Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 9
9FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Kaupfélag Borgfirðinga 110 ára laugardaginn 04. janúar 2014 Í tilefni afmælisins verðum við með opið hús kl.11-15, boðið verður upp á kaffi og afmælistertu Ýmis tilboð og afslættir í tilefni dagsins Allir velkomnir Gerið góð kaup Egilsholti 1, 310 Borgarnesi S:430-5500, www.kb.is Hin árlega þrettándabrenna á Akranesi með tilheyrandi álfa- og trölladansi og glæsilegri flugeldasýningu, verður við „Þyrlupallinn“ á Jaðarsbökkum mánudaginn 6. janúar n.k. Blysför hefst við Þorpið, Þjóðbraut 13, kl. 18.00 stundvíslega. Gengið verður að „Þyrlupallinum“ þar sem kveikt verður í brennu og jólin kvödd. Fyrir göngunni fara álfadrottning, álfakóngur, álfar, Grýla, Leppalúði, jólasveinar, tröll og púkar. Krakkar! Klæðið ykkur eins og ykkur langar til, mætið síðan í gönguna og takið mömmu og pabba með! Flugeldasýning og brenna Glæsileg flugeldasýning verður um kl. 18.35 en Björgunarfélag Akraness annast umsjón með brennunni. Íþróttamaður Akraness 2013 Strax að lokinni brennu og flugeldasýningu verða kynnt úrslit í kjöri íþróttamanns Akraness árið 2013. Af því tilefni býður Íþróttabandalag Akraness bæjarbúum í Íþróttamiðstöðina að Jaðarsbökkum. Á meðan á athöfn stendur verður boðið upp á veitingar. Þrettándagleði á Akranesi 2014 Þrettándabrenna, álfadans og flugeldasýning mánudaginn 6. janúar 2014 S K E S S U H O R N 2 01 4 Mildi þykir að ekki fór illa þegar flutningabíll með fjörutíu feta gám á vagni lenti utan vegar skammt frá afleggjaranum að Munaðar­ nesi í Borgarfirði á sunnudaginn fyrir jól. Vegurinn er hár á þessum stað og skammt frá þar sem bíll­ inn stöðvast er djúpur vegskurður. Mikil hálka var á þessum slóðum þegar óhappið varð en bíllinn fór útaf öfugum megin miðað við akst­ ursstefnu. Tvo vel búna bíla með krönum þurfti til að koma bílnum, vagninum og gámnum aftur upp á veg. Bíllinn var tekin á pall og gámavagninn hengdur aftan í ann­ an bíl. mm/ Ljósm. óg. Gámaflutningabíll lenti utan vegar Í tilkynningu hvetur Fuglavernd lands­ menn til að huga að smáfuglunum sem nú þurfa orku og vatn sem aldrei fyrr. Nú er snjór og klammi víða yfir jörðu og fátt sem smáfugl­ arnir geta nærst á. Sem dæmi um fóður sem fólk get­ ur fært fuglunum má nefna brauð, epli, fitu, matarafanga, sólblómafræ eða páfagaukafræ, kurlaðan maís og hveitikorn. Fita er það fóður sem hentar flestum fuglum vel í kuldum og má blanda matarolíu, tólg eða smjöri við afganga og korni. Síðan þarf vatn að vera aðgengilegt. Að lokum er ein lítil saga af góðri konu sem látin er fyrir nokkru. Laufey Þór­ m u n d a r d ó t t ­ ir skólastjóra frú bjó síðustu ævi­ árin ein í húsi sínu í Reykholti. Hún var ætíð góð við menn og mál­ leysingja. Þegar vetra tók og jarð­ bönn torvelduðu smáfuglunum að leita sér fæðu fór Lulla gamla, eins og hún var jafnan kölluð, snemma á fætur á morgnana og bakaði bestu sort af jólakökum og færði fuglun­ um út í garð. Þetta gerði hún oft á veturna og naut þess að horfa á fuglana gæða sér á ilmandi kökun­ um. mm Lítil saga af góðmennsku í garð smáfuglanna Þórhallur Bjarnason garðyrkju­ bóndi á Laugalandi í Stafholtstung­ um varð fyrir óvenjulegri lífsreynslu einn morgun skömmu fyrir jól. Þeg­ ar hann mætti til vinnu á garðyrkju­ stöðinni hafði álft komið sér í sjálf­ heldu inni í gróðurhús­ unum. „Þegar ég fór fyrstu yfirferð yfir hús­ in um morguninn sá ég allt í einu út undan mér hvar fugl var inni í einu húsanna. Mér datt reyndar fyrst í hug að einhver væri að stríða mér,“ sagði Þórhallur í samtali við Skessuhorn. Þegar hann fór að skoða þetta bet­ ur kom í ljós að álft hafði tyllt sér á glerið í þaki gróðurhússins einhvern tímann um nóttina og rúður brotn­ að undan þunga fuglsins. „Það voru þrjár rúður brotnar þar sem hún hefur farið niður, að öðru leyti hafði hún ekki skemmt neitt,“ sagði Þór­ hallur. Gróðurhúsið sem um ræddi var fullt af litlum agúrkuplöntum og hafði Þórhallur áhyggjur af að álftin myndi valda tjóni ef styggð kæmi að henni. „Í fyrstu vissu ég ekki hvern­ ig ég ætti að koma fuglinum út. Ég opnaði þó hurð á stafni hússins og tókst að komast í rólegheitunum innfyrir fuglinn og stugga honum út. Álftin var það skyn­ söm að hún þáði fljót­ lega boðið og vappaði út,“ sagði hann. Álftirnar voru tvær á ferðinni og beið mak­ inn uppi á þaki gróður­ hússins meðan á þessu gekk. Álftaparið var frelsinu fegið og flaug á brott þegar gróðurhúsa­ álftin hafði losnað úr prísundinni. Aðspurður segir Þórhallur aldrei hafa heyrt um það áður að álft færi inn í gróðurhús. „Maður er allt­ af að læra eitthvað nýtt. Þetta eru svo stórir fuglar að hún hefði hæg­ lega getað valdið töluverðu tjóni ef styggð hefði komist að henni. Sem betur fer var hún hin spakasta,“ sagði Þórhallur. mm Rúður í gróðurhúsi gáfu sig undan þunga álftar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.