Fréttatíminn - 08.08.2014, Page 38
Helgin 8.-10. ágúst 201438 tíska
NýsköpuN suNdfatalíNa kasy kom á markað á síðasta ári
Fleiri litir fyrir
þrýstnar konur
Frumkvöðlafyrirtækið Kasy hóf í fyrra fram-
leiðslu á sundfatnaði fyrir þrýstnar konur.
Hingað til hafa sundfötin aðeins fengist í svörtu
en fjármögnun á sundfatalínunni í litum er þegar
hafin. Stofnandi Kasy segir íslenska fjárfesta
ekki hafa verið áhugasama og því býður hún
viðskiptavinum að panta vorlínuna 2015 til að
tryggja áframhaldandi framleiðslu.
Íslenskir
fjárfestar
hafa meiri
áhuga á
tæknigeir-
anum en
kvenfatnaði.
s taðan hjá okkur er núna sú að konur vilja fleiri liti af sund-fötunum en hingað til höfum
við bara boðið upp á svartan lit,“
segir Katrín Sylvía Símonardóttir,
stofnandi frumkvöðlafyrirtækisins
Kasy sem framleiðir sundfatnað
fyrir þrýstnar konur. „Íslenskir
fjárfestar hafa þó meiri áhuga á
tæknigeiranum en kvenfatnaði
og því ákváðum við að fjármagna
framleiðsluna í gegnum síðuna
IndieGoGo.com þar sem konur geta
pantað fyrirfram vorlínuna 2015 en
þá bætist við túrkísblár og fjólublár
sundfatnaður,“ segir hún.
Um þrjú ár eru síðan Katrín
ákvað að stökkva í djúpu laugina
með hugmyndina sína að „þægi-
legum sundfatnaði fyrir konur með
línur sem vilja upplifa sig kyn-
þokkafullar,“ eins og hún orðar það.
Katrín varð atvinnulaus í kjölfar
bankahrunsins og greip til sinna
ráða. Hún hefur síðan tekið þátt í
Viðskiptasmiðju Klaks, verkefnið
komst á topp 10 í frumkvöðlakeppni
Innovit, Gullegginu, og var í hópi
þeirra sem fékk styrk frá velferðar-
ráðuneytinu til
atvinnumála
kvenna bæði
í fyrra og
aftur í ár.
Fyrsta
sending
kom í
hús í
maí
2013
og
hef-
ur Katrín síðan kynnt framleiðsluna
á sölusýningu erlendis. „Erlendis
hefur einnig verið kallað eftir fleiri
litum og stílum, þannig að það er
sannarlega kominn tími á að taka
það skref í framleiðslunni,“ segir
hún.
Sundfatalína Kasy samanstendur
af fimm flíkum sem hægt er að
setja saman eftir því hvaða aðstæð-
um konan er í. Fötin eru til sölu í
Belladonnu í Skeifunni og Rósinni
á Akureyri, auk þess sem hægt er
að panta í gegn um vef Kasy. Katrín
segir fjölda kvenna hafa lýst yfir
þakklæti sínu vegna sundfatanna
en ekki síður hafi eiginmenn verið
ánægðir. „Ég hef heyrt frá karl-
mönnum sem segja að konunni
sinni hafi ekki liðið vel í sundfötum
þar til hún kynntist Kasy og þá loks
hafi hún verið til í að fara í sólar-
landaferð með fjölskyldunni. Það
gefur mér mikið að heyra svona
sögur,“ segir hún.
Í gegnum allt hönnunarferlið hef-
ur Katrín gert kannanir á þörfum
kvenna og það sama var uppi á ten-
ingnum þegar hún ákvað að bæta
við túrkís og fjólubláum lit. „Þetta
voru þeir litir sem flestar óskuðu
eftir,“ segir hún. Fjármögnunin á
IndieGoGo stendur yfir til 18. sept-
ember og fer það eftir árangrinum
þar hversu mikið verður framleitt af
Kasy í lit.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Til stendur að bæta við bláum og fjólubláum við sundlínu Kasy. Sundfatalínan samanstendur af fimm
flíkum sem hægt er að blanda saman á ólíka vegu; brjóstahaldara, sundbuxum, kjól, toppi og pilsi.
Katrín Sylvía Símonardóttir er konan á
bak við Kasy-sundfatalínuna. Ljósmynd/Hari
Lín Design Laugavegi 176 & Glerártorgi Akureyri Sími 533 2220
25-60%
afsláttur
ÚTSALAN
ER HAFIN
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?