Skessuhorn - 15.04.2014, Page 19
19MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Framkvæmdir við endurgerð
Akratorgs á Akranesi eru nú í
hámarki, en gert er ráð fyrir að
lokið verði við verkið fyrir þjóðhá-
tíðardaginn í júní. Seinnipartinn
á föstudaginn leit torgið svona út.
Styttan af sjómanninum sem færð
var tímabundið meðan sökkullinn
undir henni var lækkaður, er komin
á sinn stað aftur. Búið er að brjóta
upp götuna næst torginu og smám
saman fer síðan að komast rétt
mynd á torgið.
mm/ Ljósm. mþh
Á fundi í háskólaráði Háskóla Ís
lands 10. apríl síðastliðinn var m.a.
fjallað um málefni Háskóla Íslands
og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Málið var rætt ítarlega og sam
þykkti háskólaráð einróma svo
hljóðandi ályktun:
„Háskólaráð Háskóla Íslands tel
ur mikilvægt að mörkuð sé stefna
um ábyrgð og hlutverk Íslendinga
í fæðuframleiðslu, nýtingu lands,
sjávar, vatns og annarra auðlinda.
Mikilvægt er að slík stefna byggi
á rannsóknum, nýsköpun og sjálf
bærni. Samkvæmt spá Matvæla
og landbúnaðarstofnunar Samein
uðu þjóðanna (FAO) er gert ráð
fyrir að á næstu 35 árum þurfi að
auka matvælaframleiðslu í heimin
um um 70% til að sjá farborða vax
andi fjölda fólks og koma til móts
við breyttar neysluvenjur. Háskóli
Íslands leggur áherslu á að vís
indastarfsemi á sviðum lífvísinda,
búvísinda, matvæla og næring
arfræði, matvælaverkfræði, auð
lindahagfræði, sjávarrannsókna,
umhverfisfræði og landnýting
ar verði efld til að skapa grund
völl fyrir sókn. Háskólaráð telur
að fjármagn sem varið er til þess
ara málaflokka sé þjóðhagslega
mjög arðbær fjárfesting, og mik
ilvægt að veita dreifðum kröftum
í einn farveg. Háskólaráð hvetur
því alla sem kjósa uppbyggingu og
sókn til framfara til að skoða áfram
með opnum huga þau tækifæri sem
kynnu að skapast með sameiningu
Háskóla Íslands og Landbúnað
arháskóla Íslands.
Verði ákvörðun tekin um sam
einingu háskólanna er háskóla
ráð Háskóla Íslands reiðubúið að
vinna að því að ofangreind mark
mið nái fram að ganga á núver
andi starfsstöðvum háskólanna, í
samræmi við bókun ráðsins frá 7.
nóvember 2013.“
mm
Stjórn samtakanna Landsbyggð
in lifi samþykkti nýverið ályktun
þar sem mótmælt er harðlega hug
myndum um sameiningu Land
búnaðarháskóla Íslands og Háskóla
Íslands:
„Stjórnin leggst alfarið gegn
hugmyndum um sameiningu Land
búnaðarháskólans á Hvanneyri
og Háskóla Íslands. Stjórnin tel
ur að sú hugmynd sé andstæð vald
dreifingu og fjölbreytni atvinnulífs
á landsbyggðinni. Stjórnin hafn
ar órökstuddum málflutningi um
að fræðilegur styrkur muni aukast
með sameiningu. Reyndin muni
verða sú að fræðilegi hlutinn muni í
meira mæli flytjast í Vatnsmýrina á
kostnað skólanna á landsbyggðinni
og lækka þar menntunarstig með
þekktum afleiðingum. Þá harm
ar stjórnin þau ósæmilegu vinnu
brögð og hótanir að bjóða annars
vegar viðbótar fjármuni ef að sam
einingu verði en niðurskurð ella.“
mm
Allt á rúi og stúi í kringum sjómanninn
Háskólaráð HÍ ályktar
um sameiningarmál
Landsbyggðin lifi leggst gegn
sameiningu háskóla
Reykholtsprestakall
Verið innilega velkomin
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
17. apríl Skírdagur Reykholt kl. 14
Ferming
18. apríl Föstudagurinn langi Reykholt kl. 22
19. apríl Aðfangadagur páska Reykholt kl. 23
Páskavaka: Prestar Reykholts-
Hvanneyrar- og Stafholtsprestakalla
standa að athöfninni.
20. apríl Páskadagur Gilsbakki kl. 11
20. apríl Páskadagur Reykholt kl. 14
Athugið að messa í Síðumúla á
2. páskadag fellur niður
Helgihald um páska í Reykholtsprestakalli
- Grímshúsfélagið -
Aðalfundur
Grímshúsfélagsins verður haldinn í Alþýðuhúsinu í
Borgarnesi miðvikudaginn 23. apríl 2014 kl. 20:00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf samkv. 11. gr. laga Grímshús-1.
félagsins.
Samkomulag við Borgarbyggð.2.
Innanhússhönnun og nýtingaráform Grímshúss.3.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
- Grímshúsfélagið - Hótel Hellissandur - Klettsbúð 9 - 360 Hellissandur
Sími 430 8600 - Fax 430 8601 - hotelhellissandur@hotelhellissandur.is