Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 25
„Reyka Vodka býður upp á skemmtilega dagskrá í tilefni af Reykjavík Cocktail Week- end,“ segir Gunnar Lár Gunnarsson hjá Vífil felli, dreifingaraðila Reyka Vodka. Við- burðir verða bæði á föstudag og laugardag. „Á Lavabarnum í Lækjargötu verður Reyka Vodka-kokteilakvöld á föstudags- kvöldið frá klukkan 21 til 1 eftir mið- nætti. Þar verður boðið upp á nýjustu og ferskustu kokteilana og fá fyrstu gestirn- ir smakk í boði hússins,“ lýsir Gunnar. Á laugardag verður hins vegar slegið upp partíi á skemmtistaðnum Austur í Austur- stræti. „Fyrstu hundrað fá frían kokteil til að smakka og svo verður sérstakur Reyka- kokteill á þúsund krónur.“ Reyka í tíu ár Reyka Vodka er framleitt í Borgarnesi og kom fyrst á markað í ágúst 2005. Hreint íslenskt vatn, ís- lenskt eldfjallahraun og jarðhiti eru notuð til að framleiða vodk- ann. Hann er síaður í gegnum ís- lenskt hraun, en ekki kol eins og almennt er við framleiðslu vodka. Reyka Vodka er fram- leitt af skoska fjölskyldufyrirtæk- inu William Grant & Sons sem er einna þekktast fyrir viskíin Glen- fiddich og Grant’s. Það sem heill- aði forsvarsmenn fyrirtækis- ins við Ísland var hreina loftið og tæra vatnið. Framleiðslan hefur gengið vel og Reyka Vodka hefur klifið metorðastigann í veröld sterkra drykkja hratt og unnið til ýmissa verðlauna. REYKJAVÍK MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 2015 COCKTAIL WEEKEND Ég hlakka mikið til að hitta ís-lenska viskíunnendur en ég hef aldrei haldið viskísmökk- un á Íslandi áður. Ég hef heyrt að Íslendingar búi til sitt eigið viskí og ég er spenntur fyrir því að hitta fólkið að baki þeirri framleiðslu,“ segir Ian Miller sem kemur til landsins um miðjan dag á föstudag og ætlar strax um kvöldið að kynna sér þá barmenningu sem Reykjavík hefur upp á að bjóða. Millar er fæddur og uppalinn í hálöndum Skotlands. Hann tók sinn fyrsta viskísopa átján ára gamall og heillaðist um leið. Rúm- lega tvítugur hóf hann störf í viskí- bransanum og hefur hann starfað við hann í 41 ár. „Ég gerðist verk- fræðingur því ég vissi að þann- ig gæti ég fengið gott starf innan viskígeirans,“ segir Millar sem hefur unnið á öllum sviðum viskí- framleiðslunnar í þessa fjóra ára- tugi og þekkir því bransann út og inn. Síðustu sextán árin hefur hann starfað hjá Glenfiddich og síðustu árin hefur hann sem sendi- herra fyrirtækisins unnið að því að bera hróður merkisins víða um heim. Glenfiddich er gamalgróið fyrir- tæki. Það var stofnað árið 1887 í Skotlandi af William Grant og er enn í dag í eigu afkomenda hans. Glenfiddich er mest selda single- malt viskí heims og hefur einn- ig hlotið hvað flest alþjóðleg verð- laun. Glenfiddich þýðir dalur hjartardýranna á gelísku og er það ástæðan fyrir myndinni af hjart- ardýrinu sem ávallt prýðir flöskur fyrirtækisins. Góðar minningar frá Íslandi Ian Millar hefur einu sinni áður stigið á íslenska grund. „Ég kom til Reykjavíkur í júlí 2013 með eigin- konu minni þegar við vorum á ferð með skemmtiferðaskipi. „Við áttum yndislega stund og gengum í góðu veðri upp að Hallgrímskirkju, fórum upp í lyftunni og horfðum yfir borg- ina. Veðrið var svo gott að við gátum setið úti og drukkið bjór í sólinni. Ég býst við að hitinn verði eitthvað minni í þetta sinnið,“ segir hann glettinn. Heimsókn Millars verð- ur ekki miklu lengri í þetta sinn þar sem hann flýgur heim á sunnudag en hann ætlar að nýta tímann vel. „Ég ætla að reyna að sjá sem mest af Reykjavík, skoða bari sem sér- hæfa sig í viskíi ef einhverjir slík- ir fyrirfinnast og eyða sem mestum tíma með viðskiptavinum okkar.“ Á laugardaginn stendur svo fyrir dyrum master class á vegum Vífil- fells á Center Hótel Plaza klukkan 17. Fer með fólk í vískíferðalag Inntur eftir því hvort master class- inn sé fyrir byrjendur eða lengra komna svarar Millar að allir geti haft gaman af. „Ég mæli þó ekki með því að fólk mæti sem aldrei hefur smakkað viskí áður. Viskí er ekki allra, það hefur sérstakt og erf- itt bragð sem sérstaklega ungt fólk á erfitt með að njóta,“ segir hann. Millar fer um víðan völl í viskí- kynningu sinni. Hann mun tæpa á mörgu og svara spurningum við- staddra. „Ég vil þó ekki drepa niður stemninguna með allt of miklum smáatriðum enda er fólk komið til að hafa gaman,“ segir hann og hlær. Hann segist vilja opna huga fólks fyrir heimi viskísins og gera því ljóst hversu stór hann er. „Margir þekkja Glenfiddich úr búðum og af börum en færri vita að tegundirnar eru mun fleiri. Á mast- er class-inum munum við smakka sex gerðir af Glenfiddich-viskíi sem er misgamalt og með misjöfnum keimi. Fólk mun fá tilfinningu fyrir því hvaða áhrif aldur og mismun- andi meðferð hefur á viskí, hvernig það eldist, verður mildara, léttara. Þetta verður skemmtilegt ferðalag.“ Félagsskapurinn skiptir öllu Blaðamaður forvitnast um sögu viskís. „Saga viskís nær yfir fimm hundruð ár aftur í tímann en upp- hafið má rekja til Írlands. Það voru írskir munkar sem þróuðu viskíið, þetta vatn lífsins, og komu með það til Skotlands. Við lítum því þann- ig á að Írar hafi fundið viskíið upp en Skotarnir hafi fullkomnað það.“ En hver er leyndardómurinn á bak við gott viskí? „Leyndarmálið snýst meira um félagsskapinn sem þú ert í þegar þú nýtur viskísins heldur en bragðið. Best er að njóta viskís með góðum vinum. Þetta snýst ekki um að drekka flöskuna heldur njóta hvers sopa hægt og ró- lega og hafa nægilega skynsemi til að mæta í vinnu daginn eftir,“ segir Skotinn og hlær. Master class-fyrirlestur Ians Mill- ar fer fram á Center Hótel Plaza á laugardaginn klukkan 17. Þúsund króna gjald er á fyrirlesturinn. Fræðir Íslendinga um viskí Ian Millar, sendiherra Glenfiddich-viskíframleiðandans, verður með master class-fyrirlestur á laugardaginn í tilefni Reykjavík Cocktail Weekend. Þar fræðir hann áhugasama um leyndardóma vískís og leyfir þeim að smakka á mismunandi gerðum. Hann hlakkar til að kynnast barmenningu Íslendinga og ætlar að nýta tímann vel þá fáu tíma sem hann dvelur í borginni. „Best að njóta viskís með góðum vinum. Þetta snýst ekki um að drekka flöskuna heldur njóta hvers sopa hægt og rólega,“ segir Ian Millar sem á að baki 41 ár í viskíbransanum.. Viðburðir í boði Reyka Vodka um helgina Austur Lavabarinn Það voru írskir munkar sem þróuðu viskíið, þetta vatn lífsins, og komu með það til Skotlands. 0 3 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 A 0 -5 C 0 8 1 3 A 0 -5 A C C 1 3 A 0 -5 9 9 0 1 3 A 0 -5 8 5 4 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.