Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Qupperneq 19
Fimmtudagurinn
desember 1993
Björgvin reif vöðva
- og verður frá keppni í a.m.k. tvo mánuði.
ÍBV varð fyrir gífurlegu áfalli á
sunnudaginn gegn FH þegar fyrir-
liði liðsins og burðarás, Björgvin
I>ór Rúnarsson, sleit vöðva í kálfa í
vinstri fæti. í versta falli gæti farið
svo að Björgvin yrði frá keppni vel
á þriðja mánuð.
Björgvin var skorinn strax á
mánudagsmorgun og verður tölu-
verðan tíma að jafna sig. Hann hefur
verið langbesti leikmaður liðsins í
vetur og er lykilmaður í sóknar-
leiknum.
„Ég hafði fundið fyrir einhverju í
löppinni í viku. Þegar ég var að
stökkva upp í byrjun leiksins gegn
FH fann ég að eitthvað var að. Þetta
var kælt og ég kláraði leikinn. Ég var
drifinn beint í uppskurð og nú skröltir
Íþró tta-Fréttir
Húsnúmerahappdrætti
knattspyrnuráðs ÍBV
Eins og undanfarin jól eiga bæjarbúar von á sölumönnum með hið vinsæla
húsnúmerahappdrætti knattspymuráós ÍBV. Vinningar hafa aldrei verið
veglegri, eða samtals að verömæti 400 þús. kr. Hverjum miða fylgir að
venju eitthvert góðgæti.
Tökum vel á móti sölumönnum nú sem ávallt.
(Frétt frá ÍBV)
Firmakeppnin í sundi
Föstudagskvöldíö 3. desember var haldin firmakeppnin í sundi. Fjöldí
fyrirtækja var með t keppninni að þessu sinni, eða um 40 fyrirtæki.
Það fyrirtæki sem vann aó þessu sinni var Skósmíóastofa Stefáns og
hlýtur hann bikar tíl cignar og hann mun líka gcyma farandbikar í eitt ár.
1. Skósmíðastofa Stefáns 67 sdg
2. Herjóifur 66 stig
3. 'Skipalyftan 63 stig
4-5. Ðala Rafn 62 stig
4-5. Eyjakjör 62 stig
Við í sunddeild ÍBV viljum þakka öllum fyrirtækjum.sem studdu firma-
keppnina.
Sunddeild ÍBV
Framherjar í 4. deildina
Nú er búið aó leggja niður utandeildarkeppnina í knattspymu en þar hafa
tvö Eyjalið leikið tvö sl. ár. Annað liðið, Framherjar, hafa þegar ákveðið að
skrá sig í 4. deildina næsta sumar en allt bendir til þess að Smástundarmenn
muni draga sig í hlé.
Framherjar komu mjög á óvart sl. sumar og stóðu sig með prýði undir
stjóm Hjalta Kristjánssonar.
1X2- Getiraunakeppni Týs/Þórs/Frétta
JONNI TÓK HELGU!
Biggi
Blackbum-Man. City 1
Coventry-Oldham 1
Everton-Newcastle 2
Ipswich-Norwich X
Leeds-Arsenal 1
Sheff. Wed.-West Ham 1
Swindon-Southampton X
Tottenham-Liverpool 1
Wimbledon-Shcff. Utd. I
Birmingham-Charlton 2
Bolton-Grimsby 1
Bristol C-Wolves I
Sunderland-Derby 2
Síðast sló Jonni hana Helgu út^og hann ásamt Stíg er því kominn í
undanúrslit. Nú mætast þeir Birgír Sveinsson t Tvistinum og Óðinn Sæ-
bjömsson hraðsendill í Bónus.
Hlutabréfakerfið klikkaði alveg í síóustu viku og kom enginn vinningur
á þaó. Líklega verður pása fram yfir jól t hlutabréfakerfum vegna anna.
Staða efstu liða í hópkeppninni breyttist lítið eftir helgina. Þorsk-
hausamir eru enn efstir með 40 rétta en Veggfóður er í 2. sæti með 39 rétta.
En vió hvetjum alla sem hafa áhuga á að tippa að mæta í Týsheimilió
snemma á laugardögum og taka þátt í skemmtilegri tippstemmningu sem
þar hefur myndast.
Munið tippnúmer Týs og Þórs: 900
maður unt á hækjum. Bói Pálma er
ekkert ánægður með sendilinn sinn
núna og því varð atvinnumaðurinn og
tengdasonurinn, Hlynur Stefánsson
að hlaupa í skarðið fyrir mig,“ sagði
Björgvin.
„Þetta er gífurlegt áfall fyrir liðið,
vió máttum alls ekki við þessu í þeim
botnslag sem framundan er. En við
verðum að þjappa okkur saman eftir
þetta áfall og það er lán í óláni að það
er þriggja vikna frí framundan sem
við getum notað til að stilla saman
strengi okkar að nýju. Nú verðum við
að breyta áherslum í sóknarleiknum
því við höfum enga örvhenta skyttu
fyrir utan,“ sagði Sigbjöm Óskars-
son, þjálfari ÍBV.
Nýir happabúningar!
IBV vígði nýja búninga í leiknum gcgn Fram á laugardaginn. I>eir eru hinir glæsilegustu, hvítir og rauðir að lit
og reyndust sannkallaðir happabúningar strax í fyrsta leik. Gefcndur eru Gullborg VE, Glófaxi VE, Apótck
Vestmannaeyja og Axel Ó.
/
IB V tók Fram í kennslustund
Ef þið trúið því sjálfar stelpur að
þið séuð með eitt besta kvennalið
landsins, þá gctið þið farið alla lcið
í vetur. Þið hafið svo sannarlega
getuna til þess, þetta er bara spurn-
ing um að þið trúið því sjálfar. Það
er alveg óhætt að fullyrða þetta
eftir að hafa séð ÍBV bursta Fram í
Eyjum á laugardaginn, 24-12. ÍBV
var í 4. sæti fyrir leikinn og Fram í
3. sæti en yfirburðir ÍBV voru
„Synd að ná
ekki öðru
stiginu“
- sagði Sigbjörn þjálfari
eftir naumt tap gegn FH.
IBV tapaði naumlcga fyrir FH í 1.
deildinni sl. sunnudag með 26
mörkum gegn 25. Sigur FH hékk á
bláþræði því IBV spilaði mjög vel
á köflum og börðust strákarnir
hetjulegri haráttu.
Ef til vill komu FH-ingar sigur-
vissir í Ieikinn en það verður ekki
tekið frá Eyjastrákunum að þeir íéku
oft ljómandi vel. ÍBV spilaði að
venju vömina mjög framarlega og
þrátt fyrir að hún hafi hlotið tölu-
verða gagnrýni virðist sem strákamir
séu famir að ná ágætis tökum á
henni. Alla vega kom hún FH í opna
skjöldu en það var fallbyssan Hans
Guðmundsson hjá FH sem reyndist
ÍBV mjög erfiður.
Jafntefli var í hálfleik en ÍBV átti
góðan möguleika aö jafna metin í
lokin þegar Haraldur Hannesson
fiskaði knöttinn. Brotið var á honum
en ekkert dæmt, FH náði knettinum
og gerði út um leikinn.
Guðfinnur Kristmannsson var
einna bestur hjá IBV en Svavar
Vignisson er óðum að komast í sitt
besta form.
„Þetta var þokkalegur leikur hjá
okkur. Við spiluðum reyndar mjög
vel á köflum og en það var algjör
synd að við skyldum ekki ná a.m.k.
einu stigi. En leikurinn reyndist
okkur dýrkeyptur því Björgvin
meiddist og því kemur til með að
mæða mikið á ungu strákunum á
morgun þegar við fáum Val í heim-
sókn. Það verður erfitt en við ætlum
að mæta dýróðir í leikinn, við höfum
engu að tapa,“ sagði Sigbjöm.
Mörk IBV: Guðfinnur Krist-
mannsson 7, Björgvin Rúnarsson
5/1, Svanur Vignisson 4, Zoltan
Belanyi 4/2, Amar Richardsson 2,
Haraldur Hannesson 2 og Daði Páls-
son 1.
algjörir.
Fram skoraði sitt fyrsta mark cftir
10 mínútna leik en þá var staðan 4-1.
ÍBV hafði aðeins yfir9-4 í hálfleik en
stelpumar höfðu brennt af hverju
dauðafærinu á fætur öðm og
markvörður Fram varði mjög vel.
Vöm IBV lék stórkostlega á þessum
kafia með Ingibjörgu og Stefaníu í
essinu sínu. Allt var í molum hjá
Fram og þær rifust meira að segja
innbyrðis.
I seinni hálfleik var um sömu yfir-
burði að ræða. Fljótlega náðu þær tíu
marka forystu og skomðu m.a. glæsi-
legt sirkusmark sem ekki sést á
hverjum degi í kvennahandboltanum.
Þegar upp var staðið sigraði ÍBV með
12 marka mun, 24-12.
Vöm IBV var frábær í fyrri
hálfleik og Ingibjörg virðist loksins
vera að komast í gang. Söm Guð-
jónsdóttur vex ásmegin með hverjum
leik og Vigdís var öfiug í markinu.
Þess má gcta að ÍBV lék án Rögnu J.
Friðriks og Helgu Kristjánsdóttur.
Ragnar Hilmarsson, þjálfari ÍBV,
var ánægður með leikinn. „Þetta cr
allt á réttri leið. Þetta er gott, eitt það
besta. Þær verða bara að trúa því
sjálfar. Ef þær gera það er aldrei að
vita hvað við náum langt í vetur.“
Það er ekki hægt annað cn að taka
undirorð þjálfarans. ÍBV lék frábær-
lega á köfium og þær eru til alls
líklegar. En munurinn á bestu
liðunum og hinum er að bestu liðin
ofmetnast ekki þegar þeim er hrósað í
hástert. Það verða IBV stelpumar
einnig að hafa í huga.
Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 7,
Andrea Atladóttir 6, Sara
Guðjónsdóttir 5/4, Sara Ólafsdóttir 2,
Katrín Harðardóttir 2, Judit Eztergal
2.,
í lokin er við hæfi að koma því á
framfæri að það vom skammarlega
fáir áhorfendur á leiknum á laug-
ardaginn. Aðeins 16 þúsund krónur
komu í kassann sem er hreint með
ólíkindum því þama áttust við tvö af
bestu kvennaliðum landsins og ÍBV
er með eitt allrá skemmtilegasta liðið
á landinu. Til þess að endar nái
saman hjá kvennadeildinni þurfa
stelpurnar að fá inn um 40 þúsund
krónur í aðgangseyri á hvem
heimaleik þannig að þær eiga langt í
land með að ná því. Auk þess hlýtur
það að virka mjög niðurdrepandi að
vcra topplið á landsvísu en fá sárafáa
áhorfendur. Eyjamenn, stöndum við
bakið á þessu besta I. deildarliði
Vestmannaeyinga.
Firma-og
hópakeppni í
innanhúss-
knattspyrnu
Hin árlega innanhússkeppni í knattspyrnu verður
haldin í Iþróttahúsinu milli jóla og nýárs.
Keppnin veröur meö sama sniöi og undanfarin ár.
Þátttaka tilkynnist til Lalla í síma 11754 eða
Sigurjóns í síma 12574 fyrir 20. desember n.k.
ÍBV
Munið stórleikinn á morgun:
ÍBV-Valur
í íþróttahöllinni kl. 20:00.
Hvernig reiðir IBV af án Björgvins?