Fréttatíminn - 30.12.2014, Qupperneq 12
Á
Árið 2014 er að renna sitt skeið. Það hefur í
heildina verið hagstætt okkur Íslendingum.
Sé litið sex ár aftur í tímann, þann tíma sem
liðinn er frá falli bankanna og efnahags-
hruninu sem fylgdi í kjölfarið, sést að staða
okkar nú er til muna betri á flestum svið-
um, þótt enn sé ýmislegt óunnið. Síðustu
aðgerðir stjórnvalda benda til þess að nú
hilli undir það við losnum úr viðjum haml-
andi hafta sem óhjákvæmileg
voru í kjölfar hrunsins. Fjár-
lög komandi árs gera ráð fyr-
ir 3,5 milljarða króna afgangi
af rekstri ríkisins. Gangi það
eftir verður það annað halla-
lausa árið í röð.
Gangur hefðbundinna
atvinnugreina hefur verið
ágætur. Fjárfesting í sjávarút-
vegi hefur aukist, meðal ann-
ars með endurnýjun skipa-
flotans. Ferðaþjónustan hefur
þó verið sú grein sem helst hefur dregið
vagninn í gjaldeyrisöflun. Vöxtur greinar-
innar hefur verið ævintýralegur undanfarin
ár og er árið sem er að líða engin undan-
tekning. Met hefur verið slegið á öllum
sviðum og þótt enn liggi ekki fyrir tölur
um fjölda erlendra ferðamanna sem hingað
komu var því spáð að ársfjöldinn færi jafn-
vel yfir milljón.
Að óbreyttu eru horfur góðar fyrir ferða-
þjónustuna á komandi ári. Mikil fjárfesting
er í greininni, ekki síst í byggingu hótela
og gististaða. Við þurfum vitaskuld að vera
viðbúin því að taka við þessum aukna fjölda
en ýmsir hafa þó haft uppi varnaðarorð
vegna hugsanlegrar offjárfestingar hvað
varðar aukið gistirými.
Hagvöxtur var ágætur á árinu sem er að
líða og er það fjórða árið í röð með bæri-
legan hagvöxt. Það þýðir að skatttekjur
ríkisins hafa aukist. Í samantekt fram-
kvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins kom
fram að skatttekjur ríkissjóðs hefðu aukist
um nær 130 milljarða króna ef borin væru
saman fjárlög ársins 2015 við ríkisreikning
ársins 2012. Þar sagði enn fremur að út-
gjöld ríkisins hefðu aukist á sama tíma um
nær 90 milljarða króna. Sú útgjaldaaukn-
ing bæri ekki vott um mikið aðhald í ríkis-
rekstrinum og var eftir því kallað og bent á
miklar skuldir ríkissjóðs og ófjármagnaðar
lífeyrisskuldbindingar hans.
Verðbólga ársins er lítil, raunar sú
minnsta í 60 ár. Hún hefur farið hjaðnandi
frá gerð kjarasamninga á almennum vinnu-
markaði. Verðbólgan mælist raunar undir
viðmiðunarmörkum Seðlabanka Íslands í
árslok, í fyrsta sinn frá því að markmiðið
var tekið upp árið 2001. Horfur eru á því
að verðbólga verði lítil næstu mánuði eða
misseri, að óbreyttu. Svo lág verðbólga
heldur ekki bara vöruverði í skefjum. Hún
er fagnaðarefni fyrir landsmenn sem flest-
ir eru með verðtryggð húsnæðislán. Verð-
tryggðar skuldir heimilanna hafa því hækk-
að minna á yfirstandandi ári en nokkru ári
frá því að verðtryggingin var tekin upp fyrir
35 árum. Samfara þessu hefur kaupmáttur
aukist og merki eru um aukna einkaneyslu.
Aðgæslu er hins vegar þörf á öllum svið-
um svo hagur þjóðarbús og almennings
haldi áfram að batna. Þegar horft er til nýs
árs er blika á lofti. Það ræðst að miklu leyti
af gerð kjarasamninga hvernig til tekst.
Leggi menn áherslu á að halda verðbólgu í
skefjum og auka kaupmátt hægt en örugg-
lega mun okkur vel farnast. Óleyst kjara-
deila lækna og ríkisins er sérstakt úrlausn-
arefni og veldur vissulega áhyggjum.
Ef við lítum okkur nær þá er fimmta
starfsár Fréttatímans hafið. Blaðið hefur
fest sig rækilega í sessi sem fjölbreytt og
efnismikið helgarblað, eftirsótt af lesend-
um og auglýsendum. Rekstur blaðsins gekk
vel í fyrra og skilaði hagnaði. Sömu sögu
er að segja af rekstri þess á því ári sem nú
er að kveðja. Kannanir sýna aukinn lestur
Fréttatímans, viðbót við mikinn lestur fyrir.
Það þakka aðstandendur og starfsmenn og
munu kappkosta að bjóða lesendum áfram
vandað og læsilegt blað – sem um leið upp-
fyllir þarfir þeirra sem þurfa að auglýsa og
kynna vöru og þjónustu.
Gleðilegt ár.
Hvað boðar nýárs blessuð sól?
Hagstætt ár að renna sitt skeið
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjÁLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
12 viðhorf Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015