Fréttablaðið - 12.03.2015, Page 52
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 40
Jessica Walsh er grafískur hönn-
uður, listrænn stjórnandi og með-
eigandi hönnunarfyrirtækisins
Sagmeister & Walsh í New York. Á
DesignTalks í dag mun Walsh tala
um mikilvægi þess að leyfa sér að
taka áhættu, mistakast, gera til-
raunir og uppgötva, en það er eitt-
hvað sem hún sjálf hefur tileink-
að sér þrátt fyrir að það hafi ekki
alltaf verið auðvelt. Meðal ann-
ars hafnaði hún starfstilboði frá
Apple þegar hún var nýútskrifuð
og ákvað að fylgja innri sannfær-
ingu frekar.
„Ég elska Apple og heimspeki
þeirra og ég hef heyrt að það sé
dásamlegur vinnustaður. Samt
sem áður var eitthvað innra með
mér sem sagði mér að ég yrði ham-
ingjusamari og myndi finna fleiri
áskoranir af því að vinna á vinnu-
stofu þar sem þú þarft að takast
á við ólíkar gerðir viðskiptavina
og áskoranir á hverjum degi,“
segir Walsh en í kjölfarið fór hún
í starfsnám hjá hönnuðinum Paula
Scher hjá fyrirtækinu Pentag-
ram. „Mér fannst vera mikið sem
ég gæti lært þar og var tilbúin til
þess að taka mikla launaskerðingu
til að byrja með til þess að ég gæti
unnið þá vinnu sem ég vil vinna til
lengri tíma. Það var mikil áhætta
en borgaði sig.“
Fór á stefnumót í 40 daga
Í mars árið 2013 hófu Walsh og
vinur hennar, Timothy Goodman,
verkefnið 40 Days of Dating, int-
ernet-verkefni þar sem þau fóru á
stefnumót hvort með öðru í fjöru-
tíu daga og gerðu stefnumótunum
og tilfinningum sínum skil á sam-
nefndri vefsíðu. Verkefnið sló í
gegn og vakti mikla athygli. Í kjöl-
farið var gefin út samnefnd bók og
Warner Brothers keyptu réttinn á
handritinu.
Walsh og Goodman hafa fengið
þúsundir tölvupósta víðs vegar að
úr heiminum frá einstaklingum
sem verkefnið snerti við á einn
eða annan hátt. „Eitt af mínum
aðalmarkmiðum er að snerta fólk
á einhvern hátt í gegnum vinnuna
mína, það að hljóta þessi viðbrögð
hefur því verið ótrúlegt og gert
mig auðmjúka,“ segir Walsh en
líkt og áður kemur fram stendur
til að gera sögu þeirra skil á hvíta
tjaldinu. Lorene Scafaria skrifar
handritið og leikstjórn er í hönd-
um Michael Sucy.
Hefur hannað frá barnsaldri
40 Days of Dating markaði þó ekki
upphaf ferils Walsh, sem hefur
kóðað og hannað vefsíður frá ell-
efu ára aldri, þótt verkefnið hafi
vissulega gert hana þekktari meðal
almennings.
„Fyrir fjórum árum stofnaði ég
Sagmeister & Walsh ásamt Stefan
Sagmeister. Verkefni okkar voru
vel þekkt innan hönnunarheims-
ins en ekki eins þekkt af almenn-
ingi. 40 Days of Dating-verkefnið
breytti því og gerði okkur kleift
„Þetta er skemmtileg og litrík
lesning, efnið snýst um allt frá
fatahönnun yfir í keramik, og
skart yfir í borgarskipulag,“ segir
Arnar Fells, ritstjóri nýs tíma-
rits sem heitir HA. Það fjallar um
hönnun og arkitektúr og er gefið út
af Hönnunarmiðstöðinni sem níu
aðildarfélög standa að.
Tímaritið er veglegt, 128 síður
að stærð og prentað á mjúkan
pappír, skrifað á tveimur tungu-
málum, íslensku og ensku, og
skreytt mörgum myndum úr
hinum ýmsu kimum hönnunar,
eins og Arnar ritstjóri bendir á.
Æ fleiri skilja nú mikilvægi
hönnunar því vitundarvakning
hefur orðið á því sviði, eins og
segir í formála ritsins. Þaðan er
líka eftirfarandi setning: „Við vilj-
um efla almennan áhuga á hönn-
un og arkitektúr með því að sýna
áhrif greinanna og mikilvægi
þeirra. HA mun verða vettvangur
gagnrýninnar hugsunar og stuðla
að aukinni þekkingu á hönnun og
arkitektúr. Hvað er meira viðeig-
andi en að tengja nafn slíks tíma-
rits við spurnarorðið ha? Hið sér-
kennilega íslenska orð sem lýsir
undrun og fróðleiksfýsn, sem eru
einmitt dyggðir skapandi fólks.“
- gun
TÍST VIKUNNAR
STOLTIR Arnar Fells ritstjóri og Arnar Ingi
Viðarsson efnisstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Litríkri lesningu
fagnað úti á Granda
Útgáfuhóf HA, nýs tímarits um hönnun og arkitektúr á
Íslandi, var haldið í gær á Mat og drykk á Granda. Það
fj allar um allt frá skarti og keramiki til borgarskipulags.
KJARNAKONUR Guðrún Margrét
Ólafsdóttir húsgagnahönnuður og Halla
Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönn-
unarmiðstöðvar.
Árni
Vilhjálmsson
@Cottontopp
Jafnrétti á að vera
jafn normcore og ýsa og kart-
öflur með smjöri á mánudegi.
Bergur
Ebbi
@BergurEbbi
Silfur er of líkt
current macbook. Golden er
of mikið eins og maður sé
egypskur. Er ekki space grey
málið?
Berglind
Festival
@ergblind
Ég hækka alltaf
ógeðslega mikið í útvarpinu
þegar það kemur Quarashi lag.
Manuela
Ósk
@manuelaosk
Hæ Anna Wintour–
gaman að sjá þig. Ok. Núna get
ég bara dáið or some …
Unnur
Eggertsdóttir
@UnnurEggerts
Mér finnst að
#stelpuratwitter ættu að hitt-
ast einu sinni í viku og faðmast
og ákveða hvernig við eigum
að bjarga landinu
(og/eða heiminum).
#STELPURATWITTER, TÍSKUVIKA OG JAFNRÉTTI
Gott að taka áhættu og mistakast
Internet-verkefnið 40 Days of Dating kom grafíska hönnuðinum Jessicu Walsh svo sannarlega á kortið. Samnefnd bók hefur verið gefi n
út og Warner Brothers hafa keypt réttinn á handritinu. Jessica er stödd á Íslandi til að fl ytja erindi á DesignTalks á HönnunarMars.
HÖNNUÐURINN Jessica Walsh hefur tileinkað sér að taka áhættu, mistakast, gera tilraunir og uppgötva. Það hefur komið henni
ansi langt á ferli hennar. MYND/HENRY HARGREAVES
40 DAYS OF DATING Jessica Walsh og
vinur hennar, Timothy Goodman, fóru
á stefnumót hvort með öðru í fjörutíu
daga og gerðu stefnumótunum og
tilfinningum sínum skil á vefsíðunni
Forty Days of Dating. Verkefnið sló í
gegn og síðan það hófst hafa Walsh og
Goodman fengið yfir tíu þúsund gesti
á heimasíðuna og þeim hafa borist
þúsundir tölvupósta alls staðar að úr
heiminum. MYND/SAGMEISTERWALSH.COM
að tala við áheyrendur utan hins
skapandi samfélags. Það var mjög
spennandi og við vonumst til þess
að gera meira af því í framtíðinni,“
segir hún en á meðal viðskipta-
vina þeirra eru Levis, Red Bull,
Museum of Modern Art, The New
York Times og Adobe.
Karlaklúbbur hönnuða
Hún segir hönnun að ákveðnu leyti
hafa verið karlaklúbb í gegnum tíð-
ina þar sem mest áberandi einstak-
lingar innan geirans hafi í flestum
tilfellum verið karlkyns.
„Það getur haldið aftur af
ungum konum, þú þarft fyrir-
myndir og einstaklinga til þess
að líta upp til á þínum vettvangi
til þess að öðlast trú á það að þú
getir skapað þér lifibrauð í hinum
skapandi heimi. Ég lít upp til svo
margra hæfileikaríkra kvenna, til
dæmis Paulu Scher, Mairu Kal-
man, Ray Eames, listinn heldur
áfram og áfram.“
Walsh segir jafnframt að fleiri
ungar og hæfileikaríkar konur
séu að ryðja sér til rúms og skapa
sér nafn. „Af minni kynslóð og á
meðal þeirra sem eru yngri sé ég
marga hæfileikaríka unga kven-
kyns hönnuði sem eru að skapa
sér nafn. Það er mjög spennandi.“
Erindi Walsh hefst klukkan þrjú
í Hörpu, Silfurbergi.
1
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:0
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
1
C
-3
1
4
0
1
4
1
C
-3
0
0
4
1
4
1
C
-2
E
C
8
1
4
1
C
-2
D
8
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K