Skessuhorn - 11.06.2008, Síða 7
Þjóðhátíð á Akranesi 2008
Dagskrá hátíðarhalda á 17. júní á Akranesi
Akraneskaupstaður óskar Skagamönnum
og landsmönnum öllum gleðilegrar
þjóðhátíðar!
10:00-12:00 Þjóðlegur morgun á Safnasvæðinu
Byrjaðu þjóðhátíðardaginn með fjölskyldunni á Safnasvæðinu í léttri og
þjóðlegri stemningu. Stundum er erfitt að bíða eftir því að allt fjörið
hefjist á 17. júní og því tilvalið að taka forskot á skemmtilegan dag og
mæta á Safnasvæðið!
13:00 Hátíðarguðsþjónusta í Akraneskirkju
Sr. Björn Jónsson messar í fjarveru sóknarprests.
Hátíðarræða: Steinunn Eik Egilsdóttir, nýstúdent
14:00 Hátíðardagskrá á Akratorgi
Fánahylling á Akratorgi
Ávarp bæjarstjóra, Gísla S. Einarssonar.
Ávarp fjallkonu
Hátíðarræða dagsins
Kór Akraneskirkju syngur við athöfnina
Skrúðganga að lokinni dagskrá í Akraneshöll
14:00 - 16:00 Safnasvæðið að Görðum
Glæsilegt kökuhlaðborð í Garðakaffi að hætti hússins.
14:30 - 17:00 Kaffisala í safnaðarheimilinu Vinaminni
Kaffisala í safnaðarheimilinu Vinaminni á vegum Kirkjunefndar
Akraneskirkju. Glæsilegt kökuhlaðborð!
15:00-17:00 Barnaskemmtun í Akraneshöll
Skrúðgangan sem fer frá Akratorgi endar í Akraneshöll þar sem boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn á öllum aldri, m.a.:
Þrautabraut fyrir 2 - 5 ára
Danssýning barna úr Brekkubæjarskóla
Krakkar úr Grundaskóla sýna þætti úr Ávaxtakörfunni
Leikbrúðusýningin Einar Áskell í flutningi Bernd Ogrodnik
Ýmsar þrautir og leikir, glens og gaman á svæðinu - Hringekjur og
hoppkastalar
Listasetrið Kirkjuhvoll - Sumarsýning 2008.
Sýning á úrvali verka í eigu Listasafns ASÍ. Sýning á nokkrum af helstu
dýrgripum í eigu safnsins, m.a. verk eftir Jóhannes S. Kjarval, Jón
Stefánsson o.fl.
20:30 - 22:30 Frábær fjölskylduskemmtun í Akraneshöll
Þú mátt ekki missa af þessu!
Þjóðhátíðardagurinn verður viðburðaríkur á Akranesi í ár.
Hátíðin fer fram með hefðbundnu sniði en aðalhátíðin
verður haldin í Akraneshöllinni. Kynntu þér dagskrána og
taktu virkan þátt í þessum skemmtilegasta degi ársins!
Dagskrá dagsins er sem hér segir:
Ekki missa af frábærri
dagskrá á 17. júní!
Dagskráin á 17. júní miðar að því að fjöl-
skyldan finni öll eitthvað við sitt hæfi, allt
frá þjóðhátíðarmorgni á Safnasvæðinu,
skemmtilegri barnaskemmtun í
Akraneshöllinni til glæsilegrar fjölskyldu-
hátíðar um kvöldið. Kynntu þér
dagskrána vel og taktu virkan þátt í
skemmtilegri þjóðhátíð! Sjáumst hress!
17. júní 2008
Nánari dagskrá hátíðarhalda á
þjóðhátíðardaginn 17. júní 2008 verður
dreift í öll hús á Akranesi um næstu
helgi. Kynnið ykkur dagskrána og takið
þátt í skemmtilegum degi!