Fréttatíminn - 30.12.2014, Blaðsíða 6
É g hef verið að teikna og hanna fyrir Google síðan árið 2006. Allt frá brosköllum sem hreyfast
yfir í kort og táknmyndir,“ segir Kári
Gunnarsson, hreyfimyndasmiður og
listrænn stjórnandi hjá Google. Kári
hefur unnið sem sjálfstætt starfandi
teiknari frá því hann útskrifaðist úr
námi í hreyfimyndagerð í Danmörku
fyrir rúmlega tíu árum. Auk Google
eru 20th Century Fox, Nasa, Warner
Bros og Disney meðal viðskiptavina
hans.
Yfir hundrað tákn og fleiri á
leiðinni
„Stærsta verkefnið mitt hjá Google
til þessa er fyrir Google Hangouts,“
segir Kári, en það er samskiptaforrit
sem hægt er að nota fyrir snjallsíma
og spjaldtölvur. „Þar er ég er aðal-
lega að hanna myndir sem hreyfast,
eða svokallað „animated emoticons“,“
segir Kári og nefnir dæmi. „Þegar fólk
skrifar LOL þá birtist persóna upp úr
glugganum og fer að hlæja. Eða þá að
þú skrifar Happy Birthday og þá birtist
kaka á skjánum. Þú kemst svo smám
saman að því hvaða orð þú getur notað
til að láta þetta birtast. Þar að auki
hef ég gert svokallaða Stickers, eða
límmiða, fyrir Hangout. Þeim er hægt
er að hlaða niður í Appstore í iTunes.
Þetta er svipað og Facebook er að gera
með messenger, þá getur þú sent mynd
með skilaboðunum sem eiga að lýsa
ákveðinni hugmynd eða tilfinningu,“
segir Kári en þessar nýjustu myndir
hans komu á netið núna í desember.
„Verkefnið fyrir Hangout varð það stórt
að ég þurfti líka að ráða fjóra teiknara
til mín til viðbótar og nú erum við búin
með yfir hundrað tákn og það eru fleiri
á leiðinni, segir Kári en það eru Hall-
dór Baldursson, Lilja Hlín Pétursdóttir,
Sigmundur Þorgeirsson og Peter Obel
sem hafa unnið að verkefninu með
honum.
Býr til hluti sem milljónir manna
nota
Googel Hangout forritið keppir við
Facebook og Skype og hefur fengið
gríðarlega góðar viðtökur. „Það eru
svo margir sem nota þetta til að hittast
á vídeó-ráðstefnum,“ segir Kári en eitt
verkefna hans var að teikna hárkollu á
Conan O’Brian. „Hluti af því sem hægt
er að gera þegar fólk hittist á Hangout
er að setja filtera á myndina og bæta
á sig teiknuðum aukahlutum eins og
gleraugum, fötum eða öðruvísi hári,
sem fylgja þér í vídeóinu. Í tengslum
við þetta var ég beðinn um að teikna
hárkollu sérstaklega á Conan O’Brian
fyrir vídeó-ráðstefnu sem haldin var
í beinni útsendingu. Það var frekar
fyndið verkefni,“ segir Kári sem er
mjög sáttur við að vinna hjá Google.
„Þeir hjá Google eru góðir vinnuveit-
endur og ég er sérstaklega ánægður
með hversu frjálsar hendur ég fæ við
vinnuna. Það er í raun ótrúlega til-
finning að sitja heima og teikna og
hanna og vita að næsta dag munu millj-
ónir manna að nota þessar myndir á
netinu.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
DORMA Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
DORMA
Stærð: 120x200 cm / 140x200
160x200 cm / 180x200 cm.
Dýna, botn og lappir.
NATURES COMFORT – heilsurúm
Comfort
160x200 cm
ÚTSÖLUVERÐ
97.435
VERÐ ÁÐUR
149.900
Comfort
120x200 cm
ÚTSÖLUVERÐ
77.935
VERÐ ÁÐUR
119.900
Comfort
140x200 cm
ÚTSÖLUVERÐ
90.285
VERÐ ÁÐUR
138.900
IBIZA sófi
Stærð: 286x198 cm. H: 86 cm.
Slitsterkt dökkgrátt áklæði.
Tunga getur verið beggja vegna.
IBIZA
U-SÓFI
ÚTSÖLUVERÐ
178.320
VERÐ ÁÐUR
229.900
AFTON hægindastóll
með skemli, svartur
EASY
hægindastóll
með skemli
EASY
hægindastóll
ÚTSÖLUVERÐ
54.900
VERÐ ÁÐUR
89.900
AFTON
hægindastóll
ÚTSÖLUVERÐ
49.950
VERÐ ÁÐUR
99.900
60%, 600 gr.
Stærð: 135x200 cm.
QUILTS OF DENMARK dúnsæng
QOD
dúnsæng
ÚTSÖLUVERÐ
14.900
VERÐ ÁÐUR
19.900
AFSLÁTTUR
20-50%
AF ÖLLUM VÖRUM
- lægra verð
20%
AFSLÁTT
UR
Lyfjaauglýsing
Allar stærðir og styrkleikar
Gildir til 31. Janúar
Stjórnmál Sigrún magnúSdóttir orðuð við ráðherraembætti
Óvissa um nýjan ráðherra
„Ég er alveg róleg og við sjáum bara
hvað verður,“ segir Sigrún Magnús-
dóttir, þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins, sem í fjölmiðlum
undanfarna daga hefur verið orðuð
við ráðherraembætti flokksins til að
taka við umhverfis- og auðlindar-
áðuneyti. Sigrún neitar að tjá sig um
hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, hafi rætt við hana um málið.
Morgunblaðið fjallaði fyrst fjöl-
miðla um málið og nefndi þar Sig-
rúnu sérstaklega. Jóhannes Þór
Skúlason, aðstoðarmaður Sigmund-
ar Davíðs, segir ekkert ákveðið í
þessum efnum. „Ef eitthvað svona
lagað gerist verður það ekki gefið
út fyrr en fundurinn er haldinn,“
segir Jóhannes en breytingar á
ríkisstjórn eru gerðar á ríkisráðs-
fundum ríkisstjórnarinnar með for-
seta Íslands en venju samkvæmt
er ríkisráðsfundur á gamlársdag.
Sigrún bendir hins vegar á að í um-
ræðunni nú hafi aldrei verið talað
sérstaklega um ríkisráðsfundinn á
gamlársdag. „Það var boðað til sér-
staks ríkisráðsfundar nú fyrr í des-
ember þegar Ólöf Nordal tók við.
Það er því ekkert því til fyrirstöðu
að ef nýr ráðherra kemur inn að það
verði gert þegar þing kemur saman
að nýju þann 20. janúar. En þetta er
alfarið í höndum Sigmundar,“ segir
Sigrún.
Jóhannes vill ekkert gefa upp
hvort Sigrún sé líklegri kandídat en
aðrir og er afar leyndardómsfullur.
„Það eru ýmsir kallaðir þegar svona
embætti eru uppi, ef þau eru þá yfir-
leitt uppi,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
netið hreyfanlegir broSkallar, kort og táknmyndir
Íslendingur hannar fyrir Google
Það verður sífellt algengara að fólk noti myndir frekar en orð til að tjá sig í skilaboðum á netinu.
Allskyns tákn og hreyfimyndir eru í boði hjá samskiptaforritum auk þess sem notendum býðst að
kaupa og hlaða aukalega niður þess konar efni. Á bak við þessar myndir er fjöldi listamanna og
Kári Gunnarsson, hreyfimyndasmiður og listrænn stjórnandi hjá Google, er einn þeirra.
Kári hefur teiknað og hannað
fyrir Google frá árinu 2006, allt
frá brosköllum sem hreyfast yfir í
kort og táknmyndir.
Kári Gunnarsson, hreyfimyndasmiður og listrænn stjórnandi hjá Google.
6 fréttir Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015