Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Page 17
Fimmtudagurinn 16.
desember 1993
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar:
Heildartekjur rúmir 3 milljarðar
-Tekjur jukust um 50%, en þrátt fyrir það nam tapið 342,5 milljónum
á síðasta ári sem er tilkomið vegna gengisbreytinga.
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar
hf. var haldinn á laugardaginn og
þar kom fram að heildartekjur á
síðasta reikningsári, frá 1. septem-
ber 1992 til 31. ágúst sl., voru 3.055
milljónir króna en voru 2.109
milljónir árið á undan. Tekju-
aukningin er 49% á milli áranna
þegar 55 milljóna greiðsla úr Verð-
jöfnunarsjóði er tekin með. Tapið
nam 342,5 milljónum sem skrifast
að mestu á gengistap sem allt var
gjaldfært á árinu.
Þetta kom fram í ræðu Sighvatar
Bjamasonar, framkvæmdastjóra, á
fundinum. Jafnframt kom fram hjá
Sighvati að rekstrartekjur að frá-
dregnum afla eigin skipa námu 2.582
milljónum en voru 1.690 milljónir
árinu á undan. Er aukningin 58% að
frátöldum greiðslum úr Verð-
jöfnunarsjóði. Rekstrargjöld hækk-
uóu úr 1.472 milljónum í 2.172
milljónir á milli áranna, eða um 47%.
Sagði Sighvatur að þetta sýndi batn-
andi rekstur.
Hjá Vinnslustöðinni störfuðu að
jafnaði 380 manns en voru 520 þegar
mest var.
Eldur í
Andvara
Sl. föstudag um kl. þrjú var
slökkviliðið kallað um borð í
Andvara VE sem lá við Skipa-
lyftuna.
Kviknað hafði í einangrun út frá
neistum við logsuðu þegar verið var
að setja upp skutrennuloka. Mikill
reykur myndaðist en starfsmenn
Skipalyftunnar höfðu að mestu
slökkt eldinn þegar slökkviliðið kom
á vettvang. Að sögn lögreglu var tjón
óverulegt og mesta mildi að ekki
skyldi fara verr.
Tjón var óverulegt þcgar eldur kviknaði í Andvara á föstudaginn,
Föstudagskvöld
Diskótek fyrir 16 ára.
Aðganseyrir kr. 500.
Það verður villt stuð,
sannkallað próflokastuð.
Nú mæta allir.
Föstudags- og laugardagskvöld:
Hljómsveitin
Dans á rósum
sem hefur slegið í gegn heldur uppi góðri
stemmningu allt kvöldið.
íslenskur ángórufatnaður
Undiifót, sokkar, hlífðar- og
heilsufatnaður úrfínull.
Fœst í apótekinu
Erill hjá lögreglu:
Stöðvaði
hópslagsmál
Mikill crill var hjá lögreglu um
síðustu helgi, sérstaklega að-
faranótt sunnudags. Virðist
sem Eyjamenn hafi verið sér-
lega duglcgir við jólaglöggið en
einnig voru unglingar að fagna
próflokum og hafði lögreglan
mest afskipti af þeim í miðbæn-
um.
Um kl. 04:25 var lögreglunni
tilkynnt um hópslagsmál á
Strandveginum við Klett. Lög-
reglan skarst í leikinn og stöðvaði
slagsmálin. Fyrr um nóttina hafði
lögreglan stöðvað ökumann,
grunaðan um ölvun vió akstur,
sem er 26. stúturinn á þessu ári.
í síðustu viku sáu starfsmenn
Sparisjóðsins að eldur hafði
kviknað í aðventukransi í há-
deginu í hannyrðaversluninni
Zikk Zakk sem er beint á móti
Sparisjóðnum í Bárugötunni.
Eigandi Zikk Zakk sem var í mat
var ræstur út og tókst að slökkva í
aðventukransinum áður en
frekara tjón hlytist af.
Lögreglan hefur verið meó
klippumar á lofti síðustu vikuna
og klippt af um 40 bifreiðum
vegna þess að bíleigendur hafa
trassað endurskoðun eða ekki
borgað bifreiðagjöldin. Lög-
reglan mun halda áfram
aðgerðum sínum á næstunni
þannig að öllum er ráðlagt að
borga gjöldin hið snarasta.
Gisting í Reykjavík
Vel búnar íbúðir, 2ja og 3ja
herbergja, aðstaða fyrir allt
að 6 manns. Upplýsingar hjá
Grími og Önnu í síma 91 -
32221 og Sigurði og Maríu í
síma 91-79170.
Hamingjusamir foreldrar í stcinbítahúrinu á Náttúrugripasafninu.
Náttúrugripasafnið:
Astin blómstar í
steinbítabúrinu
Hvíta steinbítshrygnan sem síðustu
ár hefur dvalið á Náttúrugripa-
safninu hrygndi á mánudaginn. Er
það í fjórða skiptið sem hún
hryggnir cn i aðeins einu sinni áður
hefur hrygningin hcppnast.
Kristján Egilsson, forstöðumaður,
segir að ástarleikur hrygnunnar og
hængs sem er með henni í búrinu hafi
hafist um morguninn. Sagðist hann
strax hafa séð að hverju stefndi og í
fyllingu tímans, sex til sjö klukku-
stundum eftir að ástarleiknum lauk,
hrygndi sú hvíta myndarlegri hrúgu
sem hún safnaði í klasa. Hringaði hún
sig utan um klasann, þreytt en ánægð.
Þetta er annað árió sem hrygnan og
þessi hængur hafa deilt saman búri en
það varð ekki ást við fyrstu sýn. I
fyrra kærði karlinn sig ekkert um
hana þegar kom að hrygningu og að
henni lokinni réðist hann á hrognin.
Nú eru skötuhjúin farin að skipt-
ast á að gæta hrognanna.
En með tímanum hafa tekist mcð
þeim ágætar ástir og á mánudaginn
blómstraði hún. Hængurinn sýndi
hinni nýbökuóu móður mikla um-
hyggju og þcgar Kristján mætti til
vinnu á miðvikudaginn var hann
tekinn við og hringaði sig utan um
hrj'gnuna.
Miðvikudaginn 8. descmbcr fór
fram 2. umferð í Skákþingi Vcst-
mannaeyja. Því miður vantaði Stefán
sem átti að tefla við Ágúst Ómar, cn
hann lá heima með pest.
Sigurjón og Ægir tefldu þunga
skák sem lyktaði með jafntefli. Þar
mættust svo sannarlega stálin stinn.
Og Sigmundur og Nabee tefldu
saman og hafði Sigmundur betur.
Sunnudaginn 12. desember fór
fram 3. umferðin í Skákþingi Vest-
mannaeyja og nú mættu allir til leiks
en Stefán var nokkum veginn að ná
sér eftir slæma Peking-pest.
Tefldar voru tvær umferðir þennan
dag til að dagskráin riðlaðist ekki of
mikið. Skák frá því í 1. umferð milli
Stefáns og Nabee var tefld og sigraði
Stefán. Síðan tefldi Stcfán við Ægi en
varð að láta í minni pokann eftir að
hafa verió með þokkalega stöðu mest
allan tímann. Lék hann af sér heilum
manni rétt fyrir tímamörkin. Kannski
var flensan að angra hann, hver veit?
Ægir náði þama að vinna aðra skák-
ina sína.
Sigurjón tefldi við Sigmund
bakarameistara og bakaði hann, cnda
er hann að læra að baka sjálfur! Líka
villast lærðir menn. Ágúst Ómar
tefldi við Nabee og vann.
Staðan er því sem hér segir eftir 3
umferðir:
Ægir Ó. Hallgrímsson 2 og 1/2 v.
Sigurjón Þorkelsson 2 og 1/2 v.
Ágúst Ómar Einarsson 1 v. og ein
frestuð.
Sigmundur Andrésson I v.
Stefán Gíslasori 1 v. og ein frestuð.
Nabeeh Nami 0 v.
Næsta umferð var tefld í gærkvöldi
en úrslitin lágu ekki fyrir þegar
blaóið fór í prentun. .
Svo var þaó ekki mcira.
Með skákkveðju.
Stebbi Gilla.
Maður kom með þetta fallega
kertahús og sagði sínar farir ekki
sléttar. Hafði hann kveikt á sprit-
tkerti innan í húsinu. Veit hann
ekki meir fyrr en byrjar að rjúka
upp úr því, vaxið sauð og krau-
maði og mátti litlu munaði að slys
hlytist af. Vildi hann vara við
svona kertahúsum. Ástæðuna fyrir
þessu taldi hann vera að ekki
bærist nóg loft að kertinu og því
hitnaði húsið um of.