Skessuhorn - 13.08.2014, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Meira en hálf
milljón ferða
manna
LANDIÐ: Um 144.500 er-
lendir ferðamenn fóru frá
landinu um Flugstöð Leifs
Eiríkssonar í júlí síðast-
liðnum samkvæmt talning-
um Ferðamálastofu. Eru
þetta 21.000 fleiri en í júlí
í fyrra. Aukningin nemur
17% milli ára. Aldrei hafa
jafn margir ferðamenn
verið hér á landi í júlí og
raunar aldrei fleiri í ein-
um mánuði. Af þessu hópi
voru Bandaríkjamenn fjöl-
mennastir, en þar á eftir
Þjóðverjar, Bretar, Frakkar,
Danir, Norðmenn og Sví-
ar. Af einstaka þjóðernum
fjölgaði Bandaríkjamönn-
um, Þjóðverjum, Bretum,
Kanamönnum, Kínverjum
og Svíum mest á milli ára.
Þessar sex þjóðir báru að
stórum hluta uppi aukn-
inguna í júlí eða um 70% af
heildaraukningu. Það sem
af er ári hefur rúmlega hálf
milljón ferðamanna farið
frá landinu, nánar tiltekið
546.353 eða um 111 þús-
und fleiri en á sama tíma-
bili í fyrra. Um er að ræða
25,6% aukningu ferða-
manna milli ára frá ára-
mótum í samanburði við
sama tímabil í fyrra. Um
39 þúsund Íslendingar fóru
utan í júlí síðastliðnum, um
6.200 fleiri en í júlí árið
2013. Frá áramótum hafa
224.443 Íslendingar farið
utan, eða 10,2% fleiri en á
sama tímabili árið 2013.
–mm
Gistinóttum
á hótelum
fjölgaði
LANDIÐ: Gistinætur á
hótelum landsins í júní-
mánuði voru 239.700
sem jafngildir 3% aukn-
ingu miðað við júní 2013.
Gistinætur erlendra gesta
voru 90% af heildarfjölda
gistinátta í mánuðinum en
þeim fjölgaði um 6% frá
sama tíma í fyrra á með-
an gistinóttum Íslendinga
fækkaði um 15%. Hér á
samanlögðu svæði Vestur-
lands og Vestfjörðum var
fjölgunin 7% í júní en var
mest á Suðurnesjum og
Suðurlandi; 37 og 20 pró-
sent. Á síðustu 12 mán-
uðum hefur gistináttum á
hótelum á Vesturlandi og
Vestfjörðum fjölgað um
20%. Það er sama aukn-
ing og á Suðurlandi en
Suðurnesin höfðu vinn-
inginn með 22% aukn-
ingu. Á höfuðborgarsvæð-
inu fjölgaði um 12% á 12
mánuðum, á Norðurlandi
um 8% en athygli vekur að
6% færri gistu á hótelum
á Austurlandi síðasta árið í
samanburði við tólf mán-
uðina þar á undan.
–mm
Óhefðbund
in upphitunar
aðferð
GRUNDARFJ: Verslun-
armannahelgin var frem-
ur róleg í Grundarfirði eins
og hún er venju samkvæmt
þrátt fyrir að vera ein mesta
ferðahelgi ársins á landsvísu.
Straumur fólks þræddi hin-
ar ýmsu hátíðir um land allt.
Þó að engin skipulögð dag-
skrá hafi verið í Grundarfirði
þá var samt talsverður fjöldi
fólks á tjaldsvæði bæjarins og
vildi það væntanlega hafa ró
og næði. Einmitt útaf þessu
ágæta fólki var slökkvilið
Grundarfjarðar kallað út að-
fararnótt sunnudagsins. Þá
hafði lítill hópur fólks talið
það hina bestu hugmynd að
kveikja varðeld á tjaldsvæð-
inu. Það er að sjálfsögðu
bannað nema með sérstöku
leyfi frá yfirvöldum. Slökkvi-
liðsmenn og lögregla brugð-
ust skjótt við og fór það svo
að lokum að gestir tjaldsvæð-
isins, sem stóðu að eldinum,
slökktu í glæðunum sjálfir og
notuðu til þess guðaveigar
sem þeir voru með við hönd.
Eftir ávítur frá lögreglu lof-
uðu viðkomandi að standa
ekki í slíkum aðgerðum aftur
til að hlýja sér.
–tfk
Aflatölur fyrir
Vesturland
2. 8. ágúst.
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes 14 bátar.
Heildarlöndun: 5.371 kg.
Mestur afli: Grímur AK:
1.252 kg í þremur löndun-
um.
Arnarstapi 40 bátar.
Heildarlöndun: 184.810
kg.
Mestur afli: Siggi Bessa SF:
15.329 kg í þremur löndun-
um.
Grundarfjörður 31 bátur.
Heildarlöndun: 170.095 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.692 kg í einni löndun.
Ólafsvík 46 bátar.
Heildarlöndun: 135.523 kg.
Mestur afli: Brynja SH:
12.566 kg í fjórum löndun-
um.
Rif 31 bátur.
Heildarlöndun: 117.711 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
36.352 kg í fjórum löndun-
um.
Stykkishólmur 18 bátar.
Heildarlöndun: 14.583 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 6.995
kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
66.692 kg. 7. ágúst
2. Helgi SH – GRU:
44.195 kg. 4. ágúst
3. Þórunn Sveinsdóttir VE
– GRU: 33.740 kg. 7. ágúst
4. Magnús SH – RIF:
12.575 kg. 5. ágúst
5. Magnús SH – RIF:
9.901 kg. 6. ágúst.
mþh
Það er mikið um að vera við
Grundar fjarðarhöfn þessa dagana.
Löndunargengi Djúpakletts hafði í
nógu að snúast á mánudaginn þeg-
ar verið var að skipa út tvö þúsund
brettum af frosnum makríl ofan
í flutningaskipið Green Maveric
á sama tíma og verið var að landa
upp úr Helga SH. Svo var Grund-
firðingur SH einnig væntanlegur
til löndunar. Á meðan á þessu stóð
fóru strandveiðibátarnir líka að tín-
ast inn og það þarf að sjálfsögðu að
þjónusta þá einnig. Dóra Henriks-
dóttir hafði varla tíma til að spjalla
við fréttaritara svo mikill var hama-
gangurinn við höfnina. Dóra reikn-
aði samt með að uppskipunin yrði
eitthvað fram á nóttina ef ekki fram
á næsta morgun.
tfk
Umhverfis- og framkvæmdasvið
Akraneskaupstaðar hefur unnið að
fegrun á Breiðinni í sumar. Gras
hefur verið slegið, rusl hreinsað,
gras hreinsað af stakkstæðum til að
gera þau sýnilegri og ankerum rað-
að á miðeyju við Akranesvita. Að-
ferðin sem notuð hefur verið við að
hreinsa stakkstæðin er að grasið er
slegið með sláttuorfi og í kjölfar-
ið er salti stráð til að eyða gróðri.
Það verður að gera reglulega til að
árangur náist og til að forðast að
gróður vaxi þar aftur. Verkefnið er á
tilraunastigi en vonast er til að það
skili árangri, segir í frétt á vef Akra-
nesbæjar. Einnig hafa verið sett
upp fjögur skilti um sögu Breiðar-
innar á veggnum við Hafbjargar-
húsið og eiga þrjú til viðbótar eft-
ir að bætast við. Þá er að auki búið
að reisa nýja skreiðarhjalla á Breið-
inni. Endurgerð þeirra var unnin í
samráði við Minjastofnun og sam-
kvæmt ráðleggingum húsasmíða-
meistara voru gömlu skreiðarhjall-
arnir dæmdir ónýtir. Af hjöllunum
stafaði slysahætta miðað við ástand
þeirra og var því ákveðið að ráðast í
endurgerð hjallanna.
Næst stendur til að fjarlægja báta-
kerrur af svæðinu og hafa eigendur
þeirra frest til 20. ágúst nk. til þess.
Þeir geta fengið tímabundið leyfi til
að geyma kerrurnar í sementsþró
við Sementsverksmiðjuna í samráði
við Akraneskaupstað. Að lokum er
unnið að því að undirbúa varan-
lega salernisaðstöðu fyrir sumarið
2015. Skipulag fyrir Breiðina er nú
í auglýsingaferli og er frestur til að
koma á framfæri athugasemdum til
28. ágúst nk. Gestum hefur fjölgað
jafnt og þétt á Breiðinni undanfar-
in ár og hafa yfir tólf þúsund manns
skráð sig í gestabækur Akranes-
vita að sögn Hannibals Hauksson-
ar ferðamálafulltrúa Akraneskaup-
staðar. grþ
Leikhúshostelið í Frystiklefanum í
Rifi var eitt 26 verkefna sem hlaut
samfélagsstyrk úr samfélagssjóði
Landbankans síðasta fimmtudag.
Samfélagsstyrkjunum er ætlað að
styðja við þá sem sinna mannúðar-
og líknarmálum, menntamálum,
rannsóknum og vísindum auk verk-
efna á sviðum menningar og lista.
Þá eru styrkir einnig veitir þeim
sem vinna að forvarnar- og æsku-
lýðsstarfi og sértækri útgáfustarf-
semi. Alls var tíu milljónum króna
varið í styrki og fékk Frystiklefinn
hálfa milljón í sinn hlut. Alls bár-
ust sjóðnum um 400 umsóknir.
„Samfélagsstyrkir Landsbankans
eru mikilvægur þáttur í stuðningi
bankans við samfélagið. Með þeim
leggur Landsbankinn einstakling-
um, hópum og félagssamtökum lið
við verkefni sem jafnan er sinnt af
einlægni og ómetanlegum áhuga
sem vert er að verðlauna,“ segir í
fréttatilkynningu frá Landsbankan-
um. Sjóðurinn veitir styrki tvisvar á
þessu ári en umsóknarfrestur fyrir
seinni úthlutun samfélagssjóðsins
rennur út 6. október næstkomandi.
jsb
Erill í Grundarfjarðarhöfn
Styrkþegar samfélagsstyrkja Landsbankans, eða fulltrúar þeirra, ásamt Guðrúnu Agnarsdóttur formanni dómnefndar lengst
t.v. og Jensínu Kristínu Böðvarsdóttur framkvæmdastjóra Þróunar og mannauðs hjá Landsbankanum lengst t.h.
Leikhúshostelið í Frystiklefanum
hlýtur samfélagsstyrk
Unnið hefur verið að því að snyrta og fegra Breiðina á Akranesi í sumar.
Fegrunaraðgerðir á Breiðinni