Fréttatíminn - 30.12.2014, Síða 14
Elliðavatn
Hafravatn
Hvaleyrar-
vatn
Geldinganes
Viðey
Langavatn
Valhúsahæð
kl. 20.30
Ægisíða
kl. 20.30
Skerjafjörður gegnt
Skildinganesi 52
kl. 20.30
Vestan Laugarásvegar á
móts við Valbjarnarvöll
kl. 20.30
Suðurhlíðar neðan
við Fossvogskirkju-
garð kl. 20.30
Kópavogsdalur við
Dalsmára
kl. 20.30
Við Sjávargrund
kl. 21.00
Ásvellir
kl. 20.30
Rauðavatn
kl. 20.30
Suðurfell
kl. 20.30
Gufunes við gömlu
öskuhaugana
kl. 20.30
Við Leirvog
kl. 20.30
Kléberg á
Kjalarnesi kl. 20.30
Geirsnef
kl. 20.30
Undir Úlfarsfelli
ofan við Bauhaus
kl. 14.30
Sunnan við
Gulaþing
kl. 20.30
Við Gesthús
á Álftanesi
kl. 20.30
Áramótabrennur á
höfuðborgarsvæðinu
P evaryl sveppalyf fæst án lyf-seðils og er ætlað til sjálfsmeð-höndlunar á sveppasýkingum í
leggöngum fyrir konur sem áður hafa
verið greindar hjá lækni og þekkja ein-
kennin. Pevaryl inniheldur virka efnið
econazol sem hefur breiða sveppaeyð-
andi verkun. Econazol frásogast lítið
og er því fyrst og fremst um stað-
bundna verkun að ræða.
Að sögn Guðnýjar Traustadóttur,
markaðstengils hjá Vistor, er mikil
reynsla komin á lyfið en Pevaryl hefur
verið á markaði hér á landi í 35 ár og
verið notað af fjölda kvenna. Fjöldi
kvenna á barneignaraldri fær einhvern
tímann sveppasýkingu í leggöng og
um það bil helmingur þeirra fá hana
að minnsta kosti einu sinni aftur.
Sýkingin kemur frá smásæjum sveppi
”Candida Albicans“ sem almennt er
til staðar í líkamanum en ef jafnvægi
hans raskast getur það valdið sveppa-
sýkingu.
Sveppasýking þrífst best þar sem
er rakt, hlýtt og þétt, svo sem í leg-
göngum. Sveppasýking herjar oft á
konur á barneignaraldri þar sem þær
hafa meira af hormóninu östrógeni,
en það eykur glúkósamagn í leggöng-
unum sem sveppurinn nærist á. Auk
þess kemur sveppasýking oft fram í
tengslum við sýklalyfjameðferð. Að
sögn Guðnýjar getur það verið kostur
að nota staðbundið lyf eins og Pevaryl
við sveppasýkingum í leggöngum þar
sem frásog þess er lítið.
Unnið í samstarfi við
Vistor
Pevaryl – sveppalyf fyrir konur
Vistor kynnir: Pevaryl skeiðarstíla og Pevaryl krem til staðbundinnar
notkunar við sveppasýkingum í leggöngum.
Pevaryl er mjúkur egglaga stíll.
Pevaryl stíll og krem fæst án lyfseðils í apótekum.
Einkenni sveppasýkingar
Helstu einkenni sveppasýkingar
eru kláði í og utan við leggöng,
hvítleit og jafnvel kornkennd
útferð. Slímhúðin getur auk þess
verið sár, þurr og með sviða.
Pakkningar Pevaryl:
• 1 Depot forðastíll og krem (sam-
sett meðferð)
• 3 skeiðarstílar og krem (samsett
meðferð)
• 1 Pevaryl depot forðastíll (eins
dags meðferð)
Setjið skeiðarstílinn hátt í leggöng
að kvöldi fyrir svefn. Berið kremið
á og í kringum leggangaop og/
eða á skapabarmana 2-3 sinnum
á dag þar til óþægindin eru horfin
og í þrjá daga til viðbótar. Þegar
keyptur er pakki með 3 stílum er
mjög mikilvægt að klára með-
ferðina þ.e. 3 kvöld í röð.
Pevaryl má nota á öðrum og
síðasta þriðjungi meðgöngu en
ekki skal nota Pevaryl á fyrsta
þriðjungi meðgöngu nema sam-
kvæmt læknisráði.
Pevaryl fæst án lyfseðils í næsta
apóteki.
Pevaryl 150 mg skeiðarstíll, Pevaryl Depot 150 mg skeiðarstíll og Pevaryl 1% krem (í samsettum pakkningum) (innihalda econazolnítrat) eru breiðvirk sveppalyf við sveppasýkingum í leggöngum (leggangabólga og skapabólga af völdum gersveppa). Skammtar:
Einn skeiðarstíll hátt í leggöng að kvöldi fyrir svefn, 3 daga í röð (Pevaryl skeiðarstíll) eða einu sinni (Pevaryl Depot skeiðarstíll). Krem: Berist á svæðið í kringum leggangaop og endaþarmsop 2-3 á dag. Meðferð á að vara í 3 daga eftir að óþægindi eru horfin.
Meðhöndlun maka: Þvoið reður og forhúð og berið kremið á tvisvar á dag þar til óþægindi hverfa og í 3 daga eftir það. Þungaðar konur ættu að þvo hendur vandlega fyrir notkun skeiðarstíla. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
Varnaðarorð: Pevaryl og Pevaryl Depot má ekki nota samhliða annarri meðferð í eða á kynfærum. Ef fram koma merki um ertingu eða ofnæmi skal hætta meðferð. Pevaryl krem inniheldur bensósýru sem getur haft væg ertandi áhrif á húð, augu og slímhúðir og
bútýlhýdroxýanisól sem getur valdið staðbundnum aukaverkunum í húð (snertiexemi) eða haft ertandi áhrif á augu og slímhúð. Pevaryl skeiðarstílar innihalda efni í olíugrunni sem getur haft áhrif á og dregið úr öryggi latexhetta og latexverja. Ekki skal nota lyfin
samtímis slíkum verjum. Þeir sem nota sæðisdrepandi lyf skulu ráðfæra sig við lækni, þar sem staðbundin meðferð í leggöngum getur gert sæðisdrepandi lyf óvirkt. Meðganga / brjóstagjöf: Pevaryl má ekki nota á fyrsta þriðjungi meðgöngu nema skv. læknis-
ráði. Nota má Pevaryl á öðrum og síðasta þriðjungi meðgöngu ef hugsanlegur ávinningur fyrir móður vegur þyngra en möguleg hætta fyrir fóstrið. Ekki er þekkt hvort econazolnítrat berst í brjóstamjólk. Gæta skal varúðar við notkun Pevaryl hjá konum með barn
á brjósti. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: McNeil Sweden AB. Umboð á Íslandi: Vistor hf., sími: 535-7000
14 fréttir Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015