Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.08.2014, Side 6

Fréttatíminn - 08.08.2014, Side 6
Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is – Reykjavík – Akureyri – E i t t s í m a n ú m E r 5 5 8 1 1 0 0 – Komdu núna – TAXFREE DAGAR 20,32% afsláttur af öllum vörum – EKKI mISSa aF ÞESSu – að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðisaukaskatt af söluverði. 20,32% afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar. arOs stóll, margir litir ivv spEEdy skálar, 6 í setti taxfrEE vErð! 12.741 Krónur lOKa HElGin Opið alla HElGina BriGHtOn – 3jA sætA sófi – Eik & LEðuR taxfrEE vErð!254.972Krónur taxfrEE vErð! 10.350 Krónur Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins.  Viðskipti Þriðjungi fleiri bílar hafa selst á fyrstu sjö mánuðum ársins Rúmlega 4000 bílaleigubílar skráðir Bílasala á Íslandi hefur aukist um rúmlega 30% á fyrstu sjö mánuð- um ársins. Alls hafa verið skráðir 7.120 fólksbílar sem eru 1.646 fleiri fólksbílar en skráðir voru á sama tímabili í fyrra. Á öllu árinu 2013 voru skráðir allt árið rétt tæplega 7.300 bifreiðar, að því er fram kemur í tilkynningu Bílgreinasam- bandsins. „Bílasala hefur tekið hressilega við sér, og á það jafnt við um fólks- bíla, atvinnubíla og vörubíla. Bíla- leigur eiga þó mestan þátt í þessari aukningu í fólksbílasölunni, en rétt rúmlega 4.000 bílaleigubílar hafa verið skráðir á árinu. Sala til ein- staklinga og fyrirtækja er þó meiri en hún var í fyrra og um 3.000 bílar hafa verið seldir til þeirra en það er um 15% aukning frá fyrra ári,“ segir Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins. „Stöðugra gengi krónu og óhag- stæð aldursamsetning flotans eru þeir þættir sem helst knýja þetta áfram að mínu mati. Það er mikill ávinningur í því að reka nýjan bíl samanborið við 10-15 ára bíla, en meðalaldur bíla á Íslandi er 12 ár. Eyðslan hefur lækkað mjög hratt,“ segir Jón Trausti. Hann segir enn fremur mikil- vægt að stuðningur við rafbílavæð- ingu haldi áfram á meðan tæknin er í þróun og uppbygging innviða rafbílavæðingar eigi sér stað. „Það er mjög kostnaðarsamt,“ segir Jón Trausti, „að kynna rafbíla til leiks bæði í tækni, búnaði og innri strúktur. Þess vegna viljum við að áframhaldandi stuðningur við rafbílavæðinguna eigi sér stað, svo sem með niðurfellingu vörugjalda, virðisaukaskatts og fleiri þátta.“ Þ essar aðgerðir hafa ekki bein áhrif á útflutning okkar til Rússlands,“ segir Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, um innflutningsbann Rússa á matvælum frá Vesturlöndum. Bannið kemur til vegna efnahags- legra refsiaðgerða Vesturlanda gegn Rússum og tekur til matvæla frá Banda- ríkjunum, ríkjum Evrópusambands- ins og nokkrum til viðbótar, svo sem Noregi, Kanada og Ástralíu. Fiskafurð- ir eru þar á meðal en að óbreyttu munu Íslendingar áfram flytja fisk til Rússlands, sem er einn stærsti útflutn- ingsmarkaðurinn. Kolbeinn segir að um 10-12% af þeim tekjum sem Íslendingar fá af útflutningi sjávarafurða koma til vegna útflutn- ings til Rússlands og Úkraínu, eða um 30 milljarðar árlega. „Þetta eru stórar og miklar tölur,“ segir hann. Rússland er til að mynda mikilvægur mark- aður fyrir makríl og aðrar uppsjávar- tegundir en útflutningstekjur af þeim tegundum voru rúmir 15 milljarðar á síðasta ári. Þó það sé jákvætt í sjálfu sér fyrir Íslendinga að halda mark- aðnum hafa viðskiptaþvinganir hvaða nafni sem þær kunna að nefnast alltaf hnattræn áhrif. „Þetta er einn heimur útflutnings og innflutnings. Það sem ekki fer til Rússlands fer þá á aðra markaði sem við erum einnig að keppa á, og hafa þannig áhrif á eftirspurn og verð,“ segir hann. Spurður hvort aðrir markaðir en Rússlandsmarkaður verði þá það mettir að ekki verði eftirspurn eftir fiski frá Íslandi segir Kolbeinn: „Menn verða að leyfa sér að velta fyrir sér hvort það sé líklegt. Hins vegar er mjög erfitt að spá fyrir um afleiðing- arnar,“ segir Kolbeinn. Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, tilkynnti um aðgerðirnar í sjónvarpsávarpi í gær. Í yfirlýsingu sem framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins sendi frá sér í kjölfarið segir að sambandið áskilji sér rétt til að grípa til ráðstafana vegna innflutnings- banns Rússa. Bannið hefur gríðarleg áhrif í öðrum löndum, til að mynda í Noregi en mest af sjávarafurðum þaðan eru seldar til Rússlands. En bannið tekur ekki aðeins til fisks heldur einnig mjólkfurafurða, ávaxta og grænmetis. Áhrifin eru ekki síður á íbúa Rússlands sem munu hafa minna aðgengi að þessum matvörum „Ísland er ekki á lista Rússlands yfir þau lönd sem hafa fengið á sig inn- flutningsbann. Það sem við höfum lagt áherslu á er að menn eigi samtal við rússnesk stjórnvöld um ástandið. Það er brýnt að farið sé eftir alþjóðalögum og við leggjum eftir sem áður áherslu á að menn finni lausn á ástandinu í Úkraínu og virði réttindi þeirra,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  sjáVarútVegur Viðskiptabann rússa gildir í eitt ár Innflutningsbann Rússa tekur ekki til Íslands Innflutningsbann Rússa vegna matvæla frá Vesturlöndum tekur ekki til Íslands. Rússlandsmark- aður er einn sá stærsti þegar kemur að útflutningi fisks frá Íslandi. Bannið hefur því ekki bein áhrif á þann útflutning en erfitt er að spá fyrir um afleiðingarnar bannsins í hnattrænu samhengi. Útflutningstekjur Íslendinga vegna fiskafurða til Rússlands námu um 30 milljörðum í fyrra. Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir innflutnings- bann Rússa ekki hafa bein áhrif á útflutning Íslendinga til Rússlands en áhrifin geta orðið af öðrum toga. Útflutningstekjur frá Rússlandi vegna makríls og annars uppsjávarfisks námu um 15 milljörðum á síðasta ári. 6 fréttir Helgin 8.-10. ágúst 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.