Fréttatíminn - 08.08.2014, Side 2
Við reyn-
um bara
að höfða
til heiðar-
leika fólks.
Íþróttir Ungmennafélagsandinn er ekki alltaf við lýði á landsmótUm
Svindla börnunum
inn á landsmót UMFÍ
Tíu ára stúlku, sem æfir fótbolta með ellefu ára stúlkum, var synjað um undanþágu til þátttöku á
Unglingalandsmóti UMFÍ. Framkvæmdastjóri landsmótsins segir engar undanþágur veittar vegna
þess fordæmis sem myndi skapast. Hann þekkir til þess að foreldrar hafi svindlað börnum inn á
mótið á rangri kennitölu en segist vilja treysta á heiðarleika fólks.
Allt að tíu þúsund manns voru á Unglingalandsmóti UMFÍ um liðna helgi. Aldurstakmörk þátttakenda til að keppa á mótunum
eru 11 - 18 ára, og er miðað við fæðingarár. Af Unglingalandsmóti 2013/UMFÍ
v ið getum ekki gefið undan-þágur frá aldurstakmarkinu. Við höfum ekki þorað að fara
þá leið vegna þeirra fordæma sem
það myndi skapa,“ segir Ómar Bragi
Stefánsson, framkvæmdastjóri Ung-
lingalandsmóts UMFÍ, sem fram fór
um síðustu helgi. Ellefu ára aldurs-
takmark er á mótið og því sótti móðir
tíu ára stúlku, sem er ári á undan í
skóla og æfir fótbolta með ellefu ára
stúlkum, um undanþágu fyrir dóttur
sína en var synjað.
Ómar segir að á hverju ári berist
ein eða tvær umsóknir um undan-
þágu frá aldurstakmarki og séu
ástæðurnar til dæmis þær að vinir
séu að keppa, systkini, eða að barn
hefur verið fært upp um bekk í skóla.
„Við höfum haldið þeirri línu að veita
ekki undanþágu. Ef við veitum eina
undanþágu koma enn fleiri foreldrar
næst og vilja fá undanþágu fyrir
sín börn. Margir hafa mjög góðar
ástæður fyrir sínum óskum en við
höfum haldið fast við reglurnar. Við
höfum meira að segja stundum verið
með tárin í augunum yfir því að þurfa
að neita,“ segir Ómar.
Móðir tíu ára stúlkunnar segist
hafa fengið ábendingar frá fólki í
kring um sig um að skrá dóttur sína
inn á mótið á kennitölu annars barns
svo hún fengi að spila og veit hún um
dæmi þess að foreldrar hafi gert það
en móðurinni hugnaðist ekki slíkur
óheiðarleiki auk þess sem hún vildi
ekki senda dóttur sinni slík siðferðis-
lega röng skilaboð. Mæðgurnar fóru
þrátt fyrir allt á mótið enda var eldri
dóttirin að keppa og sú yngri horfði á
liðsfélaga sína spila fótbolta.
Ómar segist hins vegar þekkja
dæmi um að foreldrar hlíti ekki regl-
unum. „Það hafa slæðst inn á mótin
hjá okkur krakkar sem eru undir
aldri. Það á ekki að geta gerst og það
eina sem í raun kemur til greina er
að foreldrar svindli á kerfinu og noti
aðra kennitölu fyrir barnið sitt. Það
er erfitt fyrir okkur að eiga við það en
við höfum fengið ábendingar um slíkt
frá öðrum foreldrum. Við reynum
bara að höfða til heiðarleika fólks,“
segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
20%afsláttur
Fæst án lyfseðils.
Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli
vandlega fyrir notkun.
reykjavÍkUrmaraþon yfir átta þúsUnd hafa skráð sig
Metfjöldi stefnir á þátttöku í maraþoni
Yfir átta þúsund manns, eða 8.035,
hafa skráð sig til þátttöku í Reykja-
víkurmaraþon Íslandsbanka sem
fram fer laugardaginn 23. ágúst,
um 7% fleiri en á sama tíma í fyrra.
Skráning er í fullum gangi á vefn-
um marathon.is.
Að sögn Önnu Lilju Sigurðar-
dóttur upplýsingafulltrúa stefn-
ir metfjöldi hlaupara á þátttöku
í maraþoni, 42,2 kílómetra, en
1.037 hafa skráð sig í vegalengd-
ina. Gamla þátttökumetið var sett
í fyrra þegar 977 skráðu sig í mara-
þon.
10 kílómetra hlaupið er vinsæl-
asta vegalengdin, líkt og undanfarin
ár, en rúmlega helmingur skráða
þátttakenda stefnir á að hlaupa þá
vegalengd, eða 4200. Einnig er
hægt að velja um að skrá sig í hálft
maraþon, 3 kílómetra skemmti-
skokk, Latabæjarhlaup og boðhlaup
þar sem 2-4 skipta á milli sín mara-
þonvegalengdinni.
Skráðir erlendir þátttakendur eru
nú 2.025 og af 60 mismunandi þjóð-
ernum. Flestir erlendu þátttakend-
anna koma frá Bandaríkjunum, 468
manns og næst flestir frá Bretlandi,
353. Þá eru skráðir Þjóðverjar 219
talsins, Kanadabúar 193 og Norð-
menn 106.
Netskráningu í hlaupið lýkur
fimmtudaginn 21. ágúst, klukkan
13. Einnig verður hægt að skrá sig
í hlaupið á skráningarhátíð í Laug-
ardalshöll en þá er þátttökugjaldið
hærra.
Áheitasöfnun Reykjavíkurmara-
þons Íslandsbanka fer fram á vefn-
um hlaupastyrkur.is. 2506 hlaup-
arar eru byrjaðir að safna áheitum
á vefnum og hafa þegar safnast
rúmlega 17 milljónir til góðra mál-
efna en það er 7% hærri upphæð
en búið var að safna á sama tíma í
fyrra. Hægt er að velja á milli 155
mismunandi góðgerðafélaga.
Í metþátttöku stefnir í maraþonhlaupinu. Mynd marathon.is
Ólafur Darri í Hollywoodmynd
Leik ar inn Ólaf ur Darri Ólafs son hefur landað hlutverki í hasarmynd
í Hollywood. Myndin kallast The Last Witch Hun ter og leikur Ólafur
Darri á móti ekki ómerkari mönnum en Vin Diesel, Michael Caine
og Elijah Wood. Tökur á myndinni hefjast í september. Hinn 19.
september verður einmitt frumsýnd vestanhafs kvikmyndin A
Walk Among the Tombstones þar sem Ólafur Darri leikur á
móti Liam Neeson.
Stigahæsti íslenski
meistarinn nær aðeins
514. sæti
Íslendingar hafa löngum státað af glæstum
árangri skákmeistara sinna – en nú um
stundir er fjarri lagi að
stigahæstu íslensku
stórmeistararnir
komist á lista með
þeim bestu. Raunar
eru 513 skákmeistarar
ofar á lista stigahæstu
skákmanna heims, að
því er fram kemur á
nýrri heimasíðu skákfélagsins Hróksins,
hrokurinn.is. Ritstjóri síðunnar er Hrafn
Jökulsson. Norski heimsmeistarinn Magnus
Carlsen trónir á toppnum með 2877 skák-
stig en í 100. sæti er búlgarski stórmeistar-
inn Aleksander Delchev með 2655 stig. Til
samanburðar er Hannes Hlífar Stefánsson,
sem teflir á 1. borði fyrir Ísland á Ólympíus-
kákmótinu, með 2536 stig, sem skilar
honum sæti 514 á heimslistanum. -jh
Sjálfstæðisflokkurinn
bætir við sig
Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli
mánaða, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi
Gallup. Helstar eru þær að fylgi Sjálfstæð-
isflokksins eykst um rúm tvö prósentustig
en tæplega 28% segjast myndu kjósa
flokkinn færu kosningar til Alþingis fram
í dag. Fylgi annarra flokka breytist á
bilinu 0,0-0,5 prósentustig. Rúmlega
18% segjast myndu kjósa Samfylkinguna,
liðlega 15% Bjarta framtíð, rúmlega 13%
Framsóknarflokkinn, nær 13% VG, tæplega
8% Pírata og tæplega 6% myndu kjósa
aðra flokka. Liðlega 9% segjast myndu
skila auðu eða ekki kjósa og 13% taka ekki
afstöðu eða neita að gefa hana upp.
Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um tvö
prósentustig milli mánaða, en nær 42%
þeirra sem tóku afstöðu styðja hana. - jh
Á 220 á Jökuldal
Bifhjólamaður mældist á 220 kíló metra
hraða á klukku stund á Jökuldal í gær en
há marks hraði þar er 90 kíló metr ar á
klukku stund. Maður inn féll af hjóli sínu og
var fluttur á Heil brigðis stofn un Aust ur-
lands á Eg ils stöðum. Hann reyndist lítið
sem ekkert slasaður. Maðurinn var sviptur
ökuréttindum til bráðabirgða.
Götumarkaður
í Fógetagarðinum
KRÁS Götumatarhátíð verður í Fógeta-
garðinum á laugardaginn. Hátíðin hófst
26. júlí og verður á hverjum laugardegi
fram að menningarnótt. Þar leiða saman
hesta sína margir af þekktustu kokkum
af fínustu veitingahúsum og aðrir sem
þekktir eru fyrir einfaldan götumat og búa
til sína útgáfu. Í Fógetagarðinum er til-
valið að setjast niður
með rósavíns- eða
freyðivínsflösku,
ganga svo á
milli bása
og kokka og
smakka það
sem upp á er boðið
njóta og deila hver
með öðrum.
Hátíðin hefst klukk-
an 13 og stendur til
klukkan 18.
2 fréttir Helgin 8.-10. ágúst 2014