Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Page 20
FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR
Rútuferðir - GM Umboðsmaður í Eyjum:
Skoðunarferðir-Veisluferðir-Grillferðir- GISLIMAGNUSSON
íþróttahópferðir. Sjónvarp og vídeó. Brekastíg 11
Odyr og góð þjónusta. sími 98-11909
Vantar þig pípara
eða plötusmið?
Hafóu þá samband!
Þórarinn Þórhallsson
pípulagninga- og plötusmiður,
Bröttugötu 16, sími 12628.
Hraunbúðir:
Nýi salurinn á Hraunbúðum sem vígður var á laugardaginn baetir til muna félagsaðstöðu vistmanna og annarra
eldri borgara í bænum.
Ný félagsaðstaða
Á laugardaginn var formlega tekin
í notkun ný og glæsileg félagsaö-
staða á Hraunbúðum. Félags-
aðstaðan er í nýjum sal sem
byggður er við Hraunbúðir og
býður hann upp á mikla mögulcika
fyrir samkomuhald fyrir vistmcnn
og aðra eidri borgara í bænuni.
Páll Zophóníasson, tæknifræð-
ingur, hannaði viðbygginguna og
hefur tckist vel upp því salurinn er
bæði bjartur og skemmtiiegur og á
örugglega eftir að verða mikil lyfti-
stöng fyrir félagsstarf eldri
borgara sem þcgar er með miklum
blóma í bænum.
Aðalverktakar voru Steini og Olli.
Rakti annar eigandi fyrirtækisins,
Ársæll Sveinsson, nokkrum orðum
byggingasögu hússins, en byrjað var
á því árið 1990. Ársæll þakkaði
öllum sem á einhvern hátt komu
nálægt verkinu fyrir samstarfið og
óskaði bæjarbúum til hamingju með
þennan áfanga sem er annar af fjórum
sem fyrirhugaðir eru við Hraunbúðir.
Afhenti Ársæll síðan Ólafi Lárussyni,
'formanni félagsmálaráðs, lykla að
félagsaðstöðunni.
Ólafur sagði að salurinn ætti að
nýtast til félagsstarfsemi eldri borgara
og vistmanna á Hraunbúðum. „Auk
þess er hér minni salur sem ætlaður er
til þjálfunar og hreyfingar og cinnig
er gert ráð fyrir helgistundum þar,“
sagði Ólafur í ræðu sinni.
Einnig þakkaði Ólafur starfsfólki
þolinmæðina meðan á framkvæmd-
um stóð því þær hefðu valdið miklu
róti. Einnig sagðist hann vona að nýtt
eldhús kæmist í gagnið snemma á
næsta ári.
Síðan taldi Ólafur upp þá sem
komu við sögu sem voru auk aðal-
vcrktaka, Áhaldahús bæjarins sem sá
um jarðvinnu, múrverk var í höndum
Magnúsar Þórarinssonar, pípulögn
Píparinn, Þorsteinn Finnbogason,
málnmgu sá Viðar Einarsson um,
dúkalögn Þorvarður Þorvaldsson,
flísalögn Kristmann Kristmannsson,
raflögn sá Geisli um, lofræstikerfi er
frá Blikkási, húsgögn frá Reynistað
og GKS Biro og hljóðkerfi frá Neista
og Nýherja. „Ég vil þakka öllum
þessum verktökum fyrir góða vinnu
og má segja að verkið lofi meist-
arann. Hér hefur verið vel að verki
staðið."
Þá gat Ólafur þess að feógamir í
Neista hefðu fært Hraunbúðum
geisladiska og að myndverk á veggj-
um salarins væru hluti af gjöf Gríms
Marinós Steindórssonar til Vest-
mannaeyjabæjar. Að lokum afhenti
Ólafur Sólveigu Guðnadóttur, for-
stöðukonu Hraunbúða, lykla að nýja
salnum sem strax var tekinn í notkun
því að vígslunni lokinni var slegið
upp spilakvöldi sem fulltrúar í félags-
málaráði og bæjarfulltrúar sáu um.
Ársæll Sveinsson afhcndir Ólafi Lárussyni, formanni félagsmáiaráðs,
lykla að nýja sainum á Hraunbúðum.
Uppsagnir ákvæða kauptryggingarsamnings
Ná til á 4. hundrað manns í Eyjum
í síðustu viku sendu Samtök fisk-
vinnslustöðva félagsmönnum sín-
um leiðbeiningar um hvernig við
skuli bregðast vegna hugsanlcgs
verkfalls sjómanna frá áramótum.
I leiðbeiningunum er lagt til að
fiskvinnslustöðvar tiikynni nú
þcgar vinnsiustöðvun með
fjögurra vikna fyrirvara, sem
leiðir af sér að ailt fastráðið fisk-
vinnslufólk mun þá falla af
launaskrá.
Amar Sigurmundsson, formaður
SF, segir að komi til verkfalls sjó-
manna muni áhrif uppsagna
Bifreiðaverkstæði Vestmannaeyja h/f.
Alhlióa bifreiðaviðgeróir - réttingar og sprautun.
Þjónustu- og söluumboð fyrir: Jöfur h/f - Ingvar Helgason h/f
NISSAN - SUBARU - CRYSLER - PEUGEOT - SKODA
Bílaverkstæði s-12782. - Réttingar og sprautun s: 12958.
BIFREIÐAVERKSTÆÐI VESTMANNAEYJA HF. FLÖTUM 27
kauptryggingar ná til á 4. hundrað
fastráðinna starfsmanna fiskvinnslu-
stöðva í Vestmannaeyjum. Er þá
ekki aðeins átt við starfsfólk
Vinnslustöðvar og Isfélags því
minni fiskvinnslumar em líka aðilar
að SF.
Nýsmíði - breytingar - viðgerðir
Utan húss sem innan.
Teikna og smíða:
Sólstofur, viðbyggingar.
útihurðir, glugga, utan-
hússklæðningar, þakviógerðir
og mótauppsláttur.
- Agúst Hreggviðsson, s: 12170.
ÁRSÆLL ÁRNASON ÖKUKENNSLA
húsasmíðameistari Bessahrauni 12, simi 12169 ÆFINGATÍMAR
MVB Stefán Helgason Brimhólabraut 38
ALHLIÐA TRÉSMÍÐI Sími11522
Vestmannaeyjar:
Afanga-
staður
skemmti-
ferðaskipa
Páll Helgason ferðafrömuður
hafði samband við FRÉTTIR
vegna fréttar í síðasta blaði þar
sem greint var frá hugmyndum
um að gera Vestmannaeyjar að
fostum áfangastað fyrir
skemmtiferðaskip í fram-
tíðinni.
Páll segir að þessi frétt hafi
komið sér nokkuð spánskt fyrir
sjónir því staðreyndin sé að Vest-
mannaeyjar séu þegar orðnar
fastur áfangastaður margra
skemmtiferðaskipa. „Ég er þegar
búinn að semja um móttöku á 13
skipum á næsta ári. Fyrsta skipið
kemur í byrjun júní og það síðasta
í lok ágúst. Um er að ræða tíu
skip en þrjú þeirra koma tvisvar.
Svona er staðan í dag en þau geta
orðið fleiri.“
Páll taldi þetta sýna að forráða-
menn bæjarins fylgdust ekki
nægilega með því sem er að
gerast. „En ég fagna því að Vest-
mannaeyjahöfn skuli vera að
vakna af Þymirósarsvefni.
Auðvitað kostar það mikla vinnu
að auglýsa Vestmannaeyjar sem
ferðamannastað og það hef ég
gert í mörg ár og t.d. hef ég verið
síðasta mánuð upp á landi að
kynna það sem við höfum upp á
að bjóða,“ sagði Páll og gat þess
að lokum að útlit í ferðamálum
væri gott næsta sumar.
Vegna fréttarinnar sem Páll
vitnar í er rétt að það komi fram
að frumkvæðið kom frá ferða-
málaráði Vestnorden sem hefur í
hyggju aó gefa út stóran ferða-
bækling fyrir skemmtiferðaskip
sem verður dreift í stórri ferð.
Hættulegur leikur:
Kafarar
á ferð um
miðja nótt
Skömmu eftir miðnætti á aðfara-
nótt mánudags tilkynnti
skipstjórinn á Sindra VE þegar
skipið var koma til hafnar að hann
hefði líklega séð tvo kafara í
höfninni.
Lögreglan fór á vettvang og þetta
reyndist vera rétt. Tveir piltar á
unglingsaldri höfðu verið að kafa á
þessum óvenjulega tíma í inn-
siglingunni við grafskipið. Þeim var
bent á að þetta væri ekki rétti tíminn
til þess og þetta væri hættulegur
leikurí myrkrinu.
Húseigendur!
Tökum að okkur nýsmíði og
viðgerðavinnu t.d. þök, glugga,
glerjun og sólhýsi. Hönnum og
gerum tilboö þér aö kostnaöarlausu.
Ragnar og Björgvin sf.
Sími 13153 og 12953.
Húsasmíðameistarar
A-A Tundir \-A fundir eru haldnir sem hér segir í húsi ‘élagsins að Heimagötu 24: Sunnudaga kl. 11:00, mánudaga kl. 20:30, miðvikudaga kl. !0:30, fimmtu-daga kl. 20:30, föstudaga kl. !3:30 og laugardaga, fjölskyldufundir kl. !0:30. Athugið símah'ma okkar sem em hvem undardag og hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn úndartíma og er í 2 klst. í senn.
Öll almenn heimilistækja og raflagnaþjónusta. EINAR HALLGRÍMSSON Verkstæói að Skildingavegi 13 S: 13070 & heimas: 12470 Farsími 985-34506.
^Mrval-útsýn UMBOÐ f EYJUM: Friófmnur Finnbogason, símar 11166 og 11450.
VANTAR ÞIG PÍPARA? NIPPILL s/f sími 12101 Svavar heimasími 11749 Þorleifur heimasími 11609
Al - Anon Þriðjudaga: Byrjendafundir kl. 20:00 Almennir fundir kl. 20:30 Að Heimagötu 24.
HSH flutningar Daglegar ferðir, hvert á land sem er. Vöruafgreiðsla Skildingavegi 2 - Sími 13440
ALHLIÐA SENDIBÍLA- AKSTUR INNANBÆIAR Arnþór Henrysson Sími 12217 (Henrý Erlendsson)
Nýr sölulisti vikulega Skribtofa í Vestmannaeyjum að Heimagötu 22, götuhæð. Viðtalstími kl. 15:30 - 19:00, þriðjudaga til föstudaga. Skrifstofa í Rvk. Garðastræti 13. Viðtalstími kl. 15:30 - 19:00, mánudaga. Sími 13945. Jón Hjaltason, hrl. Löggiltur fasteignasali