Skessuhorn - 15.04.2014, Síða 15
15MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Í síðust viku var unnið við uppskip
un á salti í Stykkishólmi. Starfs
menn Ragnars og Ásgeirs ehf. sjá
um löndunina ásamt fleirum. Salt
sekkirnir eru hífðir upp úr skipinu
og vegur hver hífing átta tonn. Í
einni hífingunni fór gerðist það að
bryggjan við Skipavík hreinlega gaf
sig undan þunganum. Stoðin und
ir kranabílnum hrundi niður og við
það sveiflaðist farmurinn harkalega
til hliðar. Sem betur fer var enginn
verkamaður fyrir því þá hefði getað
farið illa. Allt slapp þetta því til en
verkið tafðist lítillega meðan kran
inn var færður á betri stað. tfk
Upphaf grásleppuveiða í Faxa
flóa lofar góðu þegar aflabrögð eru
annars vegar. „Það er mikið betri
grásleppuveiði hér sunnan Snæ
fellsness í ár heldur en var í fyrra.
Við erum með netin hér inn af Arn
arstapa, inn með ströndinni. Í dag
fengum við tvö og hálft tonn af grá
sleppu. Í gær voru það þrjú tonn og
hið sama í fyrradag,“ sagði Arnar
Kristinsson skipstjóri og útgerða
maður Kidda RE 89 þar sem hann
vann á dögunum við löndun á Arn
arstapa.
Það eina sem er í boði
Þeir róa tveir saman á Kidda RE.
„Við erum búnir að vera á grá
sleppuveiðum í eina viku. Það hef
ur gefið til róðra alla vikuna þann
ig að við erum búnir með sex daga
af þeim 32 sem við megum stunda
grásleppuveiðar í ár,“ sagði Arnar.
Netin sem Kiddi RE er með eru
alls 7.500 metrar á lengd. „Þetta er
það sem reglugerðin leyfir í ár. Alls
eru þetta 111 net hjá okkur.“
Líkt og aðrir grásleppukarlar er
Arnar mjög óhress með verðið sem
fæst fyrir grásleppuna og hrognin í
ár. „Það er alla vega 20 prósentum
lægra en í fyrra. Eina ástæðan fyr
ir því að við erum að þessum veið
um nú er að þetta er þó betra en
að sitja aðgerðalaus heima. Það er
ekkert annað í boði sem hægt er að
róa eftir á þessum árstíma.“
Norðmenn leita í lága
verðið á Íslandi
Arnar sagði að verðið á Íslandi til
sjómanna væri svo lágt núna að hann
væri búinn að heyra að kaupendur í
Noregi ætli ekki að kaupa hrogn af
eigin sjómönnum þar í landi. Þeir
ætli heldur að fara bara til Íslands
og kaupa þau hér. „Norska fisksölu
samlagið, Norges Råfisklag, fastset
ur lágmarksverð á fiski til sjómanna
þar sem ekki má fara niður fyrir.
Það setti lágmarksverð á grásleppu
með hrognum til norskra sjómanna
töluvert hærra en við erum að fá
hér á Íslandi. Kaupendunum í Nor
egi þykir lágmarksverðið of hátt og
segjast bara ætla að kaupa hér á Ís
landi í staðinn. Hér fáist þau ódýrt.
Þetta er svona maður.“
Urðu frægir á síldinni
Þeir á Kidda RE komust í fréttirnar
snemma í vetur. Það var þegar þeir
Arnar og félagi hans sigldu á trillu
innfyrir brúna yfir Kolgrafafjörð og
sönnuðu að síldin væri gengin inn
fyrir hana til vetrardvalar í firðinum.
Fregnin olli miklu írafári sem náði
hámarki þegar reynt var að reka síld
ina út aftur með því að varpa litlum
sprengjum í sjóinn.
Kidda RE var haldið til síldveiða í
allt fyrrahaust og framyfir áramót. Alls
veiddust 75 tonn af síld á bátinn. „Við
hættum á síldinni í janúar þegar kaup
endur vildu ekki meira. Síðan höf
um við ekki gert neitt fyrr en við fór
um á grásleppuna núna. Helsti kost
urinn við síldveiðarnar í lagnetin er
að veiðarfærakostnaðurinn er alger
lega í lágmarki. Olíukostnaðurinn er
sömuleiðis lítill. Þetta gerði það fyrst
og fremst að verkum að það var hægt
að hanga á þeim veiðum á meðan við
höfðum kaupendur að aflanum.“
Stefna á makrílinn í
sumar
Þegar grásleppuveiðunum lýkur
tekur væntanlega við nýtt hlé frá
Holan eftir kranafótinn. Ljósm. rsg
Bryggjudekkið gaf sig
undan þunganum
Góð grásleppuveiði við sunnanvert Snæfellsnes
veiðum. „Við stefnum svo á makríl
í sumar. Annars hef ég alltaf verið
á skötusel á sumrin. Nú fær mað
ur engan kvóta í því lengur. Það
er búið að skerða skötselskvótann
svo mikið. Ég var á skötuseln
um í fyrrasumar en hætti því um
verslunarmannahelgina. Við drif
um okkur þá á makrílinn. Það var
í fyrsta sinn sem ég stundaði veið
ar á honum. Við náðum þannig
að fjárfesta í búnaði til veiðanna
og prófa okkur áfram. Þannig að
við verðum tilbúnir fyrir vertíð
í sumar. Annars veit maður ekk
ert hvernig fyrirkomulag verður á
makrílveiðunum. Við sem gerum
þessa báta út fáum aldrei að vita
neitt fyrr en á síðustu stundu,“
sagði Arnar Kristinsson á Kidda
RE 89.
mþh
Hrognkelsunum landað úr Kidda RE í
vorblíðunni á Arnarstapa.
Arnar Kristinsson önnum kafinn á löndunarkrananum.
Sameinaður Lífeyrissjóður Suðurlands, Suðurnesja og Vesturlands
Iðgjöld
Lífeyrir
Fjárfestingartekjur
Fjárfestingargjöld
Rekstrarkostnaður
Skattlagning hins opinbera
Húseignir og lóðir
Hlutdeildarfélög
Verðbréf með breytilegum tekjum
Verðbréf með föstum tekjum
Veðlán
Bundin innlán og aðrar fjárfestingar
Nafnávöxtun
Hrein raunávöxtun
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu fimm ára
Hrein raunávöxtun, meðaltal síðustu tíu ára
Tryggingafræðileg staða
Nafnávöxtun séreignardeildar
Hrein raunávöxtun séreignardeildar
Kröfur á viðskiptamenn
Aðrar eignir
Viðskiptaskuldir
Guðmundur Smári Guðmundsson, stjórnarformaður
Björg Bjarnadóttir
Garðar K. Vilhjálmsson
Guðrún Hafsteinsdóttir
Halldóra Sigr. Sveinsdóttir
Ólafur S. Magnússon
Gylfi Jónasson
Fjárfestingar:
Annað:
www.festa.is
Hækkun á hreinni eign á árinu:
Hrein eign frá fyrra ári:
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyris:
Fjárfestingar:
2013
í milljónum króna
4.755
2.550
7.787
99
102
0
15
12
33.564
52.282
3.418
15
9,5%
5,5%
2,0%
1,7%
-3,8%
9,7%
5,7%
1.024
584
(1.525)
9.791
79.598
89.388
89.305
83
89.388
4.334
2.283
7.867
99
96
5
15
12
28.912
47.514
3.163
40
11,0%
6,0%
-3,2%
2,2%
-7,0%
9,6%
4,7%
903
872
(1.833)
9.717
69.881
79.598
2012
í milljónum króna
Annað:
Hrein eign til greiðslu lífeyris:
Efnahagsreikningur
Breytingar á hreinni eign
Afkoma Festu lífeyrissjóðs
Ýmsar kennitölur
Dagskrá ársfundar 2014
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins
3. Önnur mál, löglega upp borin
Ársfundur 2014
Ársfundur Festu lífeyrissjóðs verður
haldinn þriðjudaginn 13. maí nk.
Fundarstaður: Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38
Fundarstörf hefjast kl. 18:00
(59)
79.598
79.656