Skessuhorn - 03.01.2014, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
Það vakti talsverða athygli síð
astliðinn laugardag í Grundar
firði þegar fjórar þyrlur á vegum
Helo og Reykjavík Helicopters
lentu á túninu við bæinn Gröf.
Þarna voru á ferð um tuttugu er
lendir ferðamenn sem ferðuð
ust milli staða með þessum hætti.
Gestirnir voru í góðu yfirlæti á
Hótel Framnesi þaðan sem þeir
fóru m.a. á sjóstöng með Brim
rúnu SH. Þyrlurnar mættu hlað
nar mat og með eigin matreiðslu
mann að auki sem matreiddi fyr
ir gestina að lokinni veiðiferðinni.
Flugu loks gestirnir á brott með
þessum vígalegu fararskjótum að
máltíð lokinni. tfk
Tuttugu ferðamenn
á þyrlum
Föstudaginn 27. desember undir
rituðu fulltrúar Akraneskaupstað
ar, Arion banka og Sementsverk
smiðjunnar ehf. samninga um að
bæjarfélagið eignist 5,5 ha. af 7 ha.
athafnasvæði Sementsverksmiðj
unnar á Akranesi, bæði mannvirki
og lóðaréttindi, án endurgjalds til
Sementsverksmiðjunnar. Þar með
telja málsaðilar sig hafa eytt óvissu
um framtíðarforræði svæðisins.
Viðræður sem leiddu til samnings
þessa hófust í haust að frumkvæði
Sementsverksmiðjunnar í ljósi þess
að eigendur hennar og viðskipta
banki töldu gjaldþrot félagsins blasa
við að óbreyttu. „Þegar verður haf
ist handa við að huga að skipu
lagsmálum reitsins og málið reif
að á íbúaþingi á Akranesi 18. janúar
2014,“ segir í tilkynningu sem les
in var upp við undirritun samning
anna. Á íbúaþinginu í þessum mán
uði er fyrirhugað að kynna ýms
ar tillögur að nýtingu svæðisins og
kalla eftir fleiri hugmyndum.
„Við bæjaryfirvöldum á Akra
nesi blöstu þeir kostir í stöðunni
að horfa á Sementsverksmiðjuna
verða gjaldþrota með tilheyrandi
óvissu fyrir alla sem málið varðar
eða reyna að verja hagsmuni bæj
arfélagsins og íbúanna með samn
ingnum. Það er samhljóða mat full
trúa bæjarins og annarra, sem um
málið hafa fjallað, að fyrirliggj
andi samningar séu bæði fjárhags
lega hagkvæmari fyrir bæjarfélagið
og skynsamlegri fyrir samfélagið á
Akranesi til lengri tíma litið, en að
aðhafast ekkert,“ segir í tilkynningu
Akraneskaupstaðar.
Sementsverksmiðjan hefur nú
verið endurskipulögð fjárhags
lega og í samkomulaginu frá síð
astliðnum föstudegi er kveðið á um
að hún haldi eftir hluta reitsins til
starfrækslu sementsinnflutnings
og afgreiðslu næstu 15 árin. Eft
ir það fær sveitarfélagið einnig af
hentan þann hluta lóðarinnar og
þau mannvirki sem þar standa, án
endurgjalds. Þá mun Sementsverk
smiðjan leigja nokkur rými í verk
smiðjunni af Akraneskaupstað til
tveggja ára.
Taldi sig verða að
eyða óvissu
Bæjarstjórn Akraness afgreiddi mál
ið formlega á fundi að morgni 27.
desember sl. „Einhugur ríkti í bæj
arráði og bæjarstjórn um að ganga
til samkomulagsins, sem samþykkt
var samhljóða á lokuðum bæjar
stjórnarfundi. Óþarft er að fjöl
yrða um mikilvægi svæðisins sem
hér er um að tefla. Það snýr til suð
urs nálægt höfninni, Langasandi
og miðbænum. Með samkomu
laginu fær Akraneskaupstaður fullt
forræði yfir svæðinu til skipulagn
ingar og ráðstöfunar mun fyrr en
ella. Án samnings hefði óvissa ríkt
um ráðstöfun stórs hluta svæðisins
auk mögulegs gjaldþrots Sements
verksmiðjunnar.“ Þá segir í frétta
Akraneskaupstaður eignast
Sementsverksmiðjureitinn og mannvirki
tilkynningu Akraneskaupstaðar að
bæjarfélagið og Sementsverksmið
jan hafi árið 2003 samið um eign
arhald Akraneskaupstaðar á öllum
lóðum. Flestir lóðarleigusamning
arnir eru hins vegar með gildistíma
til ársins 2028 og sumir með for
leigurétti Sementsverksmiðjunnar
að þeim tíma liðnum. „Strompur
Sementsverksmiðjunnar, táknmynd
Akraness í flestra augum, er á svæði
sem nú er komið á forræði bæjar
ins. Örlög strompsins, sem og ann
arra mannvirkja á sementsreitnum,
ráðast í því ferli umræðna og skipu
lags sem í hönd fer.“
Fáein kjarnaatriði
samkomulagsins
Samandregið má hér að neðan
lesa helstu atriði sem felast í sam
komulagi Arion banka, Akranes
kaupstaðar og Sementsverksmið
junnar frá 27. desember 2013:
1. Akraneskaupstaður tekur nú
við mannvirkjum sem eru alls um
21.500 fermetrar. Mannvirkin eru
kvaða og veðbandslaus og afhent
án endurgjalds. Bærinn tekur við
réttindum á lóðum upp á alls um
55.500 fermetra.
2. Sementsverksmiðjan ehf. mun
starfa að innflutningi sements og
leigja tæplega 11% af flatarmáli
lóða á sementsreitnum til 2028.
Þegar leigusamningurinn renn
ur út fær Akraneskaupstaður öll
mannvirki á viðkomandi lóð af
hent án kvaða, veðbanda eða end
urgjalds.
3. Kostnaður Akraneskaupstað
ar vegna svæðisins verður um 15
milljónir króna á ári (tryggingar,
rafmagn, vatn, hiti, fráveita o.fl.)
þar til mannvirkin hafa verið fjar
lægð og uppbygging hefst.
4. Húsrýmið sem Sementsverk
smiðjan tekur á leigu er alls um
1.400 fermetrar og Akraneskaup
staður fær af því um 6,3 milljónir
króna í leigugjald á ári.
5. Akraneskaupstaður fær Faxa
braut 10 (gula skemman) afhenta
eftir 3 mánuði og hefur möguleika
á að selja eða leigja öðrum.
6. Akraneskaupstaður fær við und
irritun samningsins eingreiðslu
upp á 23,4 milljónir króna í sam
ræmi við ákvæði samnings frá
árinu 2003 um niðurrif svokallað
rar efnisgeymslu.
7. Sementsverksmiðjan skuld
bindur sig til að mála mannvirki
á leigulóð sinni á árunum 2014
2016, þar með talin sementssíló og
bryggjuog færibandahús.
8. Sementsverksmiðjunni er gert
að fjarlægja allan lausan búnað
(vélar, tæki o.fl.) fyrir 1. septem
ber 2014.
9. Kostnaður vegna skipulags og
undirbúnings við að gera svæð
ið byggingarhæft mun falla á Akra
neskaupstað. Gert er ráð fyr
ir að kostnaður bæjarins við nið
urrif mannvirkja geti numið um
250 milljónum króna. Á móti
þeim kostnaði koma 23,4 milljón
ir króna sem Sementsverksmiðjan
ehf. greiddi í dag vegna niðurrifs
á efnisgeymslu, og einnig tekjur
vegna sölu eða leigu á Faxabraut
10. Þá hefur bærinn tekjur af sölu
byggingarréttar og af gatnagerðar
gjöldum til að standa undir því að
gera svæðið byggingarhæft.
mm
Frá undirritun samninganna 27. desember sl. F.v: Hrafn Nikolai Ólafsson og Árni Örvar Daníelsson frá Arion banka, Gunnar
H. Sigurðsson framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar, Gunnlaugur Kristjánsson stjórnarformaður Sementsverk-
smiðjunnar og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Ljósm. grþ.
Sementsreiturinn afmarkaður með rauðum og bláum línum. Sementsverksmiðjan
ehf. heldur eftir til 15 ára svæðinu sem afmarkað er með bláum línum til vinstri
(lóð nr. 11). Þar eru m.a. sementsgeymarnir. Akraneskaupstaður fær nú forræði
yfir lóðunum sem afmarkaðar eru með rauðum línum (lóðir nr. 20, 11A, 11B
og 11C). Mannvirki sem Sementsverksmiðjan leigir af Akraneskaupstað innan
„rauða svæðisins“ er merkt eru merkt með bláum skálínum.
Gunnlaugur Kristjánsson stjórnarformaður Sementsverksmiðjunar og Regína
Ásvaldsdóttir bæjarstjóri handsala samninginn.