Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.10.2014, Síða 20

Fréttatíminn - 24.10.2014, Síða 20
misjafnar. Þegar við gerðum Hafið gekk mikið á. Það brann frystihús sem við vorum að vinna í og margir erfiðir hlutir áttu sér stað. Eftir svo­ leiðis mynd þá líður manni eins og maður hafi elst um 15 ár á stuttum tíma, en svo líður það hjá.“ Hugsarðu þá um hvort þetta sé þess virði? „Nei manni þykir eiginlega bara meira vænt um myndirnar frekar. En stundum í miðjum tökum, um miðja nótt og ekkert gengur upp, ein í yfirgefinni flugstöð við tölvuna, að vinna þá læðist að manni hugsunin: „Hvað er maður að gera hérna?““ Þú ert væntanlega komin með gott úthald? „Maður er að gera það sem manni finnst skemmtilegt,“ segir Agnes. „þá getur maður búið sér til auka úthald.“ Getum gert gott sjónvarpsefni RVK Studios er fyrirtæki sem aðal­ lega heldur utan um framleiðslu á verkefnum Baltasar Kormáks. Sem eru orðin mjög umsvifamikil á síðustu árum og það sem er hvað fyrirferðarmest um þessar mundir er sjónvarpsserían Ófærð sem er í undirbúningi. Þó eru mörg önnur verkefni sem eru á borðum þeirra sem þar vinna. „RVK Studios er nafn sem fólk á eftir að venjast og kynnast,“ segir Agnes. „Það sem gerðist árið 2012 var það að Baltasar var búinn að vera mikið erlendis og er enn. Hann langaði að útvíkka aðeins framleiðsl­ una hér heima og gera meira sjón­ varp,“ segir Agnes. „Einnig eru mik­ il tækifæri í því að fá erlend verkefni hingað heim í gegnum hann og þá er nauðsynlegt að hafa gott fyriræki sem getur annað slíkum verkefn­ um,“ segir Agnes. Hjá RVK Studios vinna reynsluboltar í sjónvarps­ framleiðslu eins og þeir Magnús Viðar, sem lengi var hjá Sagafilm, og Sigurjón Kjartansson, sem hefur umsjón með hand ritaþróun. „Svo erum við með eftirvinnslufyrirtækið RVX sem vinna mikið fyrir erlenda aðila og í okkar framleiðslu,“ segir Agnes. „Markmið Baltasars er að geta unnið meira heima.“ Er ekki líka kominn tími á gott og betra sjónvarpsefni frá Íslandi? „Það er búin að vera jákvæð þróun og það er gaman að fylgjast með hinum Norðurlandaþjóðunum. Danir hafa verið frumkvöðlarnir í þessu og þeir tóku upp ótrúlega flotta stefnu fyrir 30 árum síðan. Þeir byggðu þennan iðnað upp frá grunni og það er eitthvað sem við ættum að horfa til,“ segir Agnes. „Norðmenn eru líka að koma sterk­ ir inn og Svíar hafa sína reynslu.“ Sérðu fyrir þér að þetta geti gerst hér? „Já við erum undir áhrifum af þessu og ég tel okkur geta gert þetta,“ segir Agnes. Auglýsi eftir skýrari stefnu Þessa dagana er Agnes að vinna að nýjustu kvikmynd Dags Kára, sem nefnist Fúsi, og er áætlað að frum­ sýna hana í febrúar á næsta ári. „Það er alveg ótrúlega skemmti­ legt verkefni og við erum að leggja lokahönd á eftirvinnsluna. Svo erum við að vonast eftir því að komast í tökur á nýrri mynd eftir Börk Sigþórsson, sem er hans fyrsta mynd í fullri lengd. Svo það er margt í gangi. Kvikmyndagerð er frumkvöðla­ umhverfi. Það eru allir samstíga í því að láta hlutina gerast. Það er frábært að sjá alla þróun sem hefur átt sér stað á öllum sviðum geirans. Það hefur hjálpað okkur mikið að læra af þeim fjölda erlendra verkefna sem hafa verið unnin hér. Útlendingum finnst stórkostlegt að vinna í þessu frjálslega umhverfi sem við höfum náð að skapa hér,“ segir Agnes. Það hlýtur samt að vera erfitt þegar yfirvöld þrengja að fjárhags­ legu umhverfi kvikmyndagerðar eins og hefur verið gert? „Við erum ekkert öll sammála um þetta. Það eru ákveðnar fjár­ hæðir í boði og mér finnst við þurfa að passa frekar upp á að nýta þá fjármuni ótrúlega vel. Það er ekki bara hægt að stækka bransann og allir ætlist til sömu hluta,“ segir Agnes. „Ég auglýsi frekar eftir skýrari stefnu í þessum málum og skynsamlegri nýtingu fjármuna. Ég held að stjórnvöldum sé alveg ljóst að þessi iðnaður skilur eftir peninga í kassanum. Það þarf að búa til ramma. Það reynir á okkur öll, hvort sem við erum að vinna við þetta daglega eða þá sem stýra kvikmyndasjóði. Það geta allir í samfélaginu notað meiri peninga. Mikilvægast er að standa við gerða samninga,“ segir Agnes Johansen. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Kvikmyndagerð er frumkvöðlaumhverfi, segir Agnes Johansen. Helgin 24.—26. október 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.