Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Hvernig leggst nýja árið í þig? Spurning vikunnar (Spurt á Akranesi) Stefán Lárus Pálsson Ef ég held góðri heilsu er þetta flott ár, allt annað eru bara smá­ munir. Kristján Heiðar Ég held að 2014 leggist óvenju vel í mig. Manni finnst það svona almennt á fólki, það er eins og brúnin sé farin að léttast. Elías Jóhannesson Árið 2013 var gott ár og ég býst við að það verði framhald á því 2014. Bæði 13 og 14 eru mínar tölur. Ingi Þórir Bjarnason Bölvanlega. Þetta eru heilir 365 dagar framundan. Jón Jónsson Mjög vel. Íslandsmótið í körfubolta er nú hálfnað. Vesturlandsliðin fjögur í meistaraflokki hafa átt misjöfnu gengi að fagna það sem af er móti. Kvennalið Snæfells stendur best að vígi allra liða um áramót. Trónir lið­ ið eitt í efsta sæti Dominos­deildar kvenna með 22 stig. Karlalið Snæ­ fells er aftur á móti í 8. sæti Dom­ inos­deildar karla með 10 stig. Það er heldur neðar en stefnt var að fyr­ ir tímabilið. Lið Skallagríms dvelur síðan í næst neðsta sæti í sömu deild með einungis 4 stig. Það er í fall­ baráttu. Í 1. deild karla er loks lið ÍA í 8. sæti með 8 stig. Skessuhorn heyrði í þjálfurum Vesturlandslið­ anna fjögurra. Spurt var um gengi liða þeirra það sem af er leiktíð og baráttuna framundan á nýju ári. Stutt upp deildina Gengi karlalið Snæfells hefur verið í brokkgengara lagi á fyrri helming Íslandsmótsins miðað við fyrri ár. Liðið hefur sigrað í fimm leikjum af ellefu. Að sögn Inga Þórs Stein­ þórssonar þjálfara liðsins var stefnt að vera ofar í deildinni nú um ára­ mót. „Árangurinn er ekki alveg eins og við ætluðum okkur í upp­ hafi. Það býr hins vegar meira í lið­ inu. Menn innan þess og kring­ um það verða að snúa bökum sam­ an á síðari helming mótsins,“ segir Ingi. „Meiðsli hafa síðan sett strik í reikninginn. Jón Ólafur Jónsson hefur ekki gengið heill til skógar og munar töluvert um það. Hann er meiddur bakatil í læri en er þó allur að koma til,“ bætir hann við. Ingi segir einnig þó nokkra blóð­ töku fólgna í að missa Hafþór Inga Gunnarsson úr leikmannahóp­ num. Hann þurfti að leggja skóna á hilluna í desember vegna þrá­ látra meiðsla í hné. Ingi minnir á að tímabilið sé einungis hálfnað. Það liðið eigi mikið inni. „Það er stutt upp deildina. Við þurfum því ekki marga sigra til að komast hærra í töflunni.“ Fyrsti leikur Snæfells á nýja árinu er föstudaginn 10. janú­ ar gegn Þór Þorlákshöfn á útvelli. Í efsta sæti Önnur staða er hins vegar uppi hjá kvennaliði Snæfells. Ingi Þór þjálf­ ar einnig það lið. Kvennaliðið hef­ ur náð frábærum árangri það sem af er leiktíð. Það leiðir Dominos­ deild kvenna með 22 stig, tveimur stigum betur en lið Keflavíkur sem er í öðru sæti. Þá er liðið í átta liða úrslitum Powerade­bikarsins. „Ár­ angurinn er ofan við þær vænting­ ar sem við höfðum í upphafi tíma­ bilsins. Við sáum fyrir okkur að vera einhvers staðar í topp fjórum þannig að þetta er frábært,“ segir Ingi stoltur í bragði. Gott jafnvægi er á leik liðsins að hans mati. Leik­ mannahópurinn er myndaður af stelpum sem eru að leggja sig gríð­ arlega vel fram. „Þær vinna mjög vel sem lið. Innanborðs eru góð­ ir leiðtogar sem skila hlutverki sínu vel,“ segir Ingi. Liðið verður klárt í næsta leik sem fram fer í Stykkis­ hólmi á morgun gegn Grindavík. Nóg af leikjum eftir Engan bilbug er að finna á Pálma Þór Sævarssyni þjálfara Skalla­ grímsmanna þrátt fyrir brösugt gengi liðsins það sem af er vetri. „Við erum drullusvekktir með gengið hingað til, ætluðum við okkur meira fyrir tímabilið. Stað­ an er hins vegar svona í dag. Margt hefur spilað inn í. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn. Síðan höfum við verið óheppnir með útlendinga,“ segir Pálmi. Hann bindur vonir við nýja leikmanninn, Benjamin Curtis Smith, sem kom til landsins í gær. Pálmi segir að jólafríið hafi verið nýtt vel til æfinga. Ætla menn að mæta vel stemmdir til leiks á nýja árinu. Meiðsladraugurinn er hins vegar ekki horfin að fullu úr her­ búðum Borgnesinga því Grétar Ingi Erlendsson er meiddur á úln­ lið. „Hann er reyndar ekki brotinn en það mun skýrast á næstu dögum hversu langan tíma hann verður frá. Hvað sem því líður ætlum við að mæta grimmir í næsta leik. Nóg af leikjum eru eftir. Stefnan er sem fyrr sett á úrslitakeppnina í vor.“ Fyrsti leikur Skallagríms verður á heimavelli í Borgarnesi gegn ÍR föstudaginn 9. janúar. Stefna á úrslitakeppnina Að sögn Áskels Jónssonar spilandi þjálfara 1. deildarliðs ÍA hefur ár­ angur liðsins verið á ágætu róli á árinu. „Að baki er nokkuð fínt gengi og í takt við það sem við bjugg­ umst við í upphafi móts. Þó vor­ um við pínu óheppnir að vera ekki aðeins ofar en áttunda sæti. Pakk­ inn er hins vegar þéttur í deildinni og því getur allt gerst,“ segir Ás­ kell. Einungis fjögur stig skilja að ÍA og lið Þórs frá Akureyri sem er í öðru sæti. „Deildin er afar jöfn og spennandi sem er gott. Framhald­ ið leggst síðan vel í okkur. Góð stemning er í hópnum og margir leikmenn í fantaformi, t.d. Zachary Jamarco Warren sem er hörkuspil­ ari. Stefnan er sett á úrslitakepp­ nina og að vera þægilegri fjarlægð frá fallsvæðinu,“ bætir hann við. Áskell segir að verið sé að skoða nýja leikmenn. Jafnvel gætu tveir til þrír leikmenn gengið til liðs við lið­ ið áður en félagskiptaglugginn lok­ ar 31. janúar. Fyrsti leikur liðsins á árinu er föstudaginn 10. janúar á Akranesi gegn Fjölni. hlh Þrátt fyrir þrönga fjárhagsstöðu Grundarfjarðarbæjar er leitast við að koma til móts við þarfir íbúa eins og kostur er og þá ekki síst barna­ fjölskyldur. Af þeim sökum hækka hvorki dvalar­ né fæðisgjöld á leik­ skóla á næsta ári. Afsláttur ein­ stæðra foreldra og námsmanna hækkar úr 35% í 40% og afsláttur vegna þriðja barns fer úr 75% í 100%. Sama afsláttarregla gild­ ir um heilsdagsskóla. Verð skóla­ máltíða er óbreytt, en þau gjöld voru lækkuð verulega á árinu 2013. Gjaldskrá tónlistarskóla hækkar ekki sem og vegna heimaþjónustu. Þjónusta við eldri borgara hefur verið bætt, þar sem á ný er boð­ ið upp á heimkeyrslu á mat ásamt niðurgreiðslu á matarskömmtum. Aðrar gjaldskrár nema verðlags­ hækkunum. Þetta kom fram þegar fjárhagsáætlun Grundarfjarðarbæj­ ar var samþykkt eftir aðra umræðu á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 17. desember sl. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal hlutfall skulda af tekjum sveit­ arfélaga vera að hámarki 150% og hefur Grundarfjarðarbær lagt mikla áherslu á að vera innan lög­ bundins hámarks innan tíu ára eins og reglugerð kveður á um. Gert er ráð fyrir að skuldahlutfall lækki á árinu 2014 og verði um 175% í árslok (skuldir að meðtöldum líf­ eyrisskuldbindingum) og lækki enn frekar á næstu árum. Árið 2014 er seinna árið með 25% álag á fast­ eignaskatt íbúðarhúsnæðis. Frá­ veitugjald vegna íbúðarhúsnæðis er lækkað úr 0,15% í 0,12%, en frá­ veitugjald opinbers húsnæðis fer úr 0,15% í 0,20%. Sorpgjald og önnur fasteignagjöld eru óbreytt. „Í fjár­ hagsáætlun Grundarfjarðarbæjar vegna áranna 2014­2017 er megin­ áhersla lögð á það líkt og hin síð­ ari ár að lækka skuldir sveitarfélags­ ins, bæta lausafjárstöðu og ná jafn­ vægi í rekstri þess. Árið 2014 er gert ráð fyrir að greiða skuldir nið­ ur um liðlega 50 millj. kr. umfram lántökur. Þá hefur verið gengið frá samkomulagi við Arion banka vegna endurfjármögnunar gengis­ bundinna lána sem reyndust ólög­ mæt. Lausafjárstaða sveitarfélags­ ins hefur styrkst verulega undan­ farin misseri og verður lögð áhersla á að halda traustri lausafjárstöðu,“ segir í greinargerð frá bæjarstjórn vegna samþykktar fjárhagsáætlun­ ar. Gert er ráð fyrir að varið verði um 45 milljónum króna til fjár­ festinga á næsta ári hjá Grundar­ fjarðarbæ sem er meira en meðal­ tal undanfarinna ára. þá Komið til móts við barnafjölskyldur og íbúa þrátt fyrir þrönga stöðu Hálfleikur í Íslandsmótinu í körfubolta Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari karla- og kvennaliðs Snæfells. Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skalla- gríms. Áskell Jónsson, þjálfari ÍA.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.