Skessuhorn - 24.09.2014, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 2014
Alltaf er gaman að frétta af fólki
fullu dugnaðar sem vinnur að
mörgum skemmtilegum verk-
efnum. Ekki síst ungu fólki. Gott
dæmi um unga, fjölhæfa og at-
hafnasama konu er Ásta Marý
Stefánsdóttir frá Skipanesi í Hval-
fjarðarsveit. Ásta Marý hefur lok-
ið námi í vélsmíði og er nýbúin að
taka sveinsprófið. Hún hóf í haust
búfræðinám á Hvanneyri og stund-
ar samhliða því einsöngsnám við
Tónskóla Sigursveins. Ásta Marý
syngur einnig með Módettukór
Hallgrímskirkju í Reykjavík ásamt
móður sinni Guðfinnu Indriða-
dóttur, sem reyndar er lærð óperu-
söngkona. „Þótt mamma sé flott
söngkona langar mig að verða
ennþá stærri en hún,“ segir Ásta
Marý hlæjandi og heldur áfram.
„Kórinn var einmitt í keppni og
á söngmóti á Spáni og var reynd-
ar aðalsigurvegari í keppninni.
Það var leiðinlegt að missa af því
en maður getur ekki verið allsstað-
ar,“ sagði Ásta Marý þegar blaða-
maður Skessuhorns hitti hana að
máli í hádegishléi á Hvanneyri í
lok síðustu viku. Þá var hún ný-
komin úr tíma en smástund gafst
þar á undan fyrir hana að skreppa
í smiðjuna að rafsjóða. Það er von
að blaðamaður hafi orð á það við
Ástu Marý að fjarri lagi geti hún
talist löt manneskja.
Hæg heimatökin að
læra vélsmíðina
Systkinin á Skipanesi hafa verið
dugleg í hestamennskunni. Ásta
Marý var í henni á fullu þegar hún
var barn og keppti þá talsvert. Hún
gerir lítið úr árangrinum og seg-
ir að systkini sín séu mun duglegri
á hestunum. „Ég er alltaf eitthvað
viðloðandi hestamennskuna hvort
sem það er að ríða út eða dunda
mér í kringum hrossin. Ég hætti
hins vegar í keppnismennskunni
þegar að ég var í nokkuð stífu tón-
listarnámi á tímabili.“ Ásta Marý
segir að það sé fjölbreytt starfsemi
heima í Skipanesi. „Pabbi rekur
vélaverkstæði heima og það voru
því hæg heimatökin þar að læra
ýmislegt. Það má segja að ég sé
að feta í fótspor föður míns. Hann
er vélvirkjameistari og búfræðing-
ur frá Hvanneyri. Heima á verk-
stæðinu starfa auk vélvirkja, plötu-
smiðir, suðumenn og bifvélavirki.
Svo eru við með bústofn líka. Ég
hef unnið að öllum bústörfunum
og eldað ofan í karlana sem eru að
vinna á verkstæðinu.“
Aflaði sér
veraldarreynslu
Ásta Marý fór að loknu grunnskóla-
námi í Hvalfjarðarsveitinni í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. „Ég byrjaði þar í grunndeild
málmiðna en fór síðan á náttúru-
fræðibraut og brautskráðist þaðan
sem stúdent. Ég gerði reyndar hlé
á námi því mig langaði að afla mér
svolítillar veraldarreynslu. Byrjaði
á því að fara til Slésvíkur í Þýska-
landi. Þar vann ég á hestabúgarði í
fjóra mánuði. Svo fór ég til Kaup-
mannahafnar og vann þar á endur-
hæfingarstöð fyrir eldri borgara í
aðra fjóra mánuði. Það fannst mér
ótrúlega fín og skemmtileg vinna
og gæti alveg hugsað mér að starfa
við þetta í framtíðinni eins og svo
margt annað. Þegar ég kom heim
kláraði ég svo námstímann í vél-
smíðinni enda átti ég bara ár eftir.“
Sér sig ekki
sem stórbónda
Aðspurð hvernig hún komi öllu
þessu fyrir í dagskránni, að nema á
Hvanneyri og keyra þrisvar sinnum
í viku í söngnámið og á kóræfingar,
segir Ásta Marý að það felist í góðri
skipulagningu. Hún segir að á tíma-
bili hafi hún ekkert vitað hvað hún
ætlaði að leggja fyrir sig og vissi það
ekki ennþá. „Ég held ég eigi eftir að
fara aftur til útlanda. Það var ótrú-
legt hvað litla sveitastelpan plumm-
aði sig vel í Kaupmannahöfn. Ég sé
mig ekki í framtíðinni sem bónda á
stóru býli. Miklu frekar að ég verði
söngkona eða syngi og stundi bú-
skap í hjáverkum. Ég hef verið
hvött til að halda áfram söngnámi,“
segir Ásta Marý. - En hvers vegna
ákvað hún að fara í búfræðinám?
„Meðan ég hef ennþá áhuga fyr-
ir búskapnum langaði mig að læra
meira um hann, svo sem í sambandi
við fóðrun og heilbrigði dýra. Svo
er þetta líka ágæt undirstaða fyrir
framhaldsnám eins og í búvísind-
um og náttúrufræði.“
En hvernig líkar svo Ástu Marý
að nema á Hvanneyri? „Þetta er
mjög skemmtilegt. Til gamans
má geta þess að við erum hérna
hvorki fleiri né færri en sex krakk-
ar úr Hvalfjarðarsveitinni og getum
skipst á að keyra hingað.“ Þannig
virðist sem ekki þurfi að óttast að
landbúnaðurinn í sveitinni láti mik-
ið undan síga gagnvart þeirri miklu
iðnaðaruppbyggingu sem þar? „Já,
það er nefnilega nákvæmlega svo-
leiðis. Framtíð landbúnaðarins er
björt í sveitinni,“ segir Ásta Marý.
Syngja og spila
í sveitinni
Ásta Marý segist hafa verið svo-
lítið í tónlist í sveitinni síðustu
misserin. „Ég og Heiðmar Eyj-
ólfsson vinur minn og sveitungi úr
Hlíð spilum oft saman og iðulega
ásamt fleirum. Þá komum við fram
undir nafninu Sveitin milli stranda.
Nú síðast stóðum við að og skipu-
lögðum 17. júní hátíðarhöld hérna
í sveitinni með vini okkar úr Norð-
urárdalnum; Heimi Klemenzsyni.
Við héldum jólatónleika fyrir síð-
ustu jól inni á Bjarteyjarsandi og þá
fengum við sönghópinn Spangól-
andi úlfa úr Heiðarskóla til liðs við
okkur. Þeir tónleikar tókust virki-
lega vel og fengum við góðar mót-
tökur. Mér finnst alveg virkilega
gaman að svona tónlistarstarfi og
ekki skemmir fólkið sem vinnur að
því með mér. Allt eintómir snilling-
ar,“ segir Ásta Marý að endingu.
þá
Ný hannyrðaverslun verður opnuð
á Akranesi næstkomandi föstudag.
Um er að ræða verslunina Gallery
Snotra, sem staðsett er við Kirkju-
braut 54, í sama húsi og Gallerý
Urmull og Gallerí Flóki. Að sögn
Sigurlínu Júlíusdóttur, eiganda
verslunarinnar, verður aðaláherslan
lögð á að selja hannyrðavörur, garn
og lopa.
„Við verðum samt líka með
smáhluti sem alla vantar, svo sem
tvinna, rennilása og tölur,“ segir
hún. Sigurlína hefur sjálf reynslu af
allskyns handavinnu og hefur sótt
ýmis námskeið. Hún stefnir jafn-
framt á að verða með eitthvað af
námskeiðum í vetur, þó engar dag-
setningar séu ákveðnar í þeim efn-
um. „Ég hef verið í allskyns föndri
í mörg ár. Ég vann áður í Ævin-
týrakistunni og hef farið á allskonar
námskeið. Stefnan er að bjóða upp
á námskeið í Gallery Snotru í vet-
ur, svo sem í prjóni, hekli og fleiru.
Ég myndi þá fá einhverja gesti til að
koma og kenna eitthvað sem hægt
er að hafa gagn og gaman af.“
Verslunin verður opin alla virka
daga frá kl. 11 - 18 og á laugardög-
um frá kl. 11 - 14.
grþ
Tekjuafkoma hins opinbera var nei-
kvæð um 32 milljarða króna árið
2013 eða 1,7% af landsframleiðslu.
Er það skömminni skárri niðurstaða
en árið 2012 þegar tekjuafkom-
an var neikvæð um 65,2 milljarða
króna. Tekjur hins opinbera námu
796 milljörðum króna og jukust um
55 milljarða milli ára eða um 7,4%.
Sem hlutfall af landsframleiðslu
mældust þær 42,5%. Útgjöld hins
opinbera voru 828 milljarðar króna
og jukust um 22 milljarða króna
milli ára eða 2,7% en hlutfall þeirra
af landsframleiðslu var 44,2%.
Á öðrum ársfjórðungi þessa árs
reyndist tekjuafkoma hins opinbera
neikvæð um 1,8 milljarða króna. Er
það jafnframt skárri niðurstaða en á
sama tíma 2013 þegar hún var nei-
kvæð um 11 milljarða króna. Tekju-
hallinn nam 0,4% af landsfram-
leiðslu ársfjórðungsins eða 0,9%
af tekjum hins opinbera. Heild-
artekjur hins opinbera jukust um
8% milli 2. ársfjórðungs 2013 og
2014. Tekjuaukningin skýrist fyrst
og fremst af auknum skatttekjum.
Heildarútgjöld hins opinbera juk-
ust um 3,1% milli 2. ársfjórðungs
2013 og 2014. Sú útgjaldaaukning
skýrist aðallega af aukinni fjárfest-
ingu og meiri launakostnaði.
mm
Frá jólatónleikum Sveitarinnar
milli stranda. Frá vinstri: Heimir
Klemenzson frá Dýrastöðum í
Norðurárdal, Sigríður Hjördís Indr-
iðadóttir frá Kjaransstöðum í Hval-
fjarðarsveit, Heiðmar Eyjólfsson frá
Hlíð í Hvalfjarðarsveit og Ásta Marý
Stefánsdóttir.
Búin að læra vélsmíði og er nú í búfræði og einsöngsnámi
Spjallað við hina atorkusömu Ástu Marý Stefánsdóttur frá Skipanesi
Ásta Marý nemur búfræði á Hvanneyri í vetur.
Við vinnu á vélaverkstæðinu í Skipanesi.
Tekjuafkoma hins opin
bera er stöðugt neikvæð
Svipmynd úr nýju versluninni.
Ný hannyrðaverslun brátt opnuð á Akranesi