Skessuhorn - 13.08.2014, Blaðsíða 29
29MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Óska eftir páfagauk, gára
Óska eftir gára fyrir vinkonu mína.
Vinsamlega hafið samband í síma
867-9313.
Skólatöskur frá 8.590 kr.
Ert þú með barn sem er í skóla
eða er að fara að byrja í skóla? Hjá
www.liggala.is finnur þú vandaðar
og fallegar skólatöskur frá Bixbee.
Léttar töskur með bólstruðu baki á
góðu verði!
Einbýlishús til leigu
Við leitum að heiðarlegum og
reglusömum leigjanda að eigninni
okkar. Þetta er glæsilegt 130 fm.
4 herbergja heilsárshús á stór-
fenglegum stað í Hafnarskógi við
Borgarfjarðarbrú. Aðeins 5 mín-
útna akstur er í Borgarnes, 20 mín-
útur á Akranes og um 50 mínútna
akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Húsið er skráð sem íbúðarhús
og nýtur þannig allrar þjónustu
sveitarfélagsins. Leiguverð 140
þús. á mánuði. Netfang: peturhall@
hotmail.com.
4 herbergja íbúð óskast til leigu
Mig vantar 4 herbergja íbúð til
leigu í Borgarnesi frá og með 1.
september fyrir mig og tvo syni
mína. Er ekki með gæludýr, er
reyklaus, reglusöm og skilvís. Vin-
samlegast hafið samband við Guð-
rúnu Björgu í síma 894-1076 eða á
netfangið gudrunbjorg@bifrost.is
Óska eftir íbúð eða húsi með bíl-
skúr til leigu
Óska eftir 3 herbergja íbúð eða
húsi með bílskúr, þó ekki skilyrði, til
leigu á Akranesi eða í nágrenni. Er
með hund þannig að það verður
að samþykkjast. Hafið samband
í síma 696-2731 eða svanur16@
gmail.com
2ja herb. íbúð til leigu
Falleg 2ja herbergja íbúð í Engi-
hjalla 19, Kópavogi til leigu á kr.
150 þús. á mánuði með hússjóð og
hita. Leigist til eins árs í senn.
Óska eftir íbúð til leigu í Snæ-
fellsbæ
Ég er að leita íbúð til leigu í Snæ-
fellsbæ. Ég er ein, reglusöm og
snyrtileg. Er að taka við starfi um
miðjan ágúst þannig ég er að leita
að íbúð eins fljótt og mögulegt
er. Vinsamlegast hafið samband á
netfangið alma.sif.kristjansdottir@
gmail.com
ÓE (sumar-) húsi til leigu
Óska eftir húsi eða sumarhúsi til
langtímaleigu í Hvalfjarðarsveit.
Vinsamlegast hafið samband á
netfang 67dagny@gmail.com
Óska eftir 3-4 herb. íbúð eða
húsi í Borgarnesi
Kona rúmlega sextug óskar eftir
íbúð eða húsi, 3-4 herbergja. Er
mjög róleg og reglusöm og nota
tímann við hið ýmsa handverk sem
tengist íslenska þjóðbúningnum.
Skilvísum greiðslum heitið. Væri
mjög notalegt að dýrahald væri
leyft. Netfang: osk.o@internet.is
Takkaskór týndust
Rauðir Nike takkaskór með silfurlit-
aðri tungu gleymdust við íþrótta-
völlinn við Grundaskóla nýlega.
Skórnir voru í svörtum íþróttapoka.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 431-1975 eða 866-6028.
Fundarlaun.
Fjölþjálfi
Til sölu nánast ónotaður fjölþjálfi.
Keyptur í Húsasmiðjunni. Verðhug-
mynd 15 þúsund. Upplýsingar í
síma 6503310 eða 8933094.
Flísasög
Til sölu flísasög í mjög góðu
ástandi. Nánari upplýsingar í síma
893-3094.
Saunahús fyrir 4-5 manns
Er með eitt saunahús til sölu, nýtt
í kassanum. Framleitt í Kanada úr
cedrus harðviði. Allar upplýsingar í
síma: 650-4640.
Riffill
Rem 700 cal 270. Hlaup er af
gerðinni Shilen og er super match.
Valdimar Long rímaði það og
snittaði, glerblés það síðan, svo var
það beddað í skeftið. Aukahlutir
eins og hleðslupatrónur, taska og
þó nokkuð mikið af skotum fylgja
með. Einnig er tvífótur (veltifótur)á
rifflinum. Ásett verð 350 þús. Op-
inn fyrir tilboðum. Sími 663-0145.
Netfang: hjaltitth@simnet.is
Hótel Grásteinn Reykjanesbæ
Hótel Grásteinn Reykjanesbæ
býður landsmönnum öllum úrvals-
gistingu og geymslu á bíl meðan
ferðast er erlendis. Pantanir í síma
421-5200. www.hotelgrasteinn.is
TAPAÐ/FUNDIÐ
Grundarfjörður -
miðvikudagur 13. ágúst
Skemmtiferðaskipið MV Voyager er
væntanlegt klukkan 8.
Akranes -
miðvikudagur 13. ágúst
Húllum hæ hátíð á Bókasafni
Akraness kl. 14. Uppskeruhátíð
fyrir börn sem tekið hafa þátt í
Sumarlestri 2014. Ratleikur og
heppnir þátttakendur hljóta glaðning
frá styrktaraðilum verkefnisins. Og
árangurinn kemur í ljós, þ.e. fjöldi
bóka sem börnin hafa samtals lesið!
Borgarbyggð -
fimmtudagur 14. ágúst
Hreppslaugarhlaupið í Skorradal kl.
18. Ungmennafélagið Íslendingur
stendur fyrir Hreppslaugarhlaupi í
annað sinn. Boðið er upp á 3 km, 7 km
og 14,2 km hlaup, þannig að allir finna
hlaup við sitt hæfi.
Stykkishólmur -
föstudagur 15. ágúst
Danskir dagar verða haldnir hátíðlegir
í Stykkishólmi í 20. skiptið helgina
15.-17. ágúst. Sjá nánari umfjöllun og
auglýsingu hér í blaðinu.
Grundarfjörður -
föstudagur 15. ágúst
Grundarfjörður-ÍH á
Grundarfjarðarvelli kl. 19.
Strandir - laugardagur 16. ágúst
Íslandsmeistaramót í hrútadómum
verður haldið kl. 14 á Sauðfjársetrinu í
Sævangi 12 km. sunnan við Hólmavík.
Borgarbyggð -
sunnudagur 17. ágúst
Guðsþjónusta á ágústkvöldi í
Borgarneskirkju kl. 20. Organisti
Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn
Hlynur Árnason.
Á döfinni
DÝRAHALD
LEIGUMARKAÐUR
TIL SÖLU
Markaðstorg Vesturlands
ÝMISLEGT
Nýfæddir Vestlendingar
Laust starf hjá Umhverfis- og
skipulagssviði Borgarbyggðar
Starfsmaður í áhaldahúsi
Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf í áhaldahúsi sem sveitarfélagið
hyggst koma á fót. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í vaxandi
sveitarfélagi.
Leitað er eftir laghentum og duglegum einstaklingi með góða samskiptahæfni.
Í starfinu felst að sjá um undirbúning, skipulagningu og vinnu við ýmsar
verklegar framkvæmdir og umhirðuverkefni á vegum áhaldahúss, s.s. við
gatnakerfi, opin svæði og veitur. Starfsmaður kemur auk þess að verkefnum í
tengslum við vinnuskóla og ýmsum fleiri verkefnum.
Starfið krefst frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða, góðra mannlegra sam-
skipta, haldgóðrar tölvukunnáttu auk þess sem lögð er áhersla á samvisku-
semi og snyrtimennsku. Iðnmenntun er æskileg en reynslu má meta til jafns.
Konur jafnt sem karlar koma til greina í starfið.
Launakjör skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jökull Helgason í síma 433-7100 eða
á netfangið jokull@borgarbyggd.is. Umsóknarfrestur er til 28. ágúst 2014.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar í Ráðhús Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
2. ágúst. Drengur. Þyngd 4.250
gr. Lengd 55 sm. Foreldrar: Ása
Gunnur Sigurðardóttir og Ari Bent
Ómarsson, Hellissandi. Ljósmóðir:
Lóa Kristinsdóttir. Með á myndinni er
Gunnar Bent stóri bróðir.
6. ágúst. Stúlka. Þyngd 4.025
gr. Lengd 53 sm. Foreldrar: Sara
Diljá Hjálmarsdóttir og Birkir
Rúnar Jóhannsson, Stykkishólmi.
Ljósmóðir: Anna Björnsdóttir.
8. ágúst. Stúlka. Þyngd 3.480 gr.
Lengd 51 sm. Foreldrar: Berglind
Ernudóttir og Tómas Gauti
Einarsson, Hafnarfirði. Ljósmóðir:
Soffía G. Þórðardóttir.
8. ágúst. Drengur. Þyngd 3.625
gr. Lengd 51 sm. Foreldrar: Agla
Harðardóttir og Salvar Georgsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Anna
Björnsdóttir.
9. ágúst. Drengur. Þyngd 3.065
gr. Lengd 49 sm. Foreldrar: Valdís
Helga Þorgeirsdóttir og Óli Valur
Þrastarson, Reykjavík. Ljósmóðir: G.
Erna Valentínusdóttir.
9. ágúst. Stúlka. Þyngd 4.095 gr.
Lengd 53 sm. Foreldrar: Hafdís
Hrönn Hafsteinsdóttir og Andri
Björgvin Arnþórsson, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
FYRIR BÖRN