Skessuhorn - 17.09.2014, Qupperneq 11
11MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2014
Björg tekur við starfi leikskóla-
stjóra á Sólvöllum
Björg Karlsdóttir hefur verið ráð-
in leikskólastjóri Leikskólans Sól-
valla í Grundarfirði og hóf hún störf
í byrjun þessa mánaðar. „Björg hef-
ur langa reynslu sem leikskólakenn-
ari og starfaði m.a. sem leikskóla-
stjóri á Reykhólum og sem aðstoð-
arleikskólastjóri í Færeyjum. Hún
hefur góða reynslu í uppbyggingu á
starfi leikskóla,“ segir í tilkynningu
frá Grundarfjarðarbæ.
Björg tekur við af Matthildi Guð-
mundsdóttur, sem hættir nú að eigin
ósk sem leikskólastjóri. Matthildur
hefur verið starfsmaður leikskólans
frá upphafi, eða í tæp 38 ár og síðustu
sex árin sem leikskólastjóri. „Það er
mikið lán fyrir Grundarfjarðarbæ að
fá áfram að njóta starfskrafta henn-
ar í 50% stöðugildi við leikskólann.
Um leið og Matthildi eru þökkuð
góð störf er Björg Karlsdóttir boðin
hjartanlega velkomin til starfa,“ seg-
ir jafnframt í tilkynningunni.
mm
Matthildur (t.v.) og Björg. Ljósm. ahk.
Baldvin Leifur Ívarsson, eig-
andi Fiskiðjunnar Bylgju í Ólafs-
vík er jafnframt oddviti J-listans
í Snæfellsbæ. Fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar í vor hafði Bald-
vin aldrei komið nálægt pólitík en
endaði þó í fyrsta sæti á framboðs-
lista. Blaðamaður Skessuhorns
hitti Baldvin fyrir stuttu og ræddi
við hann um þá ákvörðun hans að
gerast oddviti í næststærsta flokki
sveitarfélagsins. „Það var einfald-
lega leitað til mín og ég beðinn
um að bjóða mig fram. Það end-
aði svo með því að ég lenti í fyrsta
sæti. Ég er ekki mjög innviklaður
í pólitík en ég fylgist með og hef
mínar skoðanir eins og annað fólk.
Ég hef þó aldrei verið í kringum
bæjarpólitíkina áður en hef mik-
ið verið í íþróttastarfi bæjarins og
sinnt ýmsum félagsstörfum.“
J-listinn fékk í kosningunum í
vor þrjá kjörna fulltrúa í sveitar-
stjórn Snæfellsbæjar af sjö, en hin-
ir fjórir eru allir fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins líkt og var fyr-
ir næstsíðustu kosningar. Bald-
vin segir að markmið J-listans
séu nú að vinna að góðu samstarfi
við meirihlutann til að efla Snæ-
fellsbæ. „Að mínu mati er það ekki
starf minnihlutans að vera sífellt
að slást við meirihlutann. Það sem
er fyrst og fremst mikilvægt er að
allir geti unnið saman til að bæta
samfélagið. Í því felst meðal ann-
ars að virkja tengsl íbúa við stjórn-
endur sveitarfélagsins og vera með
opnari samvinnu við fólkið sem
hér býr.“
Nóg af hráefni en
lélegt fyrirkomulag
fiskveiða
Baldvin rekur Fiskiðjuna Bylgju
í Ólafsvík. Þar hefur hann unnið
síðan hann fluttist til Ólafsvíkur
fyrir 26 árum en þá rak faðir hans
fyrirtækið. „Hér erum við að vinna
fisk til útflutnings og er mikið af
okkar söluvöru sérvara. Við kaup-
um allan fisk á mörkuðum og það
hefur ekki verið hráefnisskortur í
mörg ár,“ segir Baldvin, en hann
hefur þó áhyggjur af fiskveiði-
stjórnun fyrir smábátaútgerðir. „Í
markíl- og strandveiðum væri ég
til í að sjá allt annað fyrirkomulag
en er nú við lýði. Það væri að mínu
mati mun betra að hafa þar ákveð-
in tímabil sem mætti veiða en ekki
að hafa kílóbundið fyrirkomulag
eins og er í dag. Ég veit að vísu
ekkert hvort það sé mögulegt,
miðað við núverandi reglugerð-
ir og alþjóðalög, en það myndi
létta álagið á smábátasjómönnum
sem róa orðið stanslaust til að ná
sem mestu úr sameiginlegum afla-
heimildapotti,“ segir Baldvin.
jsb
Vill sjá meiri samvinnu í sveitarfélaginu
Baldvin Leifur Ívarsson, oddviti J-listans í Snæfellsbæ og eigandi Fiskiðjunnar
Bylgju. Baldvin sést hér í vinnslusal Bylgjunnar við nánast fullan skáp af lang-
lúruflökum vöfðum utan um lax.
Stílhrein og sterk
sorptunnuskýli
á hausttilboði
Einstök og falleg gæðaskýli sem fela og
verja sorptunnurnar á snyrtilegan hátt.
20%
afsláttur
Haustútsala
BM Vallá • Breiðhöfða 3, 110 Reykjavík
Sími: 412 5050 • sala@bmvalla.is • bmvalla.is
Sendum heim um allt land!
Ljósmyndasafn Akraness
vill fá aðstoð frá þér
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4