Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.12.2014, Side 32

Fréttatíminn - 30.12.2014, Side 32
Gætilega tekið á því N Nú kveðjum við gamla árið með stæl og fögnum nýju. Nýju ári fylgir alltaf til- hlökkun og við veltum því fyrir okkur hvað það muni bera í skauti sínu. Tíminn er ótrúlega fljótur að líða. Stutt er frá síðustu áramótum – og líka þeim miklu tímamótum er árið 2000 gekk í garð. Pabbi minn, sem fæddur er á þriðja tug 20. aldar, sagði mér að í hans ungdæmi hefði það stóra framtíðarár og raunar 21. öldin verið svo fjarri að hann reikn- aði aldrei með að lifa aldaskiptin, hvað þá fram á nýja öld. Nú er árið 2015 að ganga í garð – og sá gamli enn í bærilegu fjöri, rekur sitt heimili og keyrir styttri vegalengdir, að minnsta kosti þegar bjart er. Hann hefur því keyrt í meira en sjötíu ár – og raunar vel það, því grun hef ég um það að hann hafi stolist til að keyra löngu áður en hann fékk bílpróf. „Það voru engar löggur þá,“ segir hann sér til afsökunar – og heldur ekki sveitalöggur þegar hann keyrði rétt rúmlega fermdur út á land á 40 árgerðinni af Chrysler-bíl fjölskyldunnar. Pabbi hans var öllum stundum á sjónum en aðrir í fjölskyld- unni áttu erindi vestur á land. Þau mættu ekki nema einum bíl á leiðinni, sem þó var talsvert lengri í þá daga, er ekið var fyrir Hvalfjörðinn. Svona hefur líf okkar breyst – og lengst vegna bættra aðstæðna. Húsin eru hlý, hollur matur eins og hver getur í sig látið og heilbrigðisþjónusta góð, hvað sem líður tímabundnum hnökrum. Heimurinn hefur líka skroppið saman. Áður þóttu það tíðindi ef menn fóru milli héraða, hvað þá utan. Þeir sem það gerðu voru sigldir, höfðu séð nýjar lendur og báru tíðindi heim. Nú er einangrun Íslands löngu rofin, menn þjóta landa á milli að vild, sumir vinna jafnvel í tveimur lönd- um og skjótast á milli í hverri viku. Þessu flandri fylgir væntanlega að ferðalangarnir eru orðnir veraldarvanari, vita hvað í boði er í útlandinu. Það er ekki endilega víst að svo hafi verið skömmu eftir stríð. Þannig sagði í gamanriti frá ferð íslensks húsgagnasmiðs til Parísar árið 1948, þegar undantekning var að menn legðu í slíkar langferðir. „Ég fór,“ sagði húsgagnasmiðurinn, „inn á gott hótel og settist þar einn við borð. Skömmu síðar kemur inn ung og lagleg stúlka og sest við næsta borð. Hún fór strax að gefa mér hýrt auga. En þar sem ég hvorki skildi né tal- aði frönskuna, bauð ég henni með bendingum að koma að mínu borði og bauð henni ölglas. Þá tekur stúlkan upp vasabók og blýant og teiknar kampavínsflösku. Ég lét það eftir stúlkunni og pantaði kampavínsflösku, en ekki erum við langt komin niður í flöskuna, þegar hún tekur aftur upp vasabókina og teiknar rúm. Og þótti mér það merkilegast,“ sagði íslenski iðnaðar- maðurinn stoltur, „að hún skyldi sjá það á mér að ég væri húsgagnasmiður!“ Þannig báru menn iðn sína utan á sér í ferðalögum liðins tíma. Kannski er það þannig enn. Við erum ekki komin svo langt frá forfeðrunum, þrátt fyrir allt, og þekkjumst væntanlega af þúfnagöngulag- inu, það er genetískt. Merki þessa fótaburðar sjást enn í dansi Íslendinga. Dansstíllinn er því nokkuð stórkarlalegur, að minnsta kosti hjá karlkyninu. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei náð langt í danskúnstinni, þrátt fyrir að afi og amma hafi kostað mig til dansnáms í Skátaheimilinu við Snorrabraut þegar ég var 7 ára gamall. Það er helst að ég hafi stigið þau spor sem ég lærði þá, enskan vals og samba, á gamlárskvöld í gegnum árin. Frekar þó á yngri árum en nú. Þá tókum við stundum á því með góðu vinafólki okkar sem bjó í íbúð fyrir ofan okkur á frumbýlingsárum okkar hjóna. Þá voru gamlárskvöldin afgreidd eins og enginn væri morgundagurinn. Við skutum upp því fíriverki sem við áttum og duttum svo í það, svo það sé nú bara sagt hreint út. Sjálfsagt höfum við reynt að svæfa yngstu börnin, hin gengu nokkurn veginn sjálfala milli íbúðanna tveggja, enda ekki langt að fara. Það var því ekki teljandi hætta á að þau færu sér að voða, þótt foreldrarnir létu svona, þetta magnaða kvöld þegar árið er kvatt. Morgundagurinn kom hins vegar alltaf, nýársdagur. Þá var ekki gefið að maður gæti reist höfuð frá kodda. Það fór eftir því hversu stuðið hafði verið mikið og dansinn ákafur. Víst hafði staðið til að horfa á fréttaannála liðins árs, sem endurteknir voru í Sjónvarpinu í kjölfar nýársávarps forseta Íslands eftir hádegið, en það gat komið fyrir að þrek leyfði það ekki. Maður varð því að ganga inn í nýtt ár án þess að hafa rifjað upp fréttnæmustu at- burði þess liðna eða meðtekið boðskap forsetans – sem án efa var vand- aður og vel fluttur. Það hefur heldur dregið úr þessum látum eftir því sem árunum hefur fjölg- að og lífsreynslan aukist. Nú er tekið gætilegar á því. Börnin eru löngu uppkomin og ómögulegt er að láta barnabörnin sjá afa láta eins og bjána. Þúfnagöngulagið sver maður hins vegar ekki af sér, það er bundið í erfðaefnum okkar. Það kann því að vera að maður skoli úr einu rauðvínsglasi eða svo og jafnvel jólabjór um leið og árið verður kvatt annað kvöld og nýju ári fagnað – en meira verður það ekki. Heilsan mun því leyfa meðtöku á nýársávarpi forsetans og fréttaannál- unum – en það skiptir svo sem engu máli lengur. Sjónvarpstækin eru orðin svo gáfuð að það er hægt að horfa á hvað sem er, hvenær sem er. Gleðilegt ár. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i * Fegra leggina, halda vel að * Þekjandi satínáferð * Þægileg mittisteygja * Sterkar, endingargóðar * 45 den, 1.889 kr BEST SELLER Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Okkar vinsæla útsala hefst 2. janúar 50 - 80% afsláttur af öllum vörum 32 viðhorf Áramótin 30. desember 2014–1. janúar 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.