Skessuhorn - 15.04.2014, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2014
Steypustöð í Grundarrði í 51 ár
Steypustöðin í Grundarfirði getur rekið sögu
sína til þess er Björn Guðmundsson fékk sína
tveggja poka steypuhrærivél árið 1963.
Lárus Guðmundsson og Ágúst Sigurjónsson
taka við keflinu árið 1974. Í þeirra tíð komu tveir
öflugir steypubílar til sögunar.
Árið 1981 tekur Ólafur Guðmundsson við
rekstri á steypustöð í Grundarfirði. Í hans tíð er
sett upp fullkomin steypustöð sem vigtar allt
hráefni og er þar með ein af betri stöðvum á
landinu.
Í dag rekur Friðrik Tryggvason stöðina og hefur
gert frá árinu 2002.
Stórvirki unnið í samstar við
Steypustöð Grundararðar
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
©
L
jó
s
m
y
n
d
:
M
a
ts
W
ip
e
L
u
n
d
Landið sem
þér er gefið
Sýning um Guðmund Böðvarsson
Við bjóðum til hátíðardagskrár og opnunar
sýningar um skáldið á Kirkjubóli ��. apríl, á
sumardaginn fyrsta.
Þar mun Böðvar Guðmundsson segja frá
föður sínum og nemendur Tónlistarskólans
flytja tónlist við texta Guðmundar, að mestu
frumsamda. Einnig verða sýnd myndverk
sem nemendur í grunnskólum héraðsins
hafa gert við texta skáldsins.
Dagskráin verður í salnum á neðri
hæð Safnahúss og hefst kl. ��:��.
Hún tekur um � klst., svo verður
sýningin opnuð á efri hæðinni.
Kaffiveitingar í lok dagskrár.
Ókeypis aðgangur.
...Allar götur greiðir
gamla landið mitt,
sýnir hjarta sitt...
Safnahús Borgafjarðar
Bjarnarbraut �—�
��� Borgarnes
��. apríl — ��. september
����
Opið ��:�� — ��:��
alla virka daga
www.safnahus.is
Listsköpun unga fólksins
Safnahús Borgarfjarðar
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
Forstöðumanns hjá
Vinnumálastofnun
Dag ur í lífi...
Nafn: Guðrún Sigríður Gísla
dóttir.
Starfsheiti/fyrirtæki: Forstöðu
maður hjá Vinnumálastofnun
Vesturlandi.
Fjölskylduhagir/búseta: Bý á
Akranesi ásamt eiginmanni Guð
mundi S. Jónssyni og þremur
börnum. Við eigum fjögur börn;
þrjá syni og eina dóttur. Einnig
eigum við eitt barnabarn.
Áhugamál: Samvera með fjöl
skyldu og vinum. Útivera og
ferðalög, íþróttir almennt t.d.
hjólreiðar og boltaíþróttir.
Vinnudagurinn: Fimmtudagur
inn 10. apríl 2014.
Fór á fætur kl. 5:35 og var mætt
í Tabata í íþróttahúsinu á Jaðars
bökkum um kl. 6.00. Ótrúlega
gott að byrja daginn þannig.
Mætt til vinnu og fyrstu verk:
Mætti klukkan 8. Byrjaði á því
að hella upp á kaffi og kíkja yfir
tölvupóstinn. Við Bryndís náms
og starfsráðgjafi fórum svo yfir
fyrirliggjandi verkefni til að und
irbúa daginn sem best. Ég náði
að svara nokkru tölvupóstum
áður en ég fór á símafund kl. 9.
Klukkan 10? Þá var ég að ljúka
vikulegum símafundi með for
stöðumönnum hjá VMST þar
sem við fórum yfir ýmis sameig
inleg verkefni.
Hádegið? Þá skaust ég heim og
setti á köku. Gleypti í mig ban
ana til að fá smá orku.
Klukkan 14: Var þá í síman
um að aðstoða atvinnuleitanda.
Þjónustusvæði okkar nær yfir allt
Vesturland auk Reykhólahrepps
þannig að mikill hluti starfsins fer
fram í gegnum síma og tölvupóst.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Fór
úr vinnunni kl. 16:15, fór með
bréf á pósthúsið á leiðinni heim
áður en ég sótti yngsta son minn
í skóladagvistina.
Fastir liðir alla daga? Taka stöð
una á fyrirliggjandi verkefnum og
forgangsraða þeim. Svara tölvu
póstum og erindum sem berast.
Aðstoða þá sem til okkar leita.
Hvað stendur upp úr eft-
ir vinnudaginn? Ráðning í eitt
starf og líkur á að fyrirtækið ráði
annan starfsmann til viðbótar.
Alltaf ánægjulegt þegar atvinnu
leitendur fá starf og atvinnurek
endur eru ánægðir með þjónustu
okkar.
Var dagurinn hefðbundinn? Já,
það má segja það svona að mestu
leyti.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Seint á síðustu öld! 1.
október 1998.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Ég veit ekki hvort þetta er fram
tíðarstarf mitt en ég hef sinnt
þessu starfi lengi og finnst það
ennþá áhugavert og spennandi.
Ég hef verið heppin að hafa frá
bært samstarfsfólk bæði jákvætt
og duglegt sem ég tel að skipti
miklu máli í svona starfi.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Já ég geri það. Gott að hitta
samstarfsfólkið og takast saman á
við fyrirliggjandi verkefni.
Eitthvað að lokum? Ég óska öll
um gleðilegra páska.