Fréttablaðið - 12.03.2015, Page 62
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
Fyrir okkur Unni er
þetta fullkomin leið til
að nýta frítímann í
eitthvað uppbyggilegt.
Magnús Máni Hafþórsson, sautján
ára menntaskólanemi, fékk hug-
myndina að sölusíðunni dressed.
is þegar hann tók til í skápunum
heima hjá sér og vissi ekki hvað
hann ætti að gera við heilu pokana
af fötum. Hann kom svo síðunni á
fót í síðustu viku með aðstoð kær-
ustunnar, Unnar Óskar Burkna-
dóttur.
„Ég sá gat í markaði og fór í að
búa til síðuna. Unnur Ósk hefur svo
séð um textagerðina,“ segir Magn-
ús en síðan er hugsuð sem vett-
vangur fyrir fólk úr öllum áttum
til að selja og kaupa notuð föt án
endur gjalds. Vinsældirnar létu
ekki á sér standa. Á fimm dögum
hafa fimm þúsund einstakar IP-töl-
ur verið skráðar.
„Flettingarnar á þessum tíma
eru rúmlega nítján þúsund. Ég
vonaðist til að ná til kannski tvö
hundruð manns á dag svo þessar
tölur koma rosalega á óvart,“ segir
Magnús himinlifandi með viðtök-
urnar. „Þetta er fullkomin leið til
að nýta frítímann í eitthvað upp-
byggilegt. Ætli við höfum ekki bara
aðeins of mikinn frítíma.“ - ga
Neyðin kennir nöktum nemum að selja dót
Fátækir námsmenn gera það gott með fatasölusíðu á netinu. Vinsældirnar komu skemmtilega á óvart.
KÆRUSTUPARIÐ Magnús og Unnur
reka sölusíðuna saman meðfram námi
í Menntaskólanum við Sund.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Uppáhaldsskyndibitinn er pitsa
með öllu.“
Guðmundur Ingi Úlfarsson leturhönnuður.
UPPÁHALDSSKYNDIBITINN?
„Leikstjóri myndbandsins,
Joseph Kahn, bað mig
um að koma og stílisera
með teyminu hennar,“
segir Edda Guðmunds-
dóttir stílisti.
Edda vann með popp-
stjörnunni Taylor Swift
í myndbandi við lagið
Blank Space, af nýjustu
plötunni stjörnunnar
1989.
„Ég hef unnið
töluvert mikið með
Kahn, en hann hefur
leikstýrt yfir fimm
hundruð tónlistar-
myndböndum erlend-
is. Hann fékk meðal
annars MTV Europe
Icon-verðlaunin fyrir
vinnu sína í tónlistar-
bransanum.“
Edda segir það hafa
verið mjög gaman að
vinna með Swift og
að hún og allt hennar
teymi hafi verið ein-
staklega faglegt.
„Það er alltaf mikið
af fólki með í ákvarð-
anatökum fyrir verk-
efni af svona stærðar-
gráðu. Fyrir Taylor í
þessu tilfelli snerist
þetta líka mikið um
að koma með nýja
ímynd fyrir hana,
án þess að það hefði
áhrif á aðdáendahóp
hennar.“
Edda er búsett í
New York og vinn-
ur mestmegnis þar
og í Los Angeles. Taylor
Swift er ekki eina stóra nafnið sem
hún hefur unnið með, Edda hefur
einnig unnið með Alicia Keys og
Barbra Streisand. Nýlega vann
hún með fatahönnuðinum Bern-
hard Wilhelm fyrir stóra sýningu
á MOCA-safninu í Los Angeles.
„Núna fyrir stuttu vann ég
með Kahn að Power Ranger-
stuttmynd. Sú stuttmynd varð
svo vinsæl að síðan hrundi,“
segir Edda en í myndinni léku
þau Katee Sackhoff og James
Van Der Beek, sem flestir
þekkja sem Dawson úr Daw-
son‘s Creek.
Hún hefur lítið unnið hér
heima og segir það mjög
ólíkt því að vinna vestan hafs.
„Verkefnin úti eru stór og oft
er mikið fjármagn að baki.
En hér heima er svo mikið af
spennandi hæfileikaríku fólki
sem er svo opið og tilbúið að
prófa alls konar hluti.“
Edda er komin hingað til
lands til þess að stílisera
nýjustu línu Hildar Yeom-
an, Flóra. „Hildur er með
seiðkonuþema á sýning-
unni í ár. Grös, galdrar
og sterkar kvenfyrir-
myndir verða í aðalhlut-
verki. Þetta er ótrúlega
spennandi uppsetn-
ing sem við erum að
vinna að og mikið
af hæfileikaríku
fólki sem kemur að
þessari sýningu.“
Sýningin verður haldin í Vörðu-
skóla á Skólavörðuholti í kvöld og
er hluti af HönnunarMars. „Það
verður eitthvað þarna fyrir alla,
hvort sem þú hefur áhuga á tón-
list, dansi, arkitektúr, tísku eða
töfrum.“
adda@frettabladid.is
Stíliseraði Taylor
Swift í myndbandi
Edda Guðmundsdóttir var fengin til þess að stílisera poppstjörnuna fyrir
tónlistarmyndband. Næst á dagskrá hjá henni er sýning Hildar Yeoman í kvöld.
NÓG AÐ GERA Edda býr í New York og starfar þar og í Los Angeles.
HILDUR YEOMAN
TAYLOR SWIFT
Fyrir Taylor í þessu
tilfelli snerist þetta líka
mikið um að koma með
nýja ímynd fyrir hana, án
þess að það hefði áhrif á
aðdáendahóp hennar.
Edda Guðmundsdóttir
stílisti.
1
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:0
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
1
C
-2
C
5
0
1
4
1
C
-2
B
1
4
1
4
1
C
-2
9
D
8
1
4
1
C
-2
8
9
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K