Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Page 8
Fimmtudagurinn 16. desember 1993
8
Virðisaukaskattur á farþegaflutninga innanlands:
15 milljóna aukaskattur
á Vestmannaeyinga
-Þar af er hlutur íþróttahreyfingarinnar 1350 þúsund
°g segja talsmenn hennar að þetta sé skref í þá átt að
rústa starfsemi hennar úti á landsbyggðinni.
Ef 14% virðisaukaskattur á far-
þcgaflutninga innanlands vcrður
settur á um áramót hækkar
heildarkostnaður við það að
komast á milli lands og Eyja um
15 milljónir króna á ári. Er þá
bæði átt við farþcgaflutninga í lofti
og með Herjólfi. l>ar af er hlutur
íþróttahreyfingarinnar um ein og
hálf milljón króna. Þessi skatt-
lagning hefur rcttilega verið
kallaður átthagaskattur og leggst
því harðar á fólk eftir því sem
lengra er farið frá Reykjavík. Að
því leyti standa Vestmannaeyingar
betur að vígi en margir íbúar
landsbyggðarinnar en á móti
kemur að cngir eru eins háðir
fólksflutningum og Eyjamcnn af
skiljanlegum ástæðum.
Talsverð átök eru um málið á
Alþingi og voru stjómarandstöóu-
þingmenn sem blaðið ræddi við
alfarið á móti. Ami Johnsen (D)
segist hafa lagst gegn virðisauka-
skatti á flug en hann eigi við ramman
reip að draga og erfitt verði fyrir sig
að draga sig út úr ef stjómar-
flokkamir samþykkja skattinn.
8-10% hækkun
Ekki liggur Ijóst fyrir hvað far-
gjöld með flugi og Herjólfi muni
hækka með tilkomu 14% virðisauka-
skatts en þeir sem blaðið ræddi við
telja flestir aö hún verði á bilinu 8%
til 10% og er þá tekið tillit til inn-
skatts. Sé miðað við að hækkunin
verði 9%, verður hækkunin, eftir því
sem blaðið kcmst næst, um 15
milljónir króna. Farþcgar með flugi
þurfa að greiða um 10 milljónir
umfram það sem þeir greiddu á
þessu ári og farþegar með Herjólfi
um 5 milljónir. Auk þessa greiða
Eyjamenn umtalsverðar upphæðir í
vsk. af vöruflutningum og sem dæmi
má nefna að á næsta ári gerir
Herjólfur hf. ráð fyrir að innhcimta
15,3 milljónir í vsk. af farþega- og
vörufiutningum.
Iþróttahreyfingin hcfur ályktað
gegn virðisaukaskattinum og þar
segir m.a. að ferðakostnaður hennar
skipti milljónum á ári hverju.
„Upptaka virðisaukaskatts á flugfar-
gjöld á því eftir að valda henni
miklum útgjaldaauka. Nú á tímum
samdráttar í tekjuöflun hennar eins
og annarra landsmanna, er því alveg
augljóst að þessi nýi skattur kemur
til með að bitna á því mikla æsku-
lýðsstarfi sem íþróttafélögin rækja.
Samciginlegur fundur íþrótta-
hreyfingarinnar í Vestmannaeyjum
mótmælir harðlega upptöku þessa
skatts á llugfargjöld og tclur þctta
nánast aðför að sér, og skref í þá átt
að leggja í rúst íþróttastarf á lands-
byggðinni," segir í niðurlagi bréfs-
ins.
Ljóst er að um umtalsvcrðar upp-
Áætlað er að Herjólfur hf. greiði 15,3 milljónir í virðisaukaskatt af
farþcga og vöruflutningum á næsta ári.
\NDiFLUC
Þeir sem fcrðast með flugi milli lands og Eyja greiða um 10 milljónir
aukalcga fyrir fargjöld sín vegna virðisaukaskattsins.
hæðir verður að ræða fyrir íþrótta-
hreyfinguna, því á árinu 1992
greiddi hún um 15 milljónir króna í
ferðakostnað og 9% hækkun vegna
vsk. þýðir um 1,3 milljón króna
hækkun á næsta ári.
fiokkurinn hefur sent frá sér ályktun
þar sem þessu er harðlega mótmælt,"
sagði Margrét.
„Hvar á að draga
mörkin?“
„Byggðafjandsamleg“
„Ég tel ekki annað fært en að fallið
verði frá þcssari skattheimtu því hún
er byggðafjandsamleg. Skattar verða
að vera með þeim hætti að þeir falli
jafnt á alla en hér er verið að tala um
að Vcstmannaeyingar og aðrir íbúar
á landsbyggðinni verði að greiða sér-
staklcga í ríkissjóð af flugiog öðrum
fiutningum, sagði Guðni Ágústsson
(B) alþingismaður í samtali við
FRÉTTIR.
Mér finnst að ef þcssi skattheimta
fer í gegnum þingið sé ríkisstjómin
að ganga fyrir björg hvað lands-
byggðina varðar. Við framsóknar-
menn höfum bent á aðrar leiðir, mun
réttlátari," hélt Guðni áfram.
Margrét Frímannsdóttir, alþing-
ismaður Alþýðubandalagsins, tók í
sama streng og sagði fráleitt að skatt-
leggja landsbyggðina með þessum
hætti. „Viröisaukaskattur á ferðalög
innanlands samræmist cngan veginn
stefnu ríkisstjómarinnar, sem kemur
fram í hvítu bókinni, Velferð á
varanlcgum grunni. Einnig bitnar
þetta harkalcga á íþróttafélögum í
Vestmannaeyjum pg annars staðar á
landsbyggðinni. Á sama tíma cr
verið að minnka framlög til íþrótta-
hreyfingarinnar þrátt fyrir það mikla
forvamarstarf sem hún vinnur. Þing-
Árni Johnsen, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins telur að of mikið sé í
lagt þegar því sé haldiö fram að far-
gjöld hækki um 9%, með tilkomu
virðisaukaskattsins. „Hækkunin gæti
orðið 4% til 5%, en menn em ekki
klárir á því ennþá. Það er engin
spuming að þetta er kostnaðarauki
en það er erfitt að skilgreina hvar á
að draga mörkin og hvar á að stoppa.
Á að fella niður vsk. af langferða-
bílum, flugi eða ferjgrn," sagói Ámi
og taldi að ríkisstjórrfin stæði frammi
fyrirerfiðu máli. „Menn em að reyna
að hala inn tekjur af þjónustu-
gjöldum en þrátt fyrir þaö verður
halli á ríkissjóði 13 milljarðar á
næsta ári en tekjur 103 milljarðar. Ef
ekki hefði verið bmgðist við fyrir
þremur árum hefði hallinn orðið 50
milljarðar. Á hinn bóginn,. hef ég
barist af hörku gegn skatti a innan-
landsflugið og óskaði eftir sérstakri
umræðu um það í þingflokknum.
Veit ég ekki enn þá hvernig þeirri
samningalotu lyktar. Ég muTi reyna
hvað ég get en ég verð að sætta mig
við niðurstöðuna hver sem hún
verður. En við emm á blússandi ferð
með mörg góð mál í Vestmanna-
eyjum, t.d. Framhaldsskólann,
vegagerð, höfnina, Háskóla Islands í
Eyjurn og skattstofan verður áfram,“
sagði Ámi að lokum.
Aðventuteiti í Veiðarfœragerðinni
Gaui Manga, Biggi Gauja og Hallgrímur Þórðar buðu til teitis í Veiðar-
færagcrðinni sinni á fóstudagskvöldið. Báðir eru miklir þjóðhátíðarmcnn
og fannst því eðlilegt að hafa tcitið í anda Þjóðhátíðar. Útbjuggu þcir tjald-
himin úr trollstykkjum og fyrir cndanum var nctariðill. I loftinu hékk
skraut og langborð var eftir tjaldinu endilöngu. Strákunum á Valdimar
Sveinssyni VE var boðið í teitið að þessu sinni og stóðu þeir fyrir alls konar
leikjum og uppákomum og allir virtust skemmta sér hið besta.
>
Starfsmcnn Pósts og síma ásamt Sigurði Jónssyni stöðvarstjóra (annar frá hægri) við nýju stafrænu stöðina.
Öll númer veröa stafræn í byrjun janúar
I>essa dagana er að ljúka prófun-
um á nýrri stafrænni stöð í
Símstöðinni í Eyjum scm tekin
verður í notkun á fyrstu dögum
næsta árs. Með tilkomu hennar
verða öll símanúmer í Vestmanna-
eyjum stafræn scm þýðir aukna og
bætta þjónustu fyrir símnotcndur.
Kristján Pétursson, starfsmaður
Pósts og síma, sagði í samtali við
FRÉ'ITIR að hluti símnúmera í
Eyjum hefði verið stafrænn og voru
þau keyrð í gegnum litla stöð sem
komið var fyrir í símstöðinni. „En í
annarri viku janúar verða öll númer í
Eyjum stafræn. Þá býðst notendum
ýmis þjónusta sem aðeins er hægt að
keyra í gegnum stafrænar stöðvar,
eins og t.d. fiutning á símtölum,
símafundi og fleira. Oll afgreiðsla er
margfalt hraöari og hringir um leið
og búið er að velja síðasta staf í
númeri. Nýja stöðin er með 2300
númer og ef þarf að stækka hana
tekur það ekki nema einn dag að bæta
við 250 númerum," sagði Kristján.
í gömlu stöðinni voru 2000 númer
og fyllir hún sal sem er á milli 300 og
400 fermerrar en nýja stöðin tekur
ekki nema 4 fermetra gólfpláss.