Sigfús sé fallinn á lyfjaprófi.“ Ekki okkar að dæma fólk Sigurjón segir að ferlið þar til dómur fellur endanlega sé nokkuð langt. „Sigfús trúir ekki niðurstöðu A-sýnis og óskar eftir því að B- sýni sé opnað og verði greint. Það kostar hann yfir 100 þúsund krónur. Sama niðurstaða kom úr því prófi. Hann fær síðan frest til þess að efnagreina fæðubótarefni sem hann hafði verið að taka. Sig- fús grunar að efnið sem fannst í honum sé í því fæðubótarefni þó svo það komi ekki fram í inni- haldslýsingu. Þar fer hann í meiri tilkostnað,“ segir Sigurjón en ekk- ert kom út úr því. Þá sé boðað til málsvarnar sem síðan er lögð fyrir lyfjadómstólinn. Dómstóllinn kveður síðan upp sinn dóm og sá dómur kemur seint í janúar. „Í millitíðinni vinnur afreks- sjóður sín mál og hann vinnur út frá því að menn séu saklausir þar til sekt er sönnuð.“ Þó svo búið hafi verið að til- kynna um úthlutun úr afrekssjóði til Sigfúsar þá er hann ekki búinn að fá peningana. Hann fær þá pen- inga heldur ekki strax. „Ekki meðan málið er enn í ferli. Þá fær hann ekki úr sjóðnum. Við gátum heldur ekki afturkallað umsóknina um styrkinn meðan ekki var búið að dæma í því. Þá erum við að taka okkur dómsvald í hendur. Er það okkar að dæma fólk? Hver vill komast í þá stöðu að sakfella fólk og síðan brjóta trún- að?“ henry@frettabladid.is Sigfús ætlar að áfrýja til íþróttadómstólsins Kraft lyft ingamaðurinn Sigfús Fossdal er ekki sáttur við tveggja ára keppnisbann. Hann fékk 300 þúsund króna afreksstyrk frá ÍSÍ á svipuðum tíma og dómur féll. ALLA LEIÐ MEÐ MÁLIÐ Sigfús sættir sig ekki við bannið en vill lítið tjá sig. Sigurjón formaður er á minni myndinni. MYNDIR/SIGURJÓN PÉTURSSON OG VALLI 0 3 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 A 0 -6 0 F 8 1 3 A 0 -5 F B C 1 3 A 0 -5 E 8 0 1 3 A 0 -5 D 4 4 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.