Skessuhorn - 03.01.2014, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 1. tbl. 17. árg. 3. janúar 2014 - kr. 600 í lausasölu
10
25%
Líkt og undanfarin fimmtán ár
gekkst Skessuhorn fyrir vali á Vest
lendingi ársins, en verðlaunin falla í
hlut þess eða þeirra íbúa í landshlut
anum sem þykja hafa skarað framúr
á einhvern hátt á árinu. Lesendur
Skessuhorns sendu inn fjölmarg
ar tillögur og voru samtals 22 ein
staklingar tilnefndir að þessu sinni.
Í fyrsta skipti frá því val á Vestlend
ingi ársins hófst urðu hjón hlut
skörpust. Það eru þau Bjarni Sigur
björnsson og Guðrún Lilja Arnórs
dóttir bændur og ábúendur að Eiði
við Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi.
Hlutu þau langflestar tilnefningar.
Aðrir, sem hlutu þrjár tilnefn
ingar eða fleiri að þessu sinni,
eru í stafrófsröð: Dr. Bjarni Guð
mundsson á Hvanneyri fyrir verð
mæta skráningu heimilda um tækni
og störf til sveita, Garðar Stefáns
son og Sören Rosenkilde stofnend
ur Norðursalts á Reykhólum, Gísli
Ólafsson ferðaþjónn í Grundar
firði, Guðrún Haraldsdóttir gang
brautavörður í Borgarnesi, Kristín
Gísladóttir og Sigrún Katrín Hall
dórsdóttir í Borgarnesi fyrir vitund
arvakningu gegn einelti, Ingólfur
Árnason forstjóri Skagans á Akra
nesi fyrir uppbyggingu atvinnulífs,
Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi
fyrir ríka þjónustulund, Vilhjálm
ur Birgisson formaður VLFA fyrir
störf að hagsmunamálum launþega
og Þór Magnússon á Gufuskálum
fyrir uppbyggingu í ferðaþjónustu.
Hjónin og bændurnir Bjarni og
Guðrún Lilja að Eiði komu oft fyr
ir í umfjöllun fjölmiðla á liðnu ári.
Ekki hefur farið framhjá lesend
um Skessuhorns hversu umfangs
mikill síldardauðinn í Kolgrafafirði
var og áhrif hans þegar um 52 þús
und tonn af síld drápust í firðinum.
Síldina rak ýmist í bunkum á fjörur
við Eiði eða sökk til botns til rotn
unar með neikvæðum afleiðingum
á lífríkið. Útlit var fyrir mikla um
hverfismengun og var grútarváin
allt um lykjandi og daunninn eft
ir því. Hamförunum tók heimilis
fólkið að Eiði hins vegar af mikilli
stillingu svo eftir var tekið í sam
félaginu. Bændur eru öðrum þræði
útverðir byggðar í landinu gagnvart
heimi náttúrunnar. Má af reynslu
síldardauðans í Kolgrafafirði sjá að
hjónin að Eiði valda því hlutverki
einkar vel og eru að mati blaðs
ins og lesenda þess öðrum til fyr
irmyndar. Skessuhorn óskar þeim
hjónum innilega til hamingju með
vegsemdina.
Sjá viðtal við hjónin að Eiði á
miðopnu.
mm/hlh
Skessuhorn óskar lesendum sínum til sjávar og sveita gleðilegs árs með þökk fyrir árið 2013. Ágætt veður var á gamlárskvöld og nutu landsmenn þess að horfa á flug-
elda í allri sinni litadýrð og mikilfengleika lýsa upp næturhimininn. Meðfylgjandi mynd tók Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari í Stykkishólmi þegar nýja árið gekk í garð.
Hjónin að Eiði eru Vestlendingar ársins 2013
Guðrún Lilja og Bjarni að Eiði eru Vestlendingar ársins 2013. Ljósm. hlh.
Einstaklega mjúkar,
teygjanlegar og halda sér vel.
Buxur sem gefa öllum konum
flottar línur.
Komnar
aftur
Bylting í buxnasniði
fyrir dömur