Fréttablaðið - 12.03.2015, Side 16
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR ALÞINGI | 16
SÆTASKIPAN Á HÁTTVIRTU ALÞINGI ÍSLENDINGA
Haraldur
Benediktss.
Oddný G.
Harðardóttir
Guðmundur
Steingrímss.
Willum Þór
Þórsson
Kristján L.
Möller
Brynhildur
Pétursdóttir
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Róbert
Marshall
Bjarni
Benediktsson
Ólöf Nordal
Lilja Rafney
Magnúsd.
Einar K.
Guðfinnsson
Sigurður Ingi
Jóhannesson
Páll Valur
Björnsson
Sigmundur D.
Gunnlaugsson
Ragnheiður
E. Árnadóttir
Varamaður
Gunnar Bragi
Sveinsson
Kristján Þór
Júlíusson
Katrín
Júlíusdóttir
Illugi
Gunnarsson
Jóhanna M.
Sigmundsd.
Eygló
Harðardóttir
Bjarkey O.
Gunnarsdóttir
Sigrún
Magnúsdóttir
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Birgir
Ármannsson
Óttarr
Proppé
Vigdís
Hauksdóttir
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
Steingrímur
J. Sigfússon
Birgitta
Jónsdóttir
Jón
Gunnarsson
Ásmundur E.
Daðason
Þórunn
Egilsdóttir
Pétur H.
Blöndal
Jón Þór
Ólafsson
Guðlaugur Þ.
Þórðarson
Katrín
Jakobsdóttir
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Árni Páll
Árnason
Elsa Lára
Arnardóttir
Svandís
Svavarsdóttir
Þorsteinn
Sæmundss.
Guðbjartur
Hannesson Brynjar
Níelsson
Líneik Anna
Sævarsdóttir
Frosti
Sigurjónsson
Haraldur
Einarsson
Steinunn Þ.
Árnadóttir
Sigríður
Ingadóttir
Valgerður
Gunnarsdóttir
Páll Jóhann
Pálsson
Björt
Ólafsdóttir
Karl
Garðarsson
Valgerður
Bjarnadóttir
Helgi
Hjörvar
Vilhjálmur
Árnason
Ögmundur
Jónasson
Össur Skarp-
héðinsson
Einar K.
Guðfinnsson
Ásmundur
Friðriksson
Elín Hirst
Vilhjálmur
Bjarnason
Höskuldur
Þórhallsson
Hanna B.
Kristjánsdóttir
Varamaður
Innanríkis-
ráðherra
Sjútv.- og
landbrh.
Sjútv.- og
landbrh.
Iðn.- og
viðskrh.
Fjm.- og
efnhrh.
Forsætis-
ráðherra
Utanríkis-
ráðherra
Mennt.- og
mennmrh.
Fél.- og
húsnrh.
Umhv.- og
auðlrh.
Forseti
Alþingis
?
?
Alþingi Íslendinga er eina þjóðþing
heimsins þar sem þingmenn draga
um sæti. Aldrei þessu vant er því
innistæða fyrir því þegar Íslend-
ingar segjast vera einstakir í ein-
hverjum efnum, þótt deila megi um
það hve merkilegt það er. Þar sem
engir þingfundir eru þessa vikuna
beinir Fréttablaðið nú þingsjánni
að sætaskipan þingmanna.
Þorsteinn Magnússon, aðstoðar-
skrifstofustjóri Alþingis, skrif-
aði grein í tímaritið Stjórnmál og
stjórnsýslu í desember þar sem
hann rekur sögu sætisdráttarins.
Á fyrstu árum endurreists Alþing-
is giltu engar sérstakar reglur um
sætaskipan, en árið 1915 er dregið
í sæti. Það liðu þó 40 ár þar til sá
siður festi sig í sessi. Líklegast
er það tekið upp frá fulltrúadeild
Bandaríkjanna, þar var dregið um
sæti fram til ársins 1913. Í öðrum
þjóðþingum er venjan hins vegar
sú að setið sé eftir flokkadráttum.
„Það má segja að það felist
ákveðin þversögn í því að á
Alþingi, sem er samkoma fulltrúa
sem kjörnir eru af flokkslistum
en ekki sem einstaklingar, skuli
mönnum skipað til sætis í þingsal
út frá einstaklingum en ekki flokk-
um,“ segir Þorsteinn í grein sinni.
Í gegnum tíðina hafa menn tekið
ástfóstri við ákveðin sæti. Eysteinn
Jónsson, fyrrverandi formaður
Framsóknarflokksins, skipti til að
mynda alltaf við þá sem drógust í
hans uppáhaldssæti og vermdi það
í rúman áratug. Þingmenn eru þó
ánægðir með þetta fyrirkomulag,
að mati Þorsteins.
Einnig eru til dæmi um að þing-
menn hafi ekki viljað sitja við
hliðina á kollegum sínum. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir skipti til
að mynda um sæti við flokkssystur
sína úr Kvennalistanum, Jónu Val-
gerði Kristjánsdóttur, árið 1993.
Með því losnaði hún við að sitja við
hliðina á Hjörleifi Guttormssyni,
en þau höfðu eldað grátt silfur
saman varðandi aðild að EES.
kolbeinn@frettabladid.is
Eina þingið sem dregur um sæti
Alþingismenn draga um sæti í upphafi hvers þings. Þeir vita því ekki hver kemur til með að verða sessunautur þeirra næsta árið. Tíðkast
hvergi í öðrum þjóðþingum. Almenn ánægja ríkir með fyrirkomulagið á meðal þingmanna sem skiptast á tískuráðum og almennu gríni.
„Það er náttúrulega frábært að sitja við hliðina
á Óttari og við göntumst stundum með það
að við ljóskurnar sitjum saman í þinginu,“
segir Vigdís.
„Það er gaman að sjá myndir af okkur
því það má oft vart á milli sjá hvort er
með síðara hár. Ég er stundum í vafa um
það hvort það er ég eða hann sem er á
myndum sem teknar eru af okkur aftan
frá. Nú er hann búinn að stytta hárið
þannig að ég er farin að þekkja okkur
í sundur. En Óttarr Proppé er nátt-
úrulega bara mikill öðlingur. Hann
er víðsýnn og mikill pælari og
ég er virkilega ánægð með að
hafa hann fyrir sessunaut.“
Vigdís er hrifin af þeirri
hefð að draga um sæti. Það
sé skemmtilegt að sjá þegar
drætti við þingsetningu er
lokið hverjir sitji saman.
„Ég hef átt marga skemmti-
lega sessunauta. Ég held líka
að það sé betra að gera þetta
einu sinni á ári, þannig að
maður verði ekki fastur
í fjögur ár í sæti við
hliðina á einhverjum
sem manni ekki líkar.
Það væri bömmer.“
„Það getur verið mjög ánægjulegt að sitja við
hliðina á Vigdísi. Við erum oft ósammála í
pólitík en látum það ekki stoppa okkur í
að vera sætavinir,“ segir Óttarr.
„Ég á ákveðinn hauk í horni í Vigdísi
þegar kemur að tískumálum. Við
ræðum oft saman um klæðaburð
og styðjum hvort annað í tísku-
málum. Þó að við séum kannski
ekki alveg í sama flokki berum
við mikla virðingu fyrir
tískuflokkum hvort
annars.
En síðan er ég
með ljómandi
góðan sessunaut
hinum megin
við mig sem
er Birgir
Ármannsson. Ég hef það á tilfinn-
ingunni að Birgir búi yfir lúmskari
húmor en margir aðrir í þingsal. Við
höfum mjög gaman af því að ræða
saman um það sem er til umræðu
og tengja það sérviskulegum
áhuga okkar beggja og komumst
þá að skemmtilegum niðurstöðum
og skemmtilegum fordæmum sem
hafa yfirleitt ekkert gildi nema
skemmtanagildi fyrir okkur,“ segir
Óttarr. Hann segir þá Birgi þó ekki
ræða tískumál mikið.
RUGLAST HVORT Á ÖÐRU OG DEILA TÍSKURÁÐUM
Vigdís Hauksdóttir og Óttarr Proppé eru sessunautar á yfirstandandi þingi. Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvernig þeim líkaði vistin hvoru við annars hlið, þar sem við
fyrstu sýn virðast þau ekki eiga mikið sameiginlegt, hvorki í stjórnmálum né áhugamálum. Þau bera hvort öðru hins vegar vel söguna.
Nú er hann búinn að
stytta hárið þannig að ég
er farin að þekkja okkur
í sundur.
Vigdís Hauksdóttir
Við ræðum oft saman
um klæðaburð og styðjum
hvort annað í tískumálum.
Óttarr Proppé
Illugi Gunnarsson
í umræðum um innheimtuaðgerðir LÍN
Það er alveg rétt sem háttvirtur þingmaður
Árni Páll Árnason] hefur sagt, það er búið að gera
breytingar á ábyrgðarmannalögunum, en hér er um
að ræða ábyrgðir sem sannarlega eru til staðar og
voru samþykktar fyrir þau lög. Lánasjóðurinn og
stjórn hans eru bara að uppfylla þá skyldu sem lög
kveða á um. Lánasjóðsstjórnin hefur engar heimildir
til að fella niður skuldir eða ábyrgðir.
Lilja Rafney Magnúsdóttir
í umræðum um stöðu veikra byggða
„Það hefur ekki farið fram hjá neinum sá mikli
vandi sem fjöldi minni sjávarbyggða hefur staðið
frammi fyrir undanfarin ár þegar þær hafa misst frá
sér aflaheimildir og óvissa og atvinnuleysi blasir við
íbúum. Við getum farið hringinn í kringum landið
og horft til staða eins og Raufarhafnar, Breiðdals-
víkur, Djúpavogs, Bíldudals, Tálknafjarðar, Þingeyrar,
Flateyrar, Suðureyrar og nú síðast bárust þær
fréttir frá Hólmavík að hugsanlega yrði helmingur
aflaheimilda Strandabyggðar seldur burtu.“
Árni Páll Árnason
í umræðum um innheimtuaðgerðir LÍN
„Hér heyrðum við varnarræðu fyrir hið gamla Ísland,
regluna um að þriðja manns ábyrgðir séu alltaf skyn-
samlegar og að fólk eigi endurkröfu á hendur aðal-
skuldara. Þetta er gamla ræðan sem fór með okkur
á hörmulegan stað og gróf undan ábyrgðarkennd í
fjármálakerfinu. Það er hrikalegt að heyra að það
skuli vera menntamálaráðherra landsins og ríkis-
stjórnin sem núna gangi á undan og láti opinberar
stofnanir ganga harðar fram en bankar voga sér að
gera gagnvart þriðja manns ábyrgðum.“
ÞINGSJÁ
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
GJ
AL
LA
RH
O
RN
IÐ
Við ljóskurnar sitjum saman í þinginu Virðum tískuflokk hvort annars
1
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:0
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
1
C
-1
8
9
0
1
4
1
C
-1
7
5
4
1
4
1
C
-1
6
1
8
1
4
1
C
-1
4
D
C
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K