Fréttablaðið - 04.02.2015, Blaðsíða 36
| 8 4. febrúar 2015 | miðvikudagur
Elísabet Ósk Guðjónsdóttir hefur
verið ráðin framkvæmdastjóri
PayRoll. Það er nýtt fyrirtæki
sem sérhæfi r sig í að þjónusta
fyrirtæki sem vilja útvista verk-
efnum varðandi laun og starfs-
mannamál. „Markmiðið er bara
að þetta sé fyrsti kostur allra
sem eru að leita sér að launa-
þjónustu. Við erum að koma að
útreikningi launa og líka að
greiða laun. Það er líka ráðgjöf
varðandi vinnutengda samninga,
ef fólk vantar ráðgjöf við að búa
til samninga, ráðningasamninga
og starfslokasamninga og svo-
leiðis,“ segir Elísabet.
Aðspurð segist Elísabet telja
að það sé aukinn áhugi á meðal
atvinnurekenda að útvista verk-
efnum eins og þessum. „Laun eru
viðkvæmt mál og við bjóðum upp
á það líka að fólk getur útvistað
fyrir ákveðna starfsmenn, það
þarf ekki að vera fyrir allt fyrir-
tækið, kannski stjórnendur eða
þá sem eru með bónusa eða því
um líkt,“ segir hún.
Framkvæmdastjóri Payroll
fer í badminton og bootcamp
Elísabet Ósk Guðjónsdóttir tekur við stjórnartaumunum hjá Payroll. Fyrirtækið sérhæfir
sig í þjónustu við önnur fyrirtæki sem vilja útvista verkefnum í starfsmannahaldi.
SVIPMYND
Jón Hákon Halldórsson | jonhakon@frettabladid.is
Hún er rosalega
skipulögð kona,
mjög skemmtileg
og hress stelpa
sem hefur gaman
af lífinu. Ég vinn
stundum með
henni og þess
vegna tek ég svo-
lítið eftir því hvað hún er skipulögð.
Hún er lífleg og opin manneskja sem á
auðvelt með að falla inn í hóp.
Atli Rafn Viðarsson,
framkvæmdastjóri hjá Nótu ehf.
„Hún er yndisleg,
ég held að það
sé ekki hægt
að hugsa sér
traustari mann-
eskju. Hún er
dugleg og mjög
samviskusöm,
klár og samkvæm
sjálfri sér. Eini gallinn er sá að það
mætti heyrast aðeins meira í henni ef
henni finnst eitthvað. Hún mætti rífa
kjaft og hún er svolítið feimin.“
Sóley Elíasdóttir,
eigandi Sóley Organics
MÆTTI RÍFA KJAFT
Elísabet segir að PayRoll sé
að þróa reiknivél sem fyrirtæk-
ið leggi áherslu á og sé um þess-
ar mundir að kynna fyrir mögu-
legum viðskiptavinum. „Þessi
reiknivél er bæði fyrir launa-
greiðendur og launþega og þeir
eiga að geta séð nákvæmlega
hvað þeir eru að fá í laun. Ef þeir
eru að semja um 600 þúsund, þá
geta þeir séð hvað þeir eru að fá
útborgað,“ segir Elísabet.
Áður en Elísabet hóf störf hjá
PayRoll var hún fjármálastjóri
hjá Sóley Orcanics „Við vorum
tvær, ég og Sóley, þannig að það
var heilmikil reynsla í því,“ segir
Elísabet. Þar áður var hún hjá
Auði Capital og Landsbankanum.
Þegar Sóley er ekki að vinna
kýs hún að hreyfa sig og ferðast
sem mest erlendis. „Ég var að
byrja í badminton, en annars eru
það þessar týpísku: spinning og
bootcamp og svoleiðis,“ segir
Sóley, aðspurð um uppáhalds-
hreyfi nguna.
Elísabet er í sambúð með
manni sem heitir Dennis Sla. „En
það eru hvorki börn né brúðkaup
enn þá,“ segir hún aðspurð út í
einkahagi.
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla-
bankastjóri mun kynna ákvörð-
un Seðlabanka Íslands um vexti
í dag. Þá kynnir Þórarinn G. Pét-
ursson, aðalhagfræðingur bank-
ans, efni Peningamála.
Hagdei ld Landsbankans,
Greiningadeild Arion banka,
Greining Íslandsbanka og IFS
spá allar að vextir verði lækkað-
ir um 0,25 prósentustig.
Greining Íslandsbanka telur
að rökin verði þau að ný verðból-
guspá bankans bendi til þess að
verðbólgan verði talsvert undir
síðustu spá Greiningar sem birt
var í nóvember
- jhh
Vaxtaákvörðun kynnt í dag:
Allir spá
lækkun vaxta
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/ERN
IR
STÝRIR NÝJU FYRIRTÆKI
Elísabet Ósk Guðjóns-
dóttir segist telja að það
sé aukinn áhugi meðal
atvinnurekenda að
útvista launavinnslunni.
Nú í febrúar munu fjölmörg fyrir-
tæki, bæði skráð og óskráð, birta
uppgjör sín. Marel ríður á vaðið
og birtir uppgjör í dag og mun svo
kynna uppgjörið betur fyrir fjár-
festum á morgun.
Bæði Össur og Icelandair Group
birta síðan uppgjör sín á fi mmtu-
daginn og FÍ fasteignafélag birtir
uppgjör sitt á föstudag.
Í síðustu viku birti Nýherji upp-
gjör, en algjör viðsnúningur varð
á rekstri félagsins. - jhh
Marel ríður á vaðið í febrúar:
Fjórir birta
ársreikninga
4.990.000 kr.
Kia Sportage EX
Árgerð 7/2013, ekinn 32 þús. km,
dísil, 1.995 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
eyðsla 6,0 l/100 km.
4.290.000 kr.
Kia Carens
Árgerð 9/2013, ekinn 32 þús. km,
dísil, 1.685 cc, 136 hö, sjálfskiptur,
eyðsla 5,1 l/100 km.
5.190.000 kr.3.690.000 kr.
Kia Sorento EX LuxuryKia cee’d EX
Árgerð 6/2012, ekinn 76 þús. km,
dísil, 2.199 cc, 198 hö, sjálfskiptur,
fjór hjóladrifinn, eyðsla 6,7 l/100 km.
Árgerð 6/2014, ekinn 7 þús. km,
dísil, 1.582 cc, 128 hö, sjálfskiptur,
eyðsla 5,5 l/100 km.
2.190.000 kr.
Kia Rio LX
Árgerð 5/2013, ekinn 76 þús. km,
dísil, 1.396 cc, 90 hö, beinskiptur,
eyðsla 4,1 l/100 km.
*Á
by
rg
ð
er
í
7
á
r
fr
á
sk
rá
ni
ng
ar
de
gi
b
if
re
ið
ar
Afborgun aðeins 33.847 kr. á mánuði m.v. 399.000 kr.
útborgun og 80% bílalán frá Landsbankanum í 72 mánuði.
9,0% vextir, 11,33% árleg hlutfallstala kostnaðar og lán
til 72 mánaða.
Útbo
rgun
aðe
ins:
399.
000
kr.
Hagstæð ármögnun
hjá Landsbankanum
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Allt að 7 ára
ábyrgð fylgir
notuðum Kia*Ábyrgð fylgir!
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
0
3
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
A
0
-6
A
D
8
1
3
A
0
-6
9
9
C
1
3
A
0
-6
8
6
0
1
3
A
0
-6
7
2
4
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K