Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.12.2014, Qupperneq 26

Fréttatíminn - 30.12.2014, Qupperneq 26
Stjörnurnar á himni ársins 2014 Árið sem er að líða hefur verið viðburðaríkt í meira lagi. Eins og fyrri ár eru þó alltaf einhverjir sem skyggja á aðra á stjörnuhimninum. Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson, Ófeigur Sigurðsson rit- höfundur, Tómas Guðbjartsson læknir og hestakonan Aníta Aradóttir skinu skært en fastastjörnur á borð við Baltasar Kormák og Lars Lagerbäck láta ekki eftir sitt sæti á himnafestingunni. Ólafur Arnalds Ólafur er heitasta tónskáld ársins en hann vann til hinna virtu BAFTA-sjónvarpsverðlauna fyrir frumsamda tónlist í sjónvarpsþátt- unum Broadchurch. Ólafur hefur verið meðal áhugaverðustu tónlistarmanna landsins síðan frumraun hans, Eulogy for Evolution, kom út árið 2007 þar sem hann færði klassíkina í megin- strauminn með því að blanda saman strengjum, píanói og rafmögnuðum áhrifum. Ólafur er orðin þreyttur á því að vinna fyrir aðra og ætlar að einbeita sér að sinni eigin sköpun á næsta ári. Jóhanna Bergman Jóhanna hefur staðið í margra ára baráttu við íslenska kerfið til að fá geitfjárrækt viðurkennda til jafns á við sauðfjárrækt. Hún fékk uppreisn æru í lok árs þegar atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytið gerði samning við erfðanefnd landbúnaðar- ins um að efla geitfjárrækt á Íslandi, og síðar þegar ákveðið var að við endurnýjun næstu búvörusamninga verði geitarækt jafnsett sauðfjárrækt í opinberum stuðningi. Sem þýðir að ís- lenski geitastofnin mun ekki deyja út. Aníta Margrét Aradóttir Þessi unga tamningakona tók þátt í Mongol Derby, hættuleg- ustu kappreið í heimi þar sem farnir eru 1000 km á villtum hestum. Anítu tókst ekki aðeins að ljúka verkinu með sóma heldur styrkti hún um leið Barnaspítala Hringsins. Rúnar Páll Sigmundsson Tók við sem aðalþjálfari karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu og gerði liðið að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta tímabili. Náði auk þess að komast í umspil við stórlið Inter Milan um sæti í riðlakeppni Evrópu- deildarinnar. Kristín Jónsdóttir Kristín Jónsdóttir jarðskjálfta- fræðingur og fagstjóri jarð- skjálftavár hjá Veðurstofu Íslands stökk fram á sjónarsviðið og miðlaði upplýsingum til landans af mikilli fag- mennsku þegar jarðhræringar hófust í Bárðarbungu og síðar þegar gos hófst í Holuhrauni. Ekki er verra að hafa þvílíkt fagfólk á vaktinni þegar jörð tekur að skelfa. Birta Líf Veðurfréttakonan Birta Líf Kristinsdóttir steig fram sem fullsköpuð sjónvarpsstjarna frá fyrsta degi í starfi. Meðan margir kollegar hennar hikstuðu og stömuðu hélt hún ró sinni á vaktinni - og hreif þjóðina með sér. Marta María Jónasdóttir Marta Smarta lét klæða sig upp sem útigangskonu til að ganga úr skugga um hvort hægt væri að breyta jafn fallegir konu í „ógæfukonu“. Uppátækið þótti flestum ósmekklegt og Marta hætti að vera Smarta í smá- stund. Marta gaf líka út matreiðslu- bókina MMM á árinu svo hún hefur haft í nógu að snúast, auk þess að vera komin með nýjan kærasta. Tómas Guðbjartsson Skurðlæknirinn Tómas Guð- bjartsson hefur verið á allra vörum eftir að verkfall lækna hófst. Honum hefur enda verið teflt fram sem einni af hetjum læknastéttarinnar í kjarabaráttunni. Það er reyndar ekki að ástæðulausu enda virðist Tómas afar fær í sínu fagi. Það gefur Tómasi svo skemmtilegan stjörnuljóma að hann kemur vel fyrir og lumar á flottum frösum á borð við: „Við ætlum að bjarga þessum manni.“ Aron Jóhannsson Grafarvogsbúinn Aron Jó- hannsson varð í sumar fyrsti Íslendingurinn til að spila á HM í knattspyrnu. Hann er sem kunnugt er með tvöfalt ríkisfang sem gerði honum kleift að stíga á stærsta sviðið í vinsælustu íþrótt heims. Því miður fékk Aron ekki mikið að spila en það að hafa verið valinn í hópinn gefur góð fyrirheit um framhaldið. 26 fréttir Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.