Fréttatíminn - 30.12.2014, Page 2
Betri líðan í hálsi, herðum og baki
undir leiðsögn sjúkraþjálfara
Skráning á www.bakleikfimi.is
og í síma 897 2896
Hádegis- og eftirmiðdagstímar
í Grensáslaug, Grensásvegi 62.
Með sambaívafi í Heilsuborg, Faxafeni 14
Hefst 3. september
Bakleikfimi
Hefst 7. janúar
LýðheiLsa Munur á köLduM svæðuM og jarðhitasvæðuM
Há tíðni krabbameins
á jarðhitasvæðum
t íðni krabbameina er meiri á hitaveitusvæðum landsins en köldum svæðum þess.
Þessar niðurstöður koma fram í
nýjum rannsóknum sem eru hluti af
doktorsverkefni Aðalbjargar Krist-
björnsdóttur í lýðheilsuvísindum við
Háskóla Íslands. Rannsóknirnar eru
framhald af meistaraverkefni Aðal-
bjargar frá árinu 2012 en þá voru
íbúar háhitasvæða bornir saman við
íbúa kaldra svæða og volgra svæða,
eða þar sem hitaveita er til staðar.
59% áhætta á brjóstakrabba
„Í fyrstu rannsókninni frá árinu
2012 var ég að skoða tíðni krabba-
meina á háhitasvæðum og voru íbú-
ar Mývatnssveitar og Hveragerðis
útsettur hópur. Sú rannsókn sýndi
að það er 22% aukin áhætta á að fá
öll krabbamein, 59 prósent að fá
brjóstakrabbamein, tæplega þreföld
áhætta að fá briskirtilskrabbamein
og 59 prósent að fá eitilkrabbamein
hjá íbúum þessara svæða í saman-
burði við köld svæði. Eftir þessar
niðurstöður ákváðum við að halda
áfram með rannsóknina og teygja
okkur meira inn á svokölluð volg
svæði,“ segir Aðalbjörg.
15% aukin hætta á krabba-
meini á hitaveitusvæðum
„Í rannsókn tvö veljum við útsettu
svæðin út úr volgum svæðum og
þurfa þau að uppfylla það að vera á
yngsta berggrunninum og hafa haft
hitaveitur síðan fyrir 1972. Útsettu
svæði sem voru í fyrstu rannsókn-
inni eru ekki tekin með en köldu
svæðin eru þau sömu,“ segir Aðal-
björg. „Í þessari rannsókn kom í ljós
að krabbameinstíðni er einnig há,
15% aukin áhætta á að fá öll krabba-
mein, 40% fyrir brjóstakrabbamein,
61% fyrir blöðruhálskirtilskrabba-
mein, 64% fyrir nýrnakrabbamein
og 46 prósent fyrir eitilkrabbamein
á þessum volgu svæðum í saman-
burði við köld svæði. Þarna var úr-
tektarhópurinn okkar orðinn stærri
og styrkur rannsóknarinnar því
meiri og því hægt að fullyrða með
enn meiri vissu að þessi áhætta er
til staðar,“ segir Aðalbjörg.
Hærri dánartíðni á háhita-
svæðum og hitaveitusvæðum
„Í nýjustu rannsókninni skoðum við
dánarmein frá 1981 – 2009. Þá not-
um við útsettu svæðin úr fyrri rann-
sóknum saman, þ.e. háhitasvæðin
og hitaveitusvæðin og berum þau
saman við köld svæði,“ segir Aðal-
björg.
Helstu niðurstöður þessarar
nýjustu rannsóknar sýna að öflug
krabbamein eru algengari á þess-
um svæðum í samanburði við köld
svæði.
„Það eru 53% meiri líkur að deyja
vegna brjóstakrabbameins, 74%
vegna blöðruhálskirtilskrabba-
meins, 78% vegna nýrnakrabba-
meins og rúmlega tvöföld áhætta
að deyja vegna non-Hodgkin´s lymp-
homa (eitilæxli) í samanburði við
köld svæði. Þessar tölur staðfesta
fyrri nýgengisrannsóknir okkar,
en það sem kom okkur sérstaklega
á óvart var að líkur á deyja vegna
inflúensu rúmlega þrefaldast hjá
íbúum á þessara svæða og líkur á
sjálfsvígum allt að tvöfaldast. Þetta
er eitthvað sem við vorum ekki að
skoða sérstaklega og er efni í aðra
rannsókn.“
Ekki vitað hvað veldur
Aðalbjörg segir niðurstöðurnar
ekki gefa neina ástæðu til ótta og
að þær séu einungis vísbendingar.
Hún segir ekki hægt að vita hvað
það sé sem veldur þessari auknu
tíðni krabbameina á þessum svæð-
um en það sé viðfangsefni komandi
rannsókna.
Grein Aðalbjargar „Cancer
mortality and other causes of death
in users of geothermal hot water“
hefur nú verið birt í ritinu Acta On-
cologica og er hægt að lesa hana á
netinu. Aðalbjörg mun sjálf kynna
niðurstöður sínar á 17. ráðstefnu
heilbrigðisvísindasviðs í líf- og heil-
brigðisvísindum sem fer fram á Há-
skólatorgi 5.-6. janúar 2015.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Fólk sem býr á jarðhitasvæðum og svæðum þar sem notast hefur verið við hitaveitu síðan fyrir
1972 er líklegra en aðrir til að fá ákveðnar tegundir krabbameina og deyja vegna þeirra.
Það eru 53% meiri líkur að deyja vegna brjóstakrabbameins, 74% vegna blöðruháls-
kirtilskrabbameins, 78% vegna nýrnakrabbameins og rúmlega tvöföld áhætta að
deyja vegna non-Hodgkiń s lymphoma (eitilæxli) á heitum svæðum í samanburði við
köld svæði.
Í rannsókninni var landinu skipt niður eftir aldri hitaveitna og eftir aldri berggrunns-
ins á háhitasvæði, volg svæði og köld svæði með því markmiði að athuga hvort
notkun á vatni á jarðhitasvæðum yki líkur á krabbameini. Rannsóknin tók til hátt í 75
þúsund einstaklinga á aldrinum 5-64 ára úr manntali sem tekið var 1981. Þeim var
svo fylgt eftir í Krabbameinsskrá og Þjóðskrá til ársins 2010.
Aðalbjörg Kristbjörnsdóttir, doktors-
nemi í lýðheilsuvísindum við Háskóla
Íslands.
„Það er ekki mikið að frétta,“ segir
Þorbjörn Jónsson, formaður Lækna-
félags Íslands, aðspurður um stöðu
mála í læknaverkfallinu. „Ég skil ekki
alveg þennan þrýsting á að semja
þessa tvo daga fyrir áramót. Það er
mér miklu mikilvægara að ná þannig
samningi að mínir félagsmenn muni
síðan samþykkja hann, heldur en að
flýta ferlinu svona núna.“
„Þetta er búið að taka svo langan
tíma að það er miklu mikilvægara
að vanda verkið og þetta er auð-
vitað flókið verk. En ég skil ekki
þessa pressu akkúrat núna. Það er
miklu betra að fá ásættanlega lausn
heldur en lélega lausn sem félags-
menn munu svo hafna. Við
höfum nokkra daga til að
semja núna áður en næstu
aðgerðir hefjast,“ segi Þor-
björn en bendir jafnframt á
að mestu máli skipta að leysa
vandamálið til frambúðar.
„Samningurinn verður að
vera þannig að við teljum að
læknar sem eru búsettir er-
lendis og nýkomnir úr námi,
vilji koma heim og vinna hér. Það
er stóra vandamálið sem verður allt-
af verra og verra eftir því sem árin
líða. Þetta er auðvitað margþætt
mál en stærsti hluti þess
er hvernig hægt er að laga
þennan landflótta. Og til
þess þarf góða samninga.“
Samningaviðræður
stóðu yfir þegar Frétta-
tíminn náði tali af Þor-
birni. Takist ekki að semja
fyrir 5. janúar munu verk-
fallsaðgerðir hefjast aftur
og þá verða skurðaðgerðir
einungis framkvæmdar á föstu-
dögum. -hh
LæknaverkfaLL Þrýst á Lausn
Verðum að leysa vandann til frambúðar
Þorbjörn
Jónsson
Tíðablæðingar og
náttúruhamfarir
Ýmislegt fróðlegt verður á 17. ráðstefnunni
í líf- og heilbrigðisvísindum sem verður hal-
din á Háskólatorgi dagana 5. og 6. janúar
2015. Á dagskrá eru 160 erindi í 40 mál-
stofum og 130 veggspjaldakynningar sem
ná yfir öll fræðasvið líf- og heilbrigðisvísin-
da. Til marks um fjölbreytnina þá spanna
umfjöllunarefnin allt frá rannsóknum á
dýrum og frumum til lífsgæða og velferðar
á ólíkum æviskeiðum. Sérstök áhersla er
lögð á að málstofur séu eins þverfræði-
legar og unnt er til þess að tengja saman
vísindafólk úr mismunandi áttum.
Þá verður efnt til opins fræðslufundar
fyrir almenning þar sem heilsa tengd nát-
túruhamförum á Íslandi og tíðablæðingar
verða í brennidepli.
Róbert og Hjálmar
viðskiptamenn ársins
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á
Siglufirði, er maður ársins í atvinnulífinu
á Íslandi árið 2014, að mati Frjálsrar
verslunar. Hann hefur fjárfest fyrir á
fjórða milljarð á Siglufirði, annars vegar
í líftækni en hins vegar í ferðaþjónustu.
Róbert bygg ir nýja líf tækni verk smiðju á
Siglufirði, auk þess sem hann hef ur keypt
gömlu SR-mjöls verk smiðjurn ar þar í bæ
und ir þá starf semi. Hann opn ar nýtt hót el
á kom andi sumri við smá báta höfn ina og
rek ur þegar tvo veit ingastaði við hafn ar-
bakk ann í göml um hús um. Þá varð Hjálmar
Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri
Datamarket, sem nýverið var selt Qlik í
Bandaríkjunum, fyrir valinu sem viðskipta-
maður ársins hjá Markaðnum, viðskipta-
blaði Fréttablaðsins og.
Fréttatíminn kemur ekki út næstkomandi
föstudag, 2. janúar. Fyrsta blað nýs árs
kemur út föstudaginn 9. janúar.
Gleðilegt ár.
Keppast við sorphirðu
Sorphirða Reykjavíkurborgar hefur keppst
við að hreinsa sorp í þeim hverfum sem
ekki náðist að klára fyrir jól. Starfsfólk
sorphirðunnar vinnur við erfiðar aðstæður
því færð er víða þung vegna hálku og
klakaruðninga. Fólk er beðið um að sjá til
þess að aðgengi að sorpílátum sé sem allra
best þannig að sorphirða gangi eins vel
og mögulegt er. Gert var ráð fyrir að sorp-
hreinsun í Árbæjarhverfi, Úlfarsárdal og
Kjalarnesi kláraðist í gær eða fyrir hádegi
í dag. Í dag, þriðjudag, og á gamlársdag
verður hreinsað frá heimilum í Grafarvogi.
Þó er ekki öruggt að hreinsun í Grafarvogi
náist fullkomlega fyrir áramótin.
Ef sorphirða gengur greiðlega fyrir sig
verður reynt að fara í Vesturbæinn og
miðborgina fyrir áramót en samkvæmt
upplýsingum frá sorphirðunni verður það
bónus ef sorphreinsunarfólk nær þangað
þar sem enn er verið að vinna upp tapaðan
tíma frá því fyrir jól.
2 fréttir Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015