Skessuhorn - 03.01.2014, Page 19
19FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
Vilja endurskoðun
á verðlagsmálum
AKRANES: Á aðalfundi sjó
mannadeildar Verkalýðsfélags
Akraness, sem haldinn var daginn
fyrir gamlársdag, voru samþykktar
nokkrar ályktanir. Meðal annars til
sjávarútvegsráðherra um að taka
verðlagsmál sjávarafurða til gagn
gerrar endurskoðunar. Einkum í
ljósi þeirrar staðreyndar að þjóð
arbúið í heild sinni verði af millj
örðum króna ár hvert vegna þess
að nú sé í gildi tvöföld verðlagn
ing á sjávarafurðum. Á fundinum
var mótmælt afnámi sjómannaaf
sláttar. Einnig krafðist aðalfund
ur sjómannadeildar VLFA þess að
allur fiskur færi á markað, eða að
fiskmarkaðsverð verði ætíð látið
gilda þegar veiðar og vinnsla eru á
einni og sömu hendi og afla land
að beint inn í vinnsluna. –þá
Stungu af án þess
að borga
REYKH/DALIR: Félagar úr
Björgunarsveitinni Heimamönn
um í Reykhólahreppi og Björgun
arsveitinni Dagrenningu á Hólma
vík fóru skömmu fyrir jól upp á
Þröskulda til aðstoðar fólki sem
sat þar fast í þremur bílum. Fólkið
var flutt á gististað hjá Ferðaþjón
ustunni Þurranesi í Saurbæ en bíl
arnir skildir eftir. Þegar kom fram
á morgundaginn eftir kom í ljós
að fólkið var farið frá Þurranesi og
hafði fengið far til að sækja bílana.
Í einum bílnum var par sem kom
svo aftur og gerði upp gistinguna
en fólkið í hinum bílunum lét
aldrei sjá sig né heldur heyra frá
sér. Frá þessu er sagt á vef Reyk
hólahrepps. „Maður bara skilur
þetta ekki,“ segir Brynjólfur Víðir
Smárason formaður Björgunar
sveitarinnar Heimamanna. „Þarna
eru menn úr tveimur björgunar
sveitum búnir í sjálfboðavinnu að
bjarga fólki í vandræðum og svo er
ekki einu sinni hægt að borga fyrir
gistinguna sem búið var að kaupa,
heldur stungið af. Þetta er ekki
bara leiðinlegt, þetta er ljótt,“ seg
ir Brynjólfur. –þá
Lántaka vegna
framkvæmda á
Höfða
AKRANES: Á fundum bæjar
ráðs og bæjarstjórnar Akraness
milli jóla og nýárs var samþykkt
ábyrgð á lántöku dvalarheimil
isins Höfða upp á 60 milljónir
króna. Lánið er tekið hjá Lána
sjóði sveitarfélaga vegna bygg
ingar nýrrar hjúkrunarálmu og
breytingu á tvíbýlum í einbýli,
sem komu til framkvæmda fyr
ir nokkru. Ábyrgðin skiptist milli
eignaraðila að Höfða, en þar
á Akraneskaupstaður 90% og
Hvalfjarðarsveit 10%. Lántakan
var samþykkt samhljóða í bæjar
stjórn Akraness. –þá
Tilfæringar á
brennustæði á
Hvanneyri
LBD: Vegna framkominna kvart
ana frá hesteigendum á Hvann
eyri til lögreglunnar í Borgar
firði og Dölum var fyrirhugað
brennustæði fært á Hvanneyri.
Sátt náðist um að brennan yrði
tendruð þar sem hún var stað
sett fyrir ári. Um litla áramóta
brennu var að ræða og tókst vel
með að kveðja árið við þá „krútt
legu“ brennu eins og einn að
komumaður hafði á orði, en hann
var þarna í fyrsta sinn um áramót,
segir í dagbók lögreglunnar. -þá
Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggð
ar rétt fyrir jólin var samþykkt að
hefja undirbúning fyrir félagsmið
stöð ungmenna í sveitarfélaginu.
Ungmennaráð Dalabyggðar skor
aði á sveitarstjórn að setja í for
gang að útvega húsnæði fyrir félags
miðstöð fyrir ungmenni í sveitarfé
laginu. Sveitarstjórn og byggðaráð
samþykktu að ráðinn verði starfs
maður í samvinnu við UDN sem
fyrst og að honum verði m.a. falið að
aðstoða ungmennaráð við að koma
á fót félagsmiðstöð. „Það hefur ver
ið helsta baráttumál hjá okkur að fá
félagsmiðstöð fyrir unglinga. Það
vantar nauðsynlega fyrir unglinga
hér einhvern stað þar sem þeir geta
hist, sinnt áhugamálum og haft fé
lagsskap. Eftir grunnskólann er lítið
hér fyrir unglingana við að vera. Við
erum líka að vonast til að ef við fáum
félagsmiðstöð geti hún orðið kveikja
að meira starfi hjá unglingunum,“
segir Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir
einn þriggja fulltrúa í ungmennaráði
Dalabyggðar. þá
V i ð b r a g ð s á æ t l u n
Hvalfjarðarganga hef
ur verið endurskoðuð
og samþykkt af þeim
sem hlut eiga að máli,
sú þriðja sinnar teg
undar frá upphafi. Hún
tekur til verkaskipt
ingar og samskipta
þeirra sem að málum
koma við óhöpp eða
slys í göngunum. Sér
stök viðbragðsáætlun
var í gildi þegar göng
in voru opnuð sumar
ið 1998. Hún var end
urskoðuð frá grunni 2004 og hefur
verið í gildi í þeim búningi þar til
nú að nýja viðbragðsáætlunin leysti
hana formlega af hólmi miðviku
daginn 18. desember síðastliðinn.
Almannavarnadeild ríkislög
reglustjóra stýrði vinnu við end
urskoðun áætlunarinnar. Megin
markmið þess verkefnis var að setja
áætlunina upp á sama hátt og aðrar
séráætlanir í almannavarnakerfinu,
svo sem fyrir flugvelli, hafnir, jarð
skjálfta og eldgos. Ný viðbragðs
áætlun Hvalfjarðarganga nær til
lögreglu, slökkviliða, starfsmanna
Spalar, björgunarsveita, Landhelg
isgæslunnar, sjúkrahúsa, Vegagerð
arinnar og fleiri. þá
Fjárhagsáætlun sveitarfélagsins
Dalabyggðar fyrir næsta ár og næstu
þrjú ár var samþykkt við seinni um
ræðu á fundi sveitarstjórnar þriðju
daginn 17. desember sl. Þar er
gert er ráð fyrir að rekstarniður
staða Dalabyggðar verði lítillega
jákvæð á hverju ári á áætlunartíma
bilinu. Skuldahlutfall verði áfram
um 70%, það er að meðtöldum líf
eyrisskuldbindingum, og að fjár
hagsleg viðmið sem sett eru fram
í sveitarstjórnarlögum séu þann
ig uppfyllt. Til að þetta sé mögu
legt þarf að sýna töluvert aðhald í
rekstri sveitarfélagsins, segir í bók
un frá fundinum.
Á árinu 2014 er gert ráð fyrir að
heildartekjur A og Bhluta sveit
arsjóðs Dalabyggðar verði um 664
millj. kr. en heildargjöld án fjár
magnsliða um 643 millj. kr. Fjár
magnsliðir verða neikvæðir um 20
milljónir króna og rekstrarniður
staða samstæðu jákvæð um rúma
eina milljón króna. Áætlað er að
rekstarniðurstaða Ahluta verði já
kvæð um 2,6 millj. kr.
Fjárfest verður samkvæmt áætl
uninni fyrir 38 milljónir og ný lán
taka verður allt að 35 milljónum
króna. Gert er ráð fyrir að á næsta
ári verði komið upp aðstöðuhúsi á
íþróttavelli í Búðardal, urðunarstað
í landi Höskuldsstaða, endurnýja
aðstöðuhús á tjaldsvæði í Búðardal,
ljúka endurbótum utanhúss á Dala
búð og stjórnsýsluhúsi og byrja
á fráveitukerfi í hesthúsahverfi.
Gert er ráð fyrir að leik og tón
listarskólagjöld og mötuneytisgjöld
hækki um 2,5% en aðrar gjaldskrár
hækki almennt um 4,2%. Í fjár
hagsáætluninni er gert ráð fyrir að
framlegðarhlutfall verði um 7% og
handbært fé í árslok 2014 verði um
30 milljónir króna.
þá
Sturlaugur H. Böðvarsson AK var
eitt fárra skipa á veiðum í lok árs
ins. Skipið kom til hafnar aðfarar
nótt gamlársdags með 80 tonn af
góðum fiski. Lagt
var upp í túrinn
á miðnætti ann
ars í jólum en ekki
var hægt að veiða
fyrsta sólarhringinn
vegna veðurs. ,,Það
var ekki fyrr en um
miðnætti sólarhring
síðar að vindhrað
inn fór niður fyrir
20 m/s og þá gátum
við tekið fyrsta holið. Við byrjuð
um í kantinum vestur af Halanum
og veiddum austur eftir og á laug
ardeginum vorum við að veiðum
á Þverálshorninu. Þorskveiðin var
góð og við fengum einnig ýsu með.
Síðasta holið tókum við svo út af
Snæfellsjökli og fengum þá fjögur
til fimm tonn af ufsa og karfa. Allt
er þetta mjög góður fiskur og vel á
sig kominn,“ sagði Eiríkur Jónsson
í frétt á vef HB
Granda. Eirík
ur segir veiðarnar
hafi að mestu hafa
verið á Vestfjarða
miðum á þessu
ári. Lætur nærri
að þorskafli skips
ins sé um 2.300
tonn á árinu. Það
er veruleg aukn
ing frá fyrri árum
þegar mest áhersla ísfisktogaranna
var lögð á veiðar á karfa og ufsa.
,,Hér áður fyrr vorum við um það
bil með 800 til 1.200 tonn af þorski
á ári sem nokkurs konar meðafla
með karfa og ufsa,“ segir Eiríkur.
þá
Þokkalegur jólatúr
hjá Sturlaugi
Viðburðir um hátíðirnar
Ýmsar samkomur eru fastir liðir yfir
hátíðarnar, jól og áramót. Hér eru
nokkrar svipmyndir af samkomum
í Borgarfirði og Borgarnesi.
Í Brúarási í Hálsasveit er áratuga hefð fyrir jólatréssamkomu. Komið er saman,
dansað í kringum jólatréð og jólasveinar kíkja í heimsókn. Á eftir er síðan drekk-
hlaðið kökuhlaðborð. Ljósm. bhs.
Hópur ungs tónlistarfólks í Borgarfirði hefur nú í nokkur ár boðið íbúum í hér-
aðinu á tónleika. Að þessu sinni smekkfyllti Uppsveitin Reykholtskirkju með söng
og tónlistarflutningi. Ljósm bhs.
Hinn guðdómlegi gleðileikur var sýndur á þriðja dag jóla í Hjálmakletti í Borgar-
nesi, en verkið er nú sýnt annað hvert ár á sama tíma. Að þessu sinni var Eiríkur
Jónsson leikstjóri en söngur og leikur í höndum Borgnesinga og nærsveitunga.
Nær húsfyllir var á sýninguna og góð stemning. Ljósm. Guðrún Jónsdóttir.
Félagsmiðstöð í undir-
búningi í Dölunum
Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir einn
þriggja fulltrúa í ungmennaráði
Dalabyggðar.
Frá undirskrift neyðaráætlunarinnar. Gylfi Þórðarson
framkvæmdastjóri Spalar og Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri höfuðborgarsvæðisins.
Ný og endurskoðuð viðbragðs-
áætlun vegna Hvalfjarðarganga
Rekstur Dalabyggðar
verði í jafnvægi