Skessuhorn


Skessuhorn - 29.08.2012, Qupperneq 6

Skessuhorn - 29.08.2012, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2012 Bíl ar skemmd ir AKRA NES: Að far arnótt sl. laug ar dags voru fram in skemmd ar verk á bíl um starfs­ manna og gesta við skemmti­ stað inn Gamla Kaup fé lag­ ið við Kirkju braut á Akra­ nesi, m.a. voru hlið ar spegl­ ar brotn ir. Mað ur var færð ur til yf ir heyrslu vegna máls ins og bar hann við minnis leysi. Hann var tals vert hruflað ur á hönd um en blóð hafði fund ist á vett vangi. Að sögn lög reglu ætl aði mað ur inn að reyna að rifja upp at burði næt ur inn ar og koma svo aft ur á lög reglu­ stöð. Mál ið er enn í rann sókn. -þá Slapp með skrám ur SNÆ FELLS NES: Bíl velta varð sl. mánu dag rétt aust­ an við bæ inn Gröf í Grund ar­ firði. Öku mað ur, sem var einn í bíln um, slapp með risp ur og skrám ur. Hann var flutt ur til að hlynn ing ar á heilsu gæslu­ stöð ina í Stykk is hólmi og var út skrif að ur að lok inni skoð un. Að sögn lög regl unn ar í Stykk­ is hólmi fór bet ur en á horfð­ ist þar sem ljóst er að bíll inn rann ein hver spöl á toppn­ um og ó víst hve marg ar velt­ ur hann fór. Bíll inn er mik ið skemmd ur. -þá Fyrstu næt ur­ frost in VEST UR LAND: Frek ar svalt er í lofti núna mið að við á gúst mán uð. Að far arnótt sl. sunnu dags mæld ist víða næt­ ur frost eink um á norð vest­ an verðu land inu. Mest frost mæld ist í Vatns dal í Húna­ vatns sýslu, mín us 5,3 gráð­ ur. Einnig fraus í Húsa felli og víð ar í Borg ar firði þar sem klaki var á kyrru vatni þeg­ ar árrisulir litu út á sunnu­ dags morg un inn. Í Reykja vík fór hit inn ekki nið ur fyr ir 5,5 gráð ur um nótt ina. -mm Frum kvöðla­ og tækni set ur REYK HÓL AR: Búið er að stofna und ir bún ings hóp vegna stofn un ar frum kvöðla set urs á Reyk hól um. Á kvörð un um stofn un hóps ins var tek in eft ir fund með Þor steini Inga Sig­ fús syni, for stjóra Ný sköp un ar­ mið stöðv ar Ís lands og Sig mari B. Hauks syni, sem verð ur full­ trúi NÍ í hópn um. Auk hans verða þær Andr ea Björns dótt ir odd viti og Ingi björg Birna Er­ lings dótt ir sveita stjóri Reyk­ hóla hrepps þeim til sam læt­ is auk Dr. Janka Za les a kova í Brat islava í Slóvak íu, en hún átti á sín um tíma hug mynd­ ina að heilsu hót eli á Reyk hól­ um. Þetta kem ur fram á vef Reyk hóla hrepps. Einnig seg­ ir að Dr. Za les a kova og eig­ in mað ur henn ar hafi unn ið að rann sókn um á virk um efn­ um í þara og að þau séu með nokkr ar hug mynd ir til frek­ ari rann sókna hjá Ný sköp un­ ar mið stöð Ís lands, sem ætl­ un in er að vinna með á Reyk­ hól um. Anna Lára Jóns dótt­ ir, verk efna stjóri starfs stöðv ar NÍ á Ísa firði mun einnig að­ stoða við verk efn ið. -sko Deil ur end uðu illa AKRA NES: Per sónu leg ar deil­ ur tveggja manna á Akra nesi end­ uðu illa á laug ar dag inn. Máls at­ vik voru þannig að ann ar mann­ anna fór heim til hins í þeim til­ gangi að út kljá per sónu leg ar deil ur með sam ræð um. Þeg ar það gekk ekki eft ir hugð ist mað­ ur inn halda til síns heima, en á rás armað ur inn elti hann stutt­ an spöl og veitti hon um á verka, skurð í and liti frá auga og nið­ ur að vör. Sauma þurfti tíu spor í and lit þess sem fyr ir á rásinni varð. Á rás armað ur inn var hand­ tek inn en sleppt að yf ir heyrsl um lokn um. Í fyrstu var jafn vel talið að egg vopni hafi ver ið beitt, en ekk ert hef ur þó kom ið fram sem styð ur það og virð ist sem á rás­ armað ur inn hafi beitt hnef um að svona miklu afli. Mál ið er í rann sókn. -mm Nýtt met í ferð­ um á jökul inn SNÆ FELLS NES: Ferða þjón­ ust an Snjó fell á Arn ar stapa er enn þá að fara með ferða langa í skoð un ar ferð ir upp á Snæ fells­ jök ul. Að sögn Sverr is Her­ manns son ar hjá Snjó felli er hætt að fara upp á jök ul um þetta leyti en hing að til hef ur síð asta ferð ver ið far in í síð asta lagi 20. á gúst. Nú er hins veg ar ann að upp á ten ingn um. Þeg ar Skessu­ horn heyrði í Sverri hafði Snjó­ fell síð ast hald ið í ferð með gesti á mánu dag inn, 27. á gúst. ,,Við stefn um á nokkr ar ferð ir upp á jök ul á næst unni, svo lengi sem að stæð ur leyfa. Lít il sem eng­ in rign ing er búin að vera und­ an far ið sem lengt hef ur ver tíð­ ina hjá okk ur. Góð veð ur spá er í kort un um þannig að við höld­ um ó trauð á fram,“ seg ir Sverr ir. Hann er bú inn að sinna ferð um upp á jök ul sl. sex ár en í heild ina hafa skoð un ar ferð ir upp á Snæ­ fells jök ul ver ið farn ar frá Arn ar­ stapa í hart nær þrjá tíu ár. -hlh Eins og und an far in ár hafa Bænda­ sam tök Ís lands tek ið sam an lista yfir helstu fjár rétt ir og stóð rétt ir á land­ inu á kom andi hausti. Hér að neð­ an má sjá fjár rétt ir hausts ins í staf­ rófs röð. Tek ið er fram að alltaf geta slæð st vill ur í lista af þessu tagi. Því er þeim sem hyggj ast kíkja í rétt ir á kom andi hausti bent á að gott get ur ver ið að hafa sam band við heima­ menn og fá stað fest ingu á dag setn­ ing um og tíma setn ingu rétt anna. Einnig er fjall skila stjór um, sem og öðr um sem hafa upp lýs ing ar um rétt ir sem ekki koma fram á list an­ um eða vilja leið rétta rang færsl ur, bent á að hafa sam band við Bænda­ sam tök in í síma 563­0300 eða í tölvu póst fang ið fr@bondi.is. Sam kvæmt sam an tekt Bænda sam tak anna eru eft ir far andi fjár rétt ir á Vest ur landi haust ið 2012 Brekku rétt í Norð ur ár dal, Mýr. sunnu dag 16. sept. Brekku rétt í Saur bæ, Dal. sunnu­ dag 16. sept. Fells enda rétt í Mið döl um, sunnu­ dag 16. sept. Flekku dals rétt á Fells strönd, Dal. laug ar dag 15. sept. Fljótstungu rétt í Hvít ár síðu, Borg arf, laug ar dag 8. sept. Gilla staða rétt í Lax ár dal, Dal. sunnu dag 16. sept. Gríms staða rétt á Mýr um, Mýr. þriðju dag 18. sept. Hít ar dals rétt í Hít ar dal, Mýr. mánu dag 17. sept. Hólma rétt í Hörðu dal, sunnu dag 16. sept. Hrepps rétt í Skorra dal, Borg. sunnu dag 16. sept. Kald ár bakka rétt í Kolb., Hnappa­ dals sýslu sunnu dag 9. sept. Kinn ar stað ar rétt í Reyk hóla hr., A­Barð. sunnu dag 23. sept. Kirkju fells rétt í Hauka dal, Dal. laug ar dag 15. sept. Kolla fjarð ar rétt í Reyk hóla hr., A­Barð. laug ar dag 15. sept. Króks fjarð ar nesrétt í Reyk hóla­ sv., A­Barð. laug ar dag 22. sept. Ljár skóga rétt í Lax ár dal, Dal. Ekki ljóst Mið fjarð ar rétt í Mið firði, V.­ Hún. laug ar dag 8. sept. Mýr dals rétt í Hnappa dal, þriðju­ dag 18. sept. Nesmels rétt í Hvít ár síðu, Mýr. laug ar dag 8. sept. Núpa rétt á Mela sveit, Borg. sunnu dag 16. sept. Odds staða rétt í Lund ar reykja­ dal, Borg. mið viku dag 12. sept. Rauðs gils rétt í Hálsa sveit, Borg. sunnu dag 16. sept. Reyn is rétt und ir Akra fjalli, Borg. laug ar dag 15. sept. Skarðs rétt á Skarðs strönd, Dal. laug ar dag 15. sept. Skerð ings staða rétt í Hvamm­ sveit, Dal. sunnu dag 16. sept. Svart ham ars rétt á Hvalfj.str., Borg. sunnu dag 16. sept. Svigna skarðs rétt, Svigna skarði, Mýr. mánu dag 17. sept. Tungu rétt á Fells strönd, Dal. laug ar dag 8. sept. Þver ár rétt Eyja­ og Mikla holts­ hr, Snæf. sunnu dag 16. sept. Þver ár rétt í Þver ár hlíð, Mýr. mánu dag 17. sept. Fjár rétt ir á Vest ur landi 2012 Glímt við hrút í Fells enda rétt í Döl um sl. haust. Ljósm. bae.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.